Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Síða 19

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Síða 19
SIGURÐUR NORDAL 19 skrifi fallega ritgerð um hann, og helzt vildi ég hafa gert það nú, meðan Belgía er troðin hófum Húna, - en lífið segir með krepptan hnefann: takmörkun, takmörkun! Guð minn góður, manninum eru ekki gefnar víðfaðma greinar nema til þess að láta klippa þær af sér. Óska, að jólin og nýárið verði þér og húsi þínu gleðileg. Þinn einlægur, Sigurður Nordal. Með Dúnu Kamban er átt við sögu Guðmundar Kambans, Dúnu Kvaran, er kom í lokahefti Skírnis 1916. 5 Walton Well Road, Oxford, 17. júní ’17. Kæri vinur. Það var fallega gert af þér að senda mér bókina þína, hafði rennt vonarhug eftir henni norður um haf. Hef lesið bókina með mestu ánægju, og er þar oft eins og hver sjái sjálfan sig, t. d. kannast ég ákaflega vel við það, sem þú segir á bls. 143. Yfirleitt skrifa ég betur í heftar bækur en á laus blöð. Þar bætist við kappið, að fylla heila bók með góðu skrifi, sneplar og blöð eru eins og hafi enga byrjun eða endi, og safnfýsin (sneplar týnast, er kastað burt o. s. frv.). í ýmsum líkum atriðum hef ég reynslu, sem er mér dýrmæt; ég nota alls konar uppeldisbrögð við sjálfan mig, og þó ég sé nógu íhugull til þess að vita, að þetta eru brögð, þá gengur mín óspillta náttúra sífellt í gildruna! Jæja. Ég vona nú, að alþingi, þó það hvorki kunni vinnuvísindi, sem bjóða, að hver vinni það, sem honum hæfir bezt, né andlega verðfræði, sem enginn kann nú reyndar, - sjái svo sóma sinn, að þú getir framvegis fengizt við þetta og annað því líkt í næði og án þess að þurfa oftar að eiga neitt undir þeim ,útvöldu‘. Ekki má ég gleyma að þakka þér þýðinguna á ræðu Wilson’s, sem reyndar hefði vel mátt koma í Skírni. Það var eitt af þeim verkum, sem ég hefði viljað vinna, en fannst ég ekki hafa tíma til. Er líka klaufi að þýða.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.