Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Blaðsíða 15
JÓNASAR HALLGRÍMSSONAR
15
Det kongelige bibliotek, N.B.D. 2rk. Bréf, 20.9X12.5 cm, 3 síður. Bréfið er hér ritað upp eftir
ljósriti. - F Magnussen: Finnur Magnússon (1781-1847) prófessor. - Islands Lysing: Uppástunga
Jónasar að íslandslýsingunni er prentuð í ritsafni hans (JHRit V, CXCVII-CXCVIII), og
nánast allt, er hann hafði gengið frá fyrir dauða sinn, er þar að finna. Lýsingarinnar er víða
getið í ævisögunni (JHRit V, CXXXVIII-CLXXXIV). - Kbhvn: Kaupmannahöfn. - Helas:
Neikvætt andvarpsorð. - Gislason: Konráð Gíslason (1808-1891). — Amesen: Hannes Árnason
(1809-1879) guðfræðingur. Steenstrup virðist hér vera að svara uppástungu frá Finni
Magnússyni um að fá Hannes Árnason til að halda áfram íslandslýsingunni. Samkvæmt
dagbók Hafnardeildar Bókmenntafélagsins hefur Hannes Árnason sent félaginu bréf þann 10.
júní — „dagsetning“ og „innkoma“ hafa víxlast í bókinni — þar sem hann óskaði „að sér væri
gefin von um að honum væri á hendur falið að framhalda lýsingu íslands“, er hann hefði lokið
prófi, sem seinast yrði um jólaleytið (Dagbók Deildar hins íslenzka bókmenntafélags í
Kaupmannahöfn 1842-54; í Landsbókasafni). Á fundi 16. júní var samþykkt, „að fyrst um sinn
ætti ekki að gjöra neitt við þetta bónarbréf, enn nefnd, sem á að sjá um lýsingu íslands, skyldi
grennslast eptir hversu mikið Jónas heitinn hefði verið búinn með, og bera það síðan upp fyrir
félagið innan skams þegar kríngumstæður leyfðu“ (Samkomubók Deildar hins íslenzka bók-
menntafélags í Kaupmannahöfn 1816-74; í Landsbókasafni). Ekki verður séð af þessari sömu
bók, að þessu hafi nokkru sinni verið hreyft á félagsfundum.