Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Blaðsíða 51
HALLDÓR HERMANNSSON
51
nokkru, sem hjá mér voru, og vona ég, að þið fáið þau með góðum
skilum.
Með beztu óskum og kærri kveðju,
þinn einlægur
Halldór Hermannsson
Halldór varð sextugur 6. janúar 1938.
The Fiske Icelandic Collection,
Cornell University Library,
Ithaca, N.Y., Nov. 25th 1942.
Dear Guðmundur,
I write this letter to introduce to you Mr. Hjörvarður H. Arnason,
curator of the Frick Collection in New York. He is going to Iceland
and will be connected with the American Legation. He is of Icelandic
descent on both sides, and is anxious to learn every thing about
Iceland and its affairs, and I feel sure that you will be willing to
advise him in those matters and give him all facilities at the Lands-
bókasafn.
With best regards,
cordially
Halldór Hermannsson
Halldór kynnir í bréfínu Vestur-íslendinginn Hjörvarð Árnason, forstöðumann fyrir
Frick Collection, listasafni einu í New York, en hann var á förum til íslands um
þessar mundir.
The Fiske Icelandic Collection,
Cornell University Library,
Ithaca, N.Y., 28. apríl 1943.
Kæri vinur,
Ég þakka fyrir bréf þitt frá 11. marz, sem var óvenjulega stutt á
leiðinni, en annars gengur æði seigt með sum bréfin, sem koma
hingað stundum margra mánaða gömul.
Ég legg hér með dálítið greinarkorn, sem ég vildi biðja þig að birta
í Skírni. Vinur okkar Barði hefur farið þar með allmiklar firrur upp á