Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Side 35

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Side 35
HALLDÓR HERMANNSSON 35 gleð mig til að lesa bók þína og sjá, hvað þú hefur að segja og hvernig þú vilt lækna þennan sjúka heim. Ég sá bara aðalatriðin í ritdóm- num, sem ég nefndi. Með kærri kveðju til konu þinnar og beztu jóla- og nýársóskum til ykkar beggja er ég þinn einlægur vinur Halldór Hermannsson in their wisdom: af vizku sinni. — 2-3 á ári: tvisvar til þrisvar á ári. Cornell University Library, Fiske Icelandic Collection, Ithaca, New York, 10. febr. 1925. Kæri vinur, í tilefni af fyrirspurn, sem ég hef fengið, viðvíkjandi Ulfarsrímum sterka, vildi ég biðja þig við fyrsta tækifæri að gefa mér upplýsingar um, hvort eiginhandarrit höfundanna, Porláks Guðbrandssonar og Árna Böðvarssonar, er til af þeim. Ég finn það ekki í neinum prent- uðum handritaskrám, en það kann að vera til í Landsbókasafninu. Prentaða útgáfan er eftir handriti sra Eyjólfs á Völlum. Fyrirgefðu ómakið. Með beztu kveðju, þinn einlægur H. Hermannsson Cornell University Library, Fiske Icelandic Collection, Ithaca, New York, 1. febr. 1927. Kæri vinur, Ég sendi Landsbókasafninu í krossbandi fyrsta heftið af yfirstand- andi árgangi af Geographical Review, sem gefið er út af American Geographical Society og er bezta landfræðistímarit hér vestra. Það er fjórðungsrit, og skal ég framvegis senda Lbsafninu það, ef þú kærir þig um það. Ég fæ það sem sé sem Fellow félagsins.

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.