Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Side 44

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Side 44
44 BRÉF NOKKURRA FRÆÐIMANNA aftur. Miklar þakkir áttu skilið fyrir hana bæði af mér og öðrum samlöndum okkar. Menningarsjóður gerði vel að gefa hana út, enda má það telja beztu bókina, sem hann hefur gefið út. Annars hefur bókaútgáfa hans, að því er mér virðist, verið ljósasti vottur þess, á hvaða gelgjuskeiði við erum í menningarlegu tilliti. Síðasta heftið af Islandica var ekki fullprentað fyrr en ég var farinn austur um haf í fyrra sumar, og get ég ekki fundið, að þér hafi verið sent eintak, því set ég það nú á póstinn. Það vakti talsverða athygli í Danmörku eins og þú kannske hefur frétt, og nú mun nefnd vera þar að athuga tillögur mínar, en ég tel harla ólíklegt, að nokkuð verði gert, sem verði viðunanlegt fyrir okkur íslendinga. En nú er bezt að bíða átektanna. Með þakklæti fyrir bókina, og með kærum kveðjum, þinn einlægur H. Hermannsson Síðasta heftið af Islandica: þ.e. heftið 1933, Old Icelandic Literature, A Bibliographical Essay. Halldór íjallar fyrst um iðkun fræðanna í ýmsum löndum, en varpar síðan fram mjög athyglisverðum hugmyndum um nýjar leiðir í rannsókn og útgáfu íslenzkra fornrita. The Fiske Icelandic Collection, Cornell University Library Ithaca, N.Y. 13. marz 1934. Kæri vinur, Þú hefur kannske tekið eftir, að í Islandica síðustu gat ég um finnska útgáfu af Gunnlaugs sögu ormstungu, sem ég þó ekki hef getað náð í eintak af. Nú vildi ég gjarna spyrja þig, hvort Landsbókasafnið eigi eintak af henni, og ef svo er, að þú vildir gera svo vel og gefa mér nákvæman titil hennar og lýsingu af henni. Ég hef ekki getað fundið hana í finnskum bókalistum, en þeir eru ekki sem fullkomnastir. Með beztu kveðjum, þinn einlægur H. Hermannsson

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.