Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Side 11

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Side 11
JÓNASAR HALLGRÍMSSONAR 11 þar sem þar áttu fleiri í hlut en Konráð, m.a. Brynjólfur, er engar skammir hlýtur í bréfí því, er þetta fylgdi. - Enn hvar . . . á Regentsi: í áðurnefndu bréfi, 27. nóvember, kveðst Konráð koma til hans þremur öðrum bréfum, sem hann hafi fundið á „Regjensi“, en sökum ókunnugleika manna um dvöl Jónasar í Sórey hefur honum verið skrifað þangað. - Jeg er harðari ... enn á ísunum: Hér vitnar Jónas til ljóðabréfsins margnefnda, en þar þóttust félagar hans senda honum sextán ýsur, „en sextán vantar samt uppá þær“ (Skírnisgrein Ólafs Halldórssonar, 85). - Segdu .. . Grammatika þinni: Sennilega er átt við rit Konráðs „Um frum-parta íslenzkrar túngu í fornöld“, er út kom árið 1846. -Jegfór . . . á díraveiðar: Pær dýraveiðar, sem hér er á minnzt, svokallaðar fæliveiðar, fóru aðallega fram í október og nóvember. í greininni „Bráð veiðigyðjunnar“ í bókinni „Kvæðafylgsnum, Reykjavík 1979, bls. 124, þar sem Hannes Pétursson ritar um tildrög kvæðisins „Ved Assembléen“, vitnar hann til þessara orða Jónasar um dýraveiðarnar. Af skiljanlegum ástæðum heldur Hannes þau vera rituð til Brynjólfs, enda hefur hann stuðzt við ljósrit, sbr. tilvitnanaskrá, bls. 249, þar sem hver síða, sem á er ritað, er sér á blaði, og hefur því ekki getað áttað sig á, að um er að ræða eftirskrift á bakhlið þessa bréfkorns til Konráðs. 3. Jónas Hallgrímsson til Brynjólfs Péturssonar. Jeg þakka þjer firir tilskrifið Brinjólfur minn góður! og skal skrifa þjer rjett á eptir þessum Böggli, ”sem filgir eptir innihaldi“. mjer þikjir of kalt að skrifa þjer meír í opnu brjefi í þetta sinn; orðin mín þola það ekkji vel, sem ekkji eru tíurðugri enn svo, að þau frjósa uppi(!) volgum kjaptinum á mjer. 14 — 44 þinn 1 JHallgr. Strp - er firir mörgum dögum búinn að senda Lundi brennisteinsskjöl- in sem við feíngum til láns, ef þú hefir meínt til þeirra; enn ekki það sem við nú hofum(!) búið til. Landsarkivet for Sjælland, Skiftedokumenter Prot. I. Nr. 147 A og B 1850-51 (Bréfasafn Brynjólfs Péturssonar). Bréfmiði, 10.6 X 13.1 cm, ritaður í Sórey. - skrifa þjer ... eþtir innihalii: Ekki er ljóst, hver þessi böggulsending var. - Strþ: J. Steenstrup. - Lundi: Christen Lund (1789- 1845), depúteraður í rentukammeri. - brennisteinsskjölin . .. búið til: Skjöl, er vörðuðu rannsóknir á brennisteini á íslandi (JHRit V, CLV-CLVI). Skáletruðu orðin hér eru undirstrikuð í bréfinu.

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.