Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Blaðsíða 24
24
BRÉF NOKKURRA FRÆÐIMANNA
Sigurður Nordal.
þroskað eins og eik úr akarni? Um þetta vildi ég skrafa við þig seint
um sumarkvöld, milli töðulyktar og þaralyktar, því þar áttu bú á
milli, og öfunda ég þig af hvorutveggja. Mér finnst sálarfræðin
vanrækja öfgarnar upp á við of mikið, hina moderne sál, þar er fullt af
problemum, og ekkert sálar-problem getur verið sálarfræðinni óvið-
komandi.
Þakka þér fyrir, að þér er ekki ami í, að ég komi heim. Mér verður
það upplífgun, upplyfting og ylur að sækja þig heim, og ég segi ekki of
mikið, þó ég segi, að þú gerir Reykjavík byggilegri fyrir mig. Berðu
kveðjur til konu og dætra, líka Önnu með þökk fyrir bréf, sem ég kem
ekki í verk að svara nú.
Með beztu óskum og kveðjum,
þinn einlægur
Sigurður Nordal.
- milli töðulyktar og þaralyktar, því þar áttu bú: Guðmundur átti þá heima á Rauðará.