Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 78

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 78
78 BRÉF NOKKURRA FRÆÐIMANNA ljúka við hana seinni part þessa mánaðar og sendi hana þá rakleitt til yðar. En af framangreindum ástæðum er mér sérstaklega annt um það, að ritgerðin geti komið í þessum árgangi, og vil því biðja yður að ætla henni rúm; ég geri ráð fyrir, að hún verði sem svarar örk að stærð, og hreint ekki yfir 20 blaðsíður. í sérstökum böggli sendi ég yður eintak af hinu nýja þýðingasafni mínu: Icelandic Poems and Stories, ásamt með tveim síðustu árgöngum Almanaks Ó. S. Thorgeirssonar, en ég annast nú um ritstjórn þess. Væri ég yður auðvitað mjög þakklátur, ef þér vilduð minnast þessara rita í Skírni. Ég læt einnig fljóta með í bögglinum eintak af öðru Vestur- heimsblaðinu íslenzka með ræðu minni við setningu Þjóðræknis- þingsins, en þar vitna ég til ummæla yðar, eins og þér sjáið. Með kærri kveðja. Yðar einlægur Richard Beck The University of North Dakota Grand Forks, 5. júlí 1943 Department of Scandinavian Languages Heiðraði vin, Þökk fyrir vinsamlegt bréf yðar frá 27. apríl, sem mér barst 7. júní, daginn eftir afmæli yðar, og sendi ég yður þá símskeytið, sem ég vona að yður hafi borizt með skilum. Eins og vék að í skeytinu, var ég sárlasinn af kvefvesöld lengi í vor, en er nú fyrir alllöngu síðan orðinn albata; einnig varð ég að takast á hendur fram undir júníbyrjun aukin kennslustörf á Háskólanum; urðu því ritstörfm um hríð útundan og meðal þeirra ritgerðin um Guttorm J. Guttormsson og ritfregnirnar, sem ég ætla Skírni í ár. Þegar ég nú sá fram á það, að þær myndu eigi ná til íslands í tæka tíð, lagði ég þær til hliðar þangað til síðar á árinu og sendi þær heim mun fyrr fyrir næsta árgang; afmæli (65 ára) Guttorms er ekki fyrr en í desember og gerir því lítinn mun, þó að greinin komi ekki fyrr en næsta ár; ég vanda þá þeim mun betur til hennar. Þér verðið því að afsaka dráttinn, sem á þessu hefir orðið hjá mér. Ég endurtek hugheilar óskir mínar í tilefni af sjötugsafmæli yðar og vil láta í ljós ánægju mína yfir því, að Alþingi sá sóma sinn í því að samþykkja, að yður yrði veitt full eftirlaun; hafið þér vel til þeirra unnið með ritstörfum yðar og annarri menningarstarfsemi. Tek ég

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.