Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1995, Side 140

Frjáls verslun - 01.07.1995, Side 140
MARKAÐSMÁL Seinni markaðsherferðin á Maraþon Extra var óvenjuleg en árangursrík: EITT SKOT OG SALAN Á MARAÞON ÁTTFALDAÐIST Herferðinni varytt úr vör síðla sumars sem þykir slæmur tími þar sem margir eru í sumarleyfum. Þungi hennar stóð aðeins yfir í einn dag. Skot og... vottaefnin Ariel Ultra og Ariel Future þvo ekki betur en Maraþon Extra. Þeir hjá Nat- han og Olsen fullyrða svo og vitna í samanburðarrannsóknir sem tveir óháðir aðilar gerðu fyrir þá og sýna engan mun á þvottahæfni þessara þriggja þvottaefaa. Þessar niðurstöður voru síðan nýttar til hins ýtrasta við aðra tilraun á markaðssetningu Maraþon þvotta- duftsins. Farið var hefðbundna leið við auglýsingar á þvottaefninu þegar það kom á markað fyrri hluta ársins. Gerð var sjónvarpsauglýsing og reynt var að fá verslanir til að selja Maraþon og gera því góð skil í hillum sínum. „Árangurinn af þeirri herferð var mun minni en við gerðum okkur vonir um,“ segir Þorsteinn Gunnars- son, sölustjóri hjá Nathan og Olsen. Hann segir erfitt að gera sér grein fyrir því af hverju markaðurinn tók ekki nægilega vel við sér í upphafi: „Og sýnist sitt hverjum. Verslanirnar tóku okkur ekkert sérstaklega vel í upphafi og einhverjir eru þeirrar skoðunar að sjónvarpsauglýsingin, þar sem Magnús Scheving hoppar fyrir framan þvottavélina, sé ekki nægjanlega sterk. Síðan má líka spyrja sig þeirrar spumingar hvort áherslur okkar hafi verið nægilega vel undirstrikaðar í þessari fyrstu lotu markaðssetningarinnar. Þessi atriði eru og verða óvissuatriði og við verð- um einfaldlega að sætta okkur við það.“ ... AÐ HAMRA JÁRNIÐ Önnur tilraun markaðssetningar- innar átti sér stað síðastliðið sumar, á tíma sem yfirleitt þykir frekar slæmur til markaðssetningar vegna sumar- leyfa og minni fjölmiðlanotkunar fólks. „En við vildum engu að síður leggja af stað í nýja markaðsherferð, mátum það svo að betra væri að hamra járnið meðan enn væri í því hiti, heldur en að láta fyrri herferðina fjara út og láta fólk jafnvel gleyma þvottaefninu. “ Þorsteinn segir að þeir hafi viljað skerpa áherslumar og koma inn á auglýsingamarkaðinn með enn meiri krafti en áður. „Helsti samkeppnisað- ili okkar í sölu þvottaefnis í „compact" umbúðum er Áriel og á þessum tíma hafði merkið um það vil 70% mark- aðshlutdeild og við vildum sannarlega fá eitthvað af þeirri köku. Við vissum að samkeppnisaðilinn var með góða vöru en vissum einnig að Maraþon var ekki síðra efni. Við vildum því láta bera okkur saman við það besta á markaðnum. Þess vegna fengum við tvo óháða aðila, annan í Danmörku, hinn í Sviss, til þess að gera saman- burðarpróf á þessum þremur efnum; Maraþon, Ariel Ultra og Ariel Fut- ure. Niðurstaðan var sú sem flestir ættu að vita nú orðið, að enginn mun- SAGANÁBAK VIÐ HERFERÐINA Þorsteinn G. Gunnarsson ur væri á þvottahæfi þessara þriggja efna.“ Að sögn Þorsteins urðu nokkrar umræður um það hvernig nýta ætti þessar niðurstöður í markaðssetning- unni: „En niðurstaðan var sú að við hefðum í raun og veru engu að tapa. Hjá fyrirtækinu ríkir sú regla að gera aldrei lítið úr samkeppnisaðilanum og þá reglu tel ég að við höfum virt í þessum auglýsingum, enda h'tum við svo á að auglýsingamar hafi alls ekki gert lítið úr þvottaefnunum frá Ariel, þvert á móti bendum við á að Ariel Ultra og Ariel Future séu allt eins góð og Maraþon. Það má því segja að við höfum farið út í samanburðinn af mik- illi virðingu fyrir samkeppnisaðilan- um.“ Ásamt því að benda á að Maraþon stæðist samanburð við risann Ariel, var í auglýsingum bent á að Maraþon væri ódýrara en þvottaduft sam- keppnisaðilans og íslenskt að auki. „Þannig bentum við á valkosti sem voru okkur tvímælalaust til tekna og höfðum til skynsemi kaupenda." ÞRJÚ, FIMM 0G SJÖ! Þorsteinn segir að þeim hafi verið ljóst að nýja herferðin þyrfti að vera mjög áberandi og skilaboðin óvenju skýr þar sem verið var að auglýsa upp um mitt sumar vöm með litla mark- aðshlutdeild. „Því fómm við afar óvenjulega leið í dagblaðaauglýsing- um sem ég tel að hafi ekki verið farin áður. í samvinnu við Yddu, auglýsingastofuna okkar, gerðum við þrjár mismunandi heilsíðuauglýsing- 140
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.