Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Side 92

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1987, Side 92
92 LANDSBÓKASAFNIÐ 1985 FUNDIR Undirritaður sat fyrri aðalfund NORD- INFO í Stokkhólmi dagana 21.-22. maí sem varamaður í stjórn. Einar G. Pétursson deildarstjóri þjóðdeildar dvaldist á vegum Landsbókasafns nokkra daga í Kaupmannahöfn í byrjun ágústmán- aðar, heimsótti Konungsbókhlöðu og kynnti sér starfsemi þjóðdeildar hennar. Dvöl þessi var í framhaldi af Fornsagnaþingi því í Helsingor, er Einar sótti dagana 28. júlí til 2. ágúst. STYRKUR ÚR Stjórn Þjóðhátíðarsjóðs veitti Landsbóka- ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐI safni á' árinu 50 þús. króna styrk til viðgerðar og varðveizlu gamalla rita. Styrknum var að mestu varið til filmukaupa, enda filmun hvers konar efnis, sem hætt er komið vegna vonds pappírs og slits, vænlegasta leiðin til friðunar þess og varðveizlu. MYNDASTOFA Með tilkomu aðstoðarmanns á mynda- stofu, Heiðmars Jónssonar, þótt ekki sé nema í I/2 stöðu, vinnst forstöðumanni stofunnar, Kristjáni Ólasyni, meira svigrúm til að vinna að filmun blaða og öðrum sérverkefnum hennar, en Heiðmar annast fyrst og fremst um ljósritun bæði fyrir safnið og gesti þess. Keypt var á árinu vönduð framköllunarvél, er í senn tryggir myndgæði og aukin afköst. Aðstaða er þó erfið, þar sem myndataka fer fram á efstu hæð, en úrvinnsla í kjallara. SAFNAHÚSIÐ Unnið var á árinu að ýmsum endurbót- um á Safnahúsinu. Danfors-kerfi var sett í húsið, og hefur við það hvort tveggja unnizt, að hiti næst nú miklu betur í þann hluta hússins, þar sem rennsli var orðið tregt, og hægara er að halda æskilegu hitastigi, t.a.m. í bóka- og skjalageymslum. Þá er og sýnt, að hitunarkostnaður hefur minnkað nokkuð við tilkomu þessa kerfis.

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.