Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 80

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Page 80
80 BRÉF NOKKURRA FRÆÐIMANNA vikublaðinu hér vestra, þegar mér vinnst tími til. Barst mér bókin nokkru eftir, að ég fékk yðar góða og kærkomna bréf. Annars hafa bréfaskriftir orðið mjög útundan hjá mér undanfarið, fyrst og fremst vegna þess, að ég hefi haft mjög mikla aukakennslu með höndum undanfarið (hermannakennslu), og svo mikil aukastörf og ferðalög í sambandi við 25 ára afmæli og ársþing Pjóðræknisfélags- ins og komu hins mikilsvirta og ágæta gests heiman af íslandi, Sigurgeirs biskups Sigurðssonar. Hefir hann farið hina mestu sigurför hingað vestur, hvarvetna aflað sér og íslandi vina með glæsimennsku sinni, málsnilld og elskulegri framkomu. Hefir mér persónulega verið bæði hin mesta ánægja og gróði að því að kynnast biskupinum. Hann sat hér í Grand Forks fund í Rotary-klúbbi borgarinnar og flutti þar kveðjur frá Rotary-klúbbunum á íslandi, er var ágætlega tekið. Segi ég yður frá því vegna þess, að þér eruð félagi í Rotary-klúbbi Reykja- víkur. Pá flutti biskup prýðilega ræðu hér á háskólasamkomu, og sæmdi háskóli Norður Dakota hann þá heiðursdoktorsnafnbótinni „Doctor of Humanities“ (L.H.D.), á latínunni „Litterarum Humani- orum Doctor“, sem háskólar hér sæma aðeins menningarfrömuði og andans menn. Pótti mér mjög vænt um, að biskupi var þessi sómi sýndur; var það mitt ánægjulega hlutskipti að útnefna hann til doktorskjörs, og sendi ég yður að gamni mínu ávarp það, er ég flutti við það tækifæri. Ég hlakka mjög til að sjá í Skírni, sem enn er ókominn, ritfregnir yðar um Almanakid og Icelandic Poems and Stories: Pykir mér vænt um að geta sagt, að hin síðarnefnda heldur áfram að vekja athygli og fá vinsamlega dóma, t.d. í janúarhefti tímaritsins The Modern Language Review, sem Cambridge háskólinn í Englandi stendur að. Aðalatriði er, að bókin sýnist verða íslandi að einhverju gagni. Með innilegri kveðju og beztu óskum. Yðar einlægur Richard Beck 10. apríl áður en ég kom þessu bréfi í póstinn, bárust mér Bókmenntafélagsbækurnar fyrir 1943. Pakka hjartanlega drengileg ummæli yðar um Almanakið og þýðingasafnið. R. Beck

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.