Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Blaðsíða 47
HALLDÓR HERMANNSSON
47
Cornell University Library,
Ithaca, N.Y., 5. ágúst 1936.
Kæri vinur,
Eins og ég gat víst um í bréfi til þín fyrir nokkru síðan, hef ég ætlað
að senda Landsbókasafninu ýmsar bækur og áframhald þeirra tíma-
rita, sem ég hef gefið því áður. Þetta hefur dregizt fyrir mér af ýmsum
ástæðum, en nú hef ég loksins sent safninu kassa með bókum og
tímaritum. Það vantar ef til vill í eitthvað af þessum árgöngum
þeirra, en þú vildir kannske gera svo vel við fyrsta tækifæri að láta
mig vita, hvað ykkur vantar. Ég hef látið fylgja með nokkra árganga,
sem ég átti, af Print-Collectors Quarterly. I því eru ýmsar góðar
greinar um list. Að vísu vantar 1. heftið 1. bindi, og er það löngu
útselt, en það er ekki mikilsvirði, því að það var eiginlega bara
sölulisti (catalogue) frá Keppel & Co, sem þá gáfu út tímaritið. Ég
hef ekki verið áskrifandi þess í fleiri ár, og því get ég ekki sent ykkur
meira.
Ég hef borgað allan kostnað við flutning kassans, og allt þetta ætti
að vera safninu að kostnaðarlausu. Ef þið hafið þegar einhverjar af
bókum þeim, sem ég sendi, getið þið gefið þær til annarra safna.
Annars ekkert tíðinda.
Með kærum kveðjum,
þinn einlægur
H. Hermannsson
12. ágúst 1936.
Kæri vinur,
Ég legg hér með tvö eintök af „bill oflading“ fyrir bækur þær, sem
ég sendi Landsbókasafninu og gat um í síðasta bréfi til þín. Hvað þú
eigir að gera við þau, sérðu af viðlögðu eftirriti af bréfi til mín frá
American Express Company. Þú gerir svo vel og lætur mig vita
jafnskjótt og þú færð kassana.
Með kærum kveðjum,
þinn einlægur
H. Hermannsson