Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Side 27

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Side 27
SIGURÐUR NORDAL 27 verði enn kippt í lag. Annars hef ég enn óbundnar hendur, hvort ég tek við þessari formennsku í bili eða ekki. En mér er vitanlega áhugamál, að „vikan“ fari sæmilega fram. Með kærum kveðjum til ykkar Laufeyjar frá okkur Ólöfu og óskum alls hins bezta, umfram allt, að blessuð sólin vermi Unnu í sumar henni til heilsu og eflingar. Pinn einlægur Sigurbur Nordal Whitehead.'Ritið Stærðfræðin eftir Alfred North Whitehead haíði þá nýlega komið út í þýðingu Guðmundar á vegum Bókmenntafélagsins. Whitehead var enskur stærð- fræðingur og heimspekingur og varð 1924 prófessor í heimspeki við Harvardháskóla. eins og metaphysico sœmir: eins og háspekingi sæmir. - að „vikan“ fari sœmilega fram: íslenzka vikan í Stokkhólmi dagana 14.-19. september 1932 til kynningar íslandi og íslenzkri menningu. Um 50 íslendingar voru þar viðstaddir, meðal þeirra helztu skáld, listamenn og fyrirlesarar. # Ithaca, N.Y. 20. des. 1915. Kæri vinur, Bréf þitt frá 24. f.m. hef ég fengið með skilum. Bók þína L’intelli- gence sympathique haíði ritstjórnin að Philosophical Review fengið, og var henni getið einungis meðal meðtekinna rita í einu af heftum þess fyrir skömmu. En ég hafði átt tal við prófessor Creighton um hana, og kemur nú innan skamms ritdómur um hana í einhverju hinna næstu hefta, og ritar hann einn af yngri kennurunum hér. Þér mun verða sent heftið jafnskjótt og það kemur út. Mér þykir vænt um að heyra, að þú hefur fengið styrk og meira tóm til ritstarfa. Það átt þú margfaldlega skilið. En hins vegar gat ég ekki fellt mig við frumvarpið um stofnun nýs prófessorsembættis. Ég álít það hættulega pólitík að stofna mörg embætti þar án þess þeirra sé knýjandi þörf. Það hefur viljað brenna við í sumum ríkisháskólunum hér vestra, en hefur ekki þótt gott, enda verið barizt gegn því af hyggnari og gætnari mönnum. Með kærri kveðju til konu þinnar og beztu nýársóskum, þinn einlægur H. Hermannsson Bók þína, L’intelligence sympathique: Doktorsritgerð Guðmundar, Den sympatiske Forstaaelse, Kobenhavn og Kristiania 1911, kom út í franskri þýðingu höfundar og André Courmonts í París 1913.

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.