Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 62

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 62
62 BRÉF NOKKURRA FRÆÐIMANNA NB: Pað getur verið, að ég í samráði við annan mann hér gefi út bréf W. Morris, þau sem eru í Safni Eiríks. Hvað kostar að ljósmynda þau? Ef þú hefur ekki gert það, að bæn þessa félaga míns, er réttast, að þú gerir það og sendir mér myndirnar með reikningi til Johns Hopkins University. Pessi ameríski fræðimaður, sem vill gefa út með mér bréfm, heitir Ney Mc Minn. The Johns Hopkins University, Baltimore, Maryland, 28.júní 1938. Department of English: Kæri vinur: Ég sendi þér nú loksins greinina um Gunnar Gunnarsson. Pað er eitt atriði í henni, sem ég ætla að biðja þig að auka í fyrir mig: nafn móður Gunnars, sem ég hef gleymt og get ekki haft upp á. Ég sendi þér líka nokkra ritdóma eða ritfregnir og vildi gjarnan biðja þig að koma þeim í Eimreidina eða Iðunni, ef þú hefur ekki rúm í Skírni. Mig hefði líka langað til að senda þér ritdóm um hljóðfræði Kress, sem er góð bók, ég hef dóm um hana í Mod. Lang. Notes. Sendi þér hann kannske seinna. Er á förum til Ithaca, N.Y., næstu daga. Halldór er á heimleið, mig langar að hitta hann í New York, veit ekki, hvort ég kemst. Ég hef tafizt í vor við að flytja mig um set hér í Baltimore, því ekki er nú svo, að maður eigi hús yfir hausinn á sér. Ég bið kærlega að heilsa konu þinni og kunningjunum á safninu. Með beztu kveðjum, þinn einl. Stefán Einarsson. Vildi gjarnan fá 30 - 40 sérprent af henni. pt. Cornell University Library, Ithaca, N.Y. 24. ágúst 1939 Kæri vinur: Meðfylgjandi línur tala sínu eigin máli, mundir þú ljá þeim rúm í Skírni næsta árs? Ef ekki, værir þú vís að koma þeim annars staðar

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.