Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Side 55

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Side 55
STEFÁN EINARSSON 55 muntu sjá, að upphaf ísl. sagnaritunar er atburður í fullu samræmi við tízku umheimins og þess vegna beinlínis að þakka tíðarandanum. Það rýrir í sjálfu sér ekki vitund afrek íslendinga, nema að því leyti, að frumkvœðið er ekki þeirra. Að þeir skrifuðu á íslenzku, en ekki latínu, mun því að þakka, að þeir höfðu lært af sínum engilsaxnesku kristniboðum að virða móðurmálið og nota það, en hin nýju lærðu áhrif, sem báru sagnaritunina í land, voru ekki svo sterk, að þau brytu þann forna sið eins og í Englandi, þar sem hinir normönsku lærdómsmenn og klerkar gerðu sitt til að þrengja kosti engilsaxnesk- unnar. Kaflinn um íslenzkuna þótti mér betri nú en er ég las hann fyrst í sumar, og einkum hef ég borið meiri virðingu fyrir honum, síðan ég fór að reyna að berja saman eitthvað handa þér um fagurt mál, eftir umtali okkar í sumar. Ég iðrast hálfpartinn eftir að hafa lofazt til að senda þér greinina, sem nú þar á ofan kemur kannske of seint, en verst af öllu er, að hún er svo fátækleg, að ég veit ekki, hvort þú vilt virða hana viðtöku. Sannleikurinn er sá, að þetta er smekkatriði, og verður því ekki um það rætt af viti, nema með því að safna áliti fjölda manna og sjá, hver útkoman verður. Mætti kannske gera það á þann hátt að láta marga góða talara tala eða lesa sama textann á grammófónpl. og láta svo fólk af ýmsu tæi hlusta og velja fallegustu plötuna, með því lagi fengist eins konar standard. En ef þú tekur hana, væri mér þökk á því, ef þú vildir endurbæta þýðingar mínar, þar sem þeim er ábótavant, og sérstaklega þýðing- una á kaflanum eftir Malone, sem ég læt fylgja. Ég er óánægður með mína eigin þýðingu, þó ég voni, að efni sé ekki haggað, en ég veit, að þú gerir betur; en Malone á það skilið, að honum sé allur sómi sýndur. - Aths. um kónginn, veit ég ekki, hvort þú vilt taka í Skírni, nema þá veiled, segja, að þar hafi danskur maður mælt, og ekki skiljanlega. Illa fór með hina fyrirhuguðu grein um þig í Pjóðrceknistímaritinu. Eins og ég sagði þér, hafði ég boðið þeim hana fyrir löngu og þeir tekið vel í. En á síðustu stundu fékk ég afboð og var beðinn um eitthvað annað. Skrifaði ég þá hvöt til þeirra að hefjast handa um rannsókn á vestur-íslenzkunni, áður en hún lognaðist með öllu út af. Hvað segir þú um Eiríkssögu? Frágangurinn á henni er, því miður, slæmur, einkum á Ritskrá og registri, sem ég var nógu vitlaus að fresta ekki prentun á. Verð ég nú að láta prenta leiðréttingar, þegar

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.