Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Síða 5

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Síða 5
Geir Jónasson f. 5. september 1909 - d. 12. desember 1985 í hreyfmgu þeirri, er komst á þjóðfélagið undir lok síðari heimsstyrj- aldarinnar, bættust Landsbókasafni nýir starfsmenn, er helguðu því krafta sína um áratugaskeið. Einn þeirra var Geir Jónasson, er ráðinn var bókavörður í Landsbókasafni 1944. Hann fæddist á Akureyri 5. september 1909, lauk stúdentsprófi þar 1930 og meistaraprófi í sagnfræði frá Óslóarháskóla 1936. Hann var framkvæmdastjóri bókaútgáfunnar Eddu á Akureyri 1938—40, en kenndi síðan tvo vetur við Gagnfræðaskóla bæjarins, 1941—1943. Þá sat hann í stjórnarnefnd Amtsbókasafnsins á Akureyri 1939—43. Árið 1938 kom út í Reykjavík minningarrit, er hann hafði samið um Ungmennafélög íslands 1907— 1937, og sama ár sá hann um útgáfu ritsins Minningar frá London og París eftir Frímann B. Arngrímsson og birti í bókarlok nokkur minn- ingarorð um höfundinn. En þessi sérstæði hugsjónamaður settist á efri árum að á Akureyri eftir áratugadvöl vestan hafs og austan. Við komuna í Landsbókasafn 1944 biðu Geirs Jónassonar ærin verkefni, sem reyndust einkum fólgin í aðdráttum íslenzkra og síðar jafnframt erlendra rita. Þótt prentsmiðjum og öðrum þeim, er fjölfalda íslenzkt efni, sé lögum samkvæmt skylt að afhenda Lands- bókasafni ákveðinn fjölda eintaka, ríður á, að í safninu sé jafnan fylgzt gerla með bókaútgáfunni og hinum lögboðnu prentskilum. í þessu verki var Geir Jónasson réttur maður á réttum stað, í senn laginn og fylginn sér og svo vel heima í bókaútgáfunni hverju sinni, að fátt fór framhjá honum í þeim efnum. En það, sem mestu máli skipti, var, að hann gleymdi aldrei því, sem enn vantaði, og er mér minnisstætt, hvernig hann oft ljómaði, er honum hafði e.t.v. eftir heilan áratug loks tekizt að brýna úr eitthvert skarðið. Slíkir menn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.