Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Side 69

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Side 69
RICHARD BECK 69 komandi. Kom mér í hug, hvort ekki væri vel til fallið að kjósa hann á þeim tímamótum merkilegrar ævi hans heiðursfélaga í Bók- menntafélaginu. Ég skýt þeirri spurningu aðeins til yðar. En frá ritstörfum Magnúsar þarf ég ekki að skýra yður. Pá munuð þér hafa frétt lát prófessors Rasmus B. Anderson í Madison, Wisconsin, heiðursfélaga félagsins. Hann dó fyrir stuttu síðan, nýlega orðinn níræður, athafnamikill maður og víkingalundaður, sem átti yfir langan og stórmerkan lífsveg að horfa. Ég ætla innan skamms að skrifa í Journal of Engl. and Germanic Philology ritdóm um íslendinga. Með beztu kveðjum. Vinsaml. Richard Beck The University of North Dakota Grand Forks, 3. janúar 1937 Department of Scandinavian Languages Kæri dr. Guðmundur Finnbogason, Ég þakka kærlega vinsamlegt bréf yðar og innlagða ávísun, sem ég fékk fyrir nokkrum dögum. Ávísunin kemur mér að ágætu haldi heima, því ég hefi þar, eins og þér gátuð til, dálítil viðskipti. Einnig þakka ég sérprentin, sem mér bárust með beztu skilum. Þökk fyrir prýðilega meðferð á greinum mínum og ritdómum í Skírni; ég hefi fastlega í huga að senda yður grein um Milton og íslenzkar þýðingar á ritum hans, sem er vitanlega aðallega þýðing séra Jóns á Paradísar Missi, og að auk nokkra ritdóma um nýjar bækur á ensku um íslenzk efni (fræðirit); skal ég sjá til þess, að þetta komi í fyrra lagi, og mun greinin ekki verða lengri en 18-20 bls. í hæsta lagi. Ég sendi yður í sérstökum böggli tímaritin Poet Lore og Books Abroad með ritgerðum eftir mig um Einar H. Kvaran og Einar Benediktsson; ég væri yður auðvitað mjög þakklátur, ef þér minntuzt þeirra í Skírni ásamt ritgerðum þeim, sem ég sendi yður í fyrra. Landsbókasafninu mun ég senda þessi og önnur rit á næstunni. Með beztu kveðjum og hugheilum nýársóskum. Yðar einlægur Richard Beck

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.