Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Side 37
HALLDÓR HERMANNSSON
37
Royal Societies Club, St. James’s
Street,
London S.W.l.
30. júlí 1927.
Kæri vinur,
Beztu þakkir fyrir síðast. Ég ætlaði alltaf áður en ég fór frá íslandi
að senda þér sem forseta þakklæti fyrir það, að þið gerðuð mig að
heiðursfélaga í Bókmenntafélaginu, en það gleymdist einhvern veg-
inn fyrir mér, en nú mundi ég allt í einu eftir þessu og settist niður og
skrifaði það, og fylgir það hér með.
Ég hef ekki ennþá sent Dr. Pearl skjölin ykkar; ég hygg hann muni
ennþá vera á ferðalagi einhvers staðar á meginlandinu og því bezt að
vera ekki að ónáða hann með því nú. En undireins og ég kem til
Ameríku, sendi ég honum það allt og reyni að fá hann til að flytja
málið. Kunningi minn hér, sem er nýkominn frá New York, er heldur
ótrúaður á það, að Rockerfellerstofnunin setji nokkuð á stofn af þessu
tagi fyrr en einhver hefur byrjað á því, en við skulum nú sjá hverju
setur og ekki örvænta um, að eitthvað kunni að fást; þó er kannske
ekki vert að gera sér of miklar vonir, svo að maður verði ekki fyrir
vonbrigðum.
Ég fékk bréf frá íþöku þess efnis, að íslenzka bókaskráin síðasta
hafi verið send Landsbókasafninu gegnum Smithsonian Institute 1.
júní. Ef hún ekki kemur til skila, láttu mig vita um það.
Berðu kæra kveðju konu þinni og með beztu óskum til ykkar beggja
er ég
þinn einlægur
Halldór Hermannsson
Átt er við mann- og ættfræðistofnun, er koma skyldi á fót á íslandi með tilstyrk
Rockefellerstofnunarinnar.
Palace Hotel, Kobenhavn,
7. ágúst 1928.
Kæri vinur,
Eins og þú munt muna, sýndi ég þér bréf frá dr. Pearl um þetta
anthropo-genealogiska mál þitt, en þegar ég kom hingað niður fann
ég hér annað bréf frá honum sem svar upp á bréf það, er ég hafði