Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Blaðsíða 48
48
BRÉF NOKKURRA FRÆÐIMANNA
The Fiske Icelandic Collection,
Cornell University Library,
Ithaca, N.Y., 1. febr. 1937.
Kæri vinur,
Ég sendi þér nú handa Landsbókasafni nokkur hefti af tímaritum.
Einnig sendi ég þar með þau titilblöð af American Scand. Review og
Geographical Review, sem safnið vantaði samkvæmt bréfi þínu þ. 25.
nóv. f.á. En í listanum, sem þú sendir mér er talið 3. hefti 24. bindis af
Geogr. Rev., en það hefti hef ég áreiðanlega sent ykkur. Athugaðu, ef
þið hafið ekki fengið það.
Með beztu kveðju,
þinn einlægur
H. Hermannsson
The Fiske Icelandic Collection,
Cornell University Library,
Ithaca, N.Y., 14. marz 1937.
Kæri vinur,
Ég fékk fyrir skömmu bréf þitt, þar sem þú biður mig að skrifa
greinarkorn um Craigie sjötugan fyrir Skírni. Eg er nú ekki sérlega
vel til þess fallinn að skrifa afmælisdagaeulogíur, en mér fannst ég
ekki geta færzt undan þessu og hef sett saman innlagt skrif og vona,
að þú finnir það acceptabelt. Eiginlega er ekki mikið um Craigie að
skrifa, þótt hann hafi verið okkur íslendingum bæði þarfur maður
og góður, og vona ég, að ég hafi lofað hann sem vert er og ekki
meira.
Með beztu kveðjum,
þinn einlægur
H. Hermannsson