Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Blaðsíða 6
6
eru vandfundnir — og í stofnun sem Landsbókasafni eru þeir
ómetanlegir.
Samhliða umsjón með íslenzkum prentskilum vann Geir árum
saman að ýtarlegri skrá um íslenzk tímarit allt frá upphafi tímarita-
útgáfunnar 1773, verki, er Böðvar Kvaran vann síðan að nokkur ár í
ígripum á vegum Landsbókasafns.
En aðdrættir Geirs til safnsins voru, eins og áður er að vikið, ekki
einskorðaðir við íslenzka efnið, heldur kom snemma í hlut hans
jafnframt öflun erlendra rita. Þótt hann sem sagnfræðingur léti sér
annast um rit í þeim fræðum, dró hann einnig að rit í ýmsum öðrum
greinum hugvísinda og kappkostaði einkum að ná heildarútgáfum
margra merkra skálda og rithöfunda. Mun Landsbókasafn lengi búa
að dugnaði Geirs við þessa aðdrætti alla.
Þegar Geir var 63 ára og átti að baka 28 ára starfsferil í Lands-
bókasafni, lét hann freistast til að sækja um embætti borgarskjala-
varðar, langaði til, eins og hann sagði, að ráða fyrir liði, áður en hann
léti að fullu af störfum. Hann átti í móðurætt að telja til atorkusamra
sýslumanna á Austurlandi, Guðmundar ríka Péturssonar í Krossavík
og Páls sonar hans á Hallfreðarstöðum, og kippti nú í kynið til þeirra.
En það er átak að skipta á sjötugsaldri um starf, þótt í sömu eða
svipaðri grein sé, og það ekki sízt, þegar um slíkan kappsmann sem
Geir var að ræða. Eftir fárra ára starf í Borgarskjalasafni bilaði
heilsan, og varð hann að láta af störfum fyrr en hann hafði ætlað sér.
Það var þung raun þessum mikla eljumanni að verða nú að setjast um
kyrrt og mega um langt árabil til einskis verks taka. En hann hafði þá
í reynd fyrir löngu lokið margföldu ævistarfi.
Geirs Jónassonar mun í Landsbókasafni jafnan verða minnzt með
virðingu og þökk.
F. G.