Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Blaðsíða 16
Bréf nokkurra fræðimanna
til Guðmundar Finnbogasonar
Finnbogi Guðmundsson bjó til prentunar
Bréf þau, er hér fara á eftir og rituð voru Guðmundi Finnbogasyni
á árunum 1915—1944, eiga það sammerkt, að höfundar þeirra eru
íslenzkir fræðimenn, er dvöldust langdvölum erlendis. í bréfunum er
margvíslegan fróðleik að finna um viðfangsefni þessara manna og
viðhorf og samband þeirra hingað heim. Bréfin eru rituð Guðmundi
ýmist sem kennara við Háskóla íslands, ritstjóra Skírnis, forseta Hins
íslenzka bókmenntafélags eða landsbókaverði og hafa varðveitzt í
bréfasafni hans, sem enn er í minni vörzlu, en síðar mun væntanlega
verða afhent Landsbókasafni.
0stre Fasanvej 35,
Kobenhavn F, 25. nóv. 1915.
Kæri vinur.
Beztu þakkir fyrir síðast og skemmtilegar samverustundir í sumar.
Sendi þér nú ritdómsnefnu um Vesturlönd Á.B., sem þú baðst mig
um í sumar. Vona, að það komi nógu snemma til þess að ná í
janúarhefti Skírnis.
Ertu búinn að fela nokkrum að skrifa ritdóm um Tólf sögur Guð-
mundar Friðjónssonar? Ef svo er ekki, þá er ég fús á að gera það, en
þyrfti þá að fá að vita um það við fyrsta tækifæri. Þegar ég las þá bók
og hugsaði um, að hún hafði legið 6 ár óútgefin hjá íslenzkum
bóksölum, varð ég reiður. A. m. k. vona ég, að Skírnir láti Guðmund
njóta sannmælis um þá bók. Hún er miklu betri en bækur gerast á
voru landi.
Ekki veit ég, hvað verður úr ritgerðinni um skaplyndi Snorra.
Fyrirlesturinn er ég búinn að halda, en ekkert er fullsamið og tími