Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 65

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 65
RICHARD BECK 65 The University of North Dakota Grand Forks, 26. marz 1935 Department of Scandinavian Languages Heiðraði herra: Ég vil leyfa mér að byrja bréf þetta með því að þakka yður kærlega fyrir hina stórfróðlegu og prýðisvel sömdu bók yðar íslendinga; hún er sannarlegt kjörvopn í hendur okkar hér vestra, sem látum okkur annt um þjóðræknislega starfsemi meðal landa okkar. Bókar yðar hefir að vonum verið vinsamlega minnzt í íslenzku blöðunum hér, en þar sem enginn ýtarlegur ritdómur hefir komið í þeim um hana, hefi ég í huga að rita um hana nokkru ýtarlegar á næstunni. Ég sendi yður hérmeð til væntanlegrar birtingar í Skírni þessa árs ritgerð og nokkra stutta ritdóma um rit á ensku um íslenzk efni, sem að litlu eða alls engu hefir getið verið á íslenzku. Hefi ég vandað hvorutveggja sem mest og vona, að ritgerð þessi og ritdómar fái skiprúm í ritinu. Pætti mér mjög vænt um, ef þér vilduð gera svo vel og láta mig vita, hvort þér fáið bréf þetta með skilum og eins, hvað þér hyggizt að gera með handritin. Með vinsemd og virðingu. Yðar einlægur Richard Beck The University of North Dakota Grand Forks, 8. des. 1935 Department of Scandinavian Languages Kæri dr. Guðmundur Finnbogason, Beztu þakkir fyrir bréf yðar frá 21. október og innilagða ávísun, sem ég fékk með ágætum skilum. Einnig fékk ég bækur Bókmennta- félagsins og sérprent fyrir alllöngu síðan með hinum beztu skilum. Þakka ég yður fyrir prýðilega meðferð á ritgerð minni og ritdómum. Hefði ég átt að vera búinn að skrifa yður fyrri, en ég heíi verið að draga mig eftir því að geta sent yður umgetning mína um íslendinga, og fylgir hún í sérstöku umslagi; sökum margs konar anna kom ég því ekki við að skrifa hana fyrri, en vildi vanda sem bezt til hennar. Einnig sendi ég yður eintak af Kirkjufélags sögu minni og sérprent af

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.