Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Blaðsíða 94
94
LANDSBÓKASAFNIÐ 1985
Alþingis skorin niður í eina milljón, mátti um líkt leyti heyra, að hinn
nýi menntamálaráðherra, Sverrir Hermannsson, ætlaði ekki að sætta
sig við þessi úrslit og lagði jafnvel embætti sitt að veði, ef ekki tækist
að svipta upp bókhlöðunni á allra næstu árum. Urræði hans eru nú
kunn: frumvarp það til laga um þjóðarátak til byggingar Þjóðarbók-
hlöðu, er samþykkt var á Alþingi 22. apríl 1986.
ÞJÓÐARBÓKHLAÐA Veitt var á árinu tíu milljóna króna
aukafjárveiting til Þjóðarbókhlöðu, er
kom til viðbótar sjö milljónum á fjárlögum ársins og rúmum þremur
milljónum, er geymdar voru frá árinu 1984.
Nýr áfangi var því boðinn út um sumarið, og hófust framkvæmdir í
september. Er hér um að ræða ílögn í gólf á fjórum hæðum, lagnir
ýmsar vegna hitakerfis og loftræsibúnaðar, einangrun o.fl.
Samkvæmt lögunum um þjóðarátak til byggingar Þjóðarbókhlöðu,
sem þegar hefur verið getið og valda straumhvörfum í málefnum
bókhlöðunnar, fæst stórfé til framkvæmdanna á árunum 1987-1989.
Dálítið forskot á það fé fékkst á þessu ári (1986), svo að unnt yrði að
ljúka þeim áfanga, sem áður er lýst, og halda vinnu hönnuða í fullum
gangi, en á því ríður, að vinnuteikningar og útboðsgögn verði til taks,
þegar til stórframkvæmdanna kemur.
Landsbókasafni íslands, 1. desember 1986,
Finnbogi Guðmundsson.