Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Side 74

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Side 74
74 BRÉF NOKKURRA FRÆÐIMANNA Svo að ég víki aftur að greininni um Gísla Brynjúlfsson, þá sjáið þér, að ég hefi haldið hans rithætti í tilvitnunum og kvæðaheitum, en þessu getið þér auðvitað breytt, ef þér viljið. Með beztu kveðju og óskum. Yðar einlægur Richard Beck The University of North Dakota Grand Forks, 31. des. 1939 Department of Scandinavian Languages Heiðraði vin, Ég hefi að vísu ekki fengið Bókmenntafélagsbækurnar fyrir 1939 enn þá, og mun það að kenna seinleika í skipaferðum vegna stríðsins; en í bréfum heiman af íslandi hefi ég frétt, að þér hafið birt í Skírni grein mína um um Gísla Brynjúlfsson og Byron og ritdóma mína. Mun ég því eiga einhver ritlaun hjá félaginu. Vil ég í því sambandi biðja yður að gera mér dálítinn greiða. Ef að ritlaunin nema meira en 100 krónum, vil ég biðja yður að greiða þá upphæð (kr. 100) inn í sparisjóðsbók h.f. Jörð nr. 3217 í Landsbankanum og fá kvittun fyrir og senda mér hana í pósti. Ef ritlaunin nema minna en 100 kr., vil ég biðja yður að greiða þau í heild sinni inn í nefnda sparisjóðsbók; sé eitthvað, hinsvegar, fram yfir 100 kr., vil ég, að það standi inni hjá Bókmenntafélaginu í bráðinu. Fyrirgefið svo þetta kvabb. Snæbjörn Jónsson bóksali gat þess í bréfi til mín, að þér mynduð gjarnan vilja birta grein í Skírni komandi ár um Thomas Hardy í tilefni af aldarafmæli hans. Ég skal gjarnan semja slíka grein fyrir yður, en hvað mætti hún vera löng? Ég myndi skrifa 10-12 bls. grein. Vil ég svo bæta því við, að ég hlakka til að fá Skírni þessa árs sem endra nær, og alltaf þykir mér einnig góður fengur í öðrum ritum félagsins. En það getur vel verið, að ég sé af „gamla skólanum“, og verður þá svo að vera. Með beztu kveðju og nýársóskum. Yðar einl. Richard Beck

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.