Morgunblaðið - 06.03.2001, Page 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 13
LYFJANOTKUN Íslendinga jókst
um 43% frá árinu 1989 til ársins
2000. Lyfjanotkunin jókst um tæp
3,8% frá árinu þar á undan og hefur
aukningin ekki verið jafnlítil milli
ára síðan árið 1994. Til samanburðar
jókst lyfjanotkun árið 1999 um 5,2%
frá árinu á undan og árið 1998 jókst
hún um 6%.
Eggert Sigfússon, deildarstjóri
lyfjamáladeildar heilbrigðisráðu-
neytisins, sagðist gera ráð fyrir því
að lyfjanotkun myndi halda áfram að
aukast á næstu árum. Aukningin hér
væri í samræmi við þróunina á hin-
um Norðurlöndunum. Hann sagði að
margar ástæður væru fyrir aukinni
lyfjanotkun hérlendis. Mikið af nýj-
um lyfjum kæmu á markaðinn á
hverju ári, íbúum fjölgaði ár frá ári,
aldurssamsetningin væri að breyt-
ast, þ.e. sífellt fleiri næðu hærri aldri
og að það væri miklu meiri lyfjanotk-
un hjá þeim.
Eggert sagði að á heildina litið
væri lyfjanotkunin hlutfallslega
minni á Íslandi en á hinum Norð-
urlöndunum og það orsakaðist m.a.
af því að íbúarnir hér væru yngri.
Tauga- og geðlyf
algengust
Algengustu lyf sem Íslendingar
nota eru tauga- og geðlyf, en hjarta-
og æðasjúkdómalyf eru einnig mjög
algeng, sem og þvagfæralyf og kyn-
hormónar og meltingarfæra- og
efnaskiptalyf.
Eggert sagði að Íslendingar not-
uðu hlutfallslega meira af geðdeyfð-
arlyfjum en íbúar hinna Norður-
landanna, þó notuðu Svíar einnig
töluvert mikið af þessum lyfjum, en
aðallega eru þetta þunglyndislyf.
Hann sagði að mikið af nýjum geð-
deyfðarlyfjum hefðu komið á mark-
aðinn undanfarin ár, en þrátt fyrir
það hefði notkun eldri lyfja ekki
minnkað að ráði.
Þegar búið er að leiðrétta lyfsölu
miðað við neysluverðsvísitölu kemur
í ljós að árið 2000 voru keypt lyf fyrir
rúma 10,4 milljarða króna, sem er
aukning um 8,2% frá árinu á undan.
Þess má geta að árið 1989 voru keypt
lyf fyrir tæpa 6,3 milljarða króna.
Af þeim tæpu 10,4 milljörðum
króna sem eytt var í lyf á síðasta ári
fóru rúmir 2,9 milljarðar í kaup á
tauga- og geðlyfjum, en Eggert
sagði að þau nýju geðdeyfðarlyfin
væru frekar dýr. Næstmest fór í
kaup á hjarta- og æðasjúkdómalyfj-
um eða tæpir 1,3 milljarðar.
Íslendingar keyptu lyf fyrir 10,4 milljarða króna í fyrra
Lyfjanotkun hefur aukist
um 43% frá árinu 1989
#
,"""
'' #
""" '
!
"
"""
-""
.""
/""
0""
1""
"2"
-2"
.2"
/2"
02"
12"
3-" 3-, 3-4 3-0 3-. 3"" 3-" 3-, 3-4 3-0 3-. 3""
5556""" '
!
Yfirlýsing frá dval-
ar- og hjúkrunar-
heimilinu Grund
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi yfirlýsing frá
dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund:
„Vegna frásagnar Konstant-
íns Haukssonar í viðtali í DV sl.
laugardag 3. mars af lífshlaupi
tengdamóður sinnar liðlega ní-
ræðrar og dvöl hennar á Grund
og síðan andláti á Landspítalan-
um 3. desember sl. viljum við
undirrituð biðja Morgunblaðið
að birta eftirfarandi athuga-
semdir:
Aðstandendur Laufeyjar A.
Stefánsdóttur fóru fram á það
við heilbrigðisráðherra að rann-
sókn færi fram á kringumstæð-
um er leiddu til láts hennar.
Nefnd undir forystu landlæknis
framkvæmdi umbeðna athugun
á kringumstæðum og meðferð
sem hún naut í sjúkleika hennar
síðustu stundir á Grund. Nefnd-
in komst að þeirri niðurstöðu að
ekkert hefði komið fram að-
finnsluvert við umönnun og
meðferð undir lok veru hennar á
Grund, heldur hefði verið rétt
staðið að málum í hvívetna.
Öðru sem snertir Grund í
máli Konstantíns Haukssonar í
nefndri grein í DV og flokkast
verður í flestu tilliti undir gróf
illmæli í garð heimilisins, stjórn-
enda og starfsfólks, verður að
sjálfsögðu ekki svarað í sömu
mynt, enda fátt í frásögn hans,
varðandi Grund, sem tengist
staðreyndum, heldur eru ein-
vörðungu óskammfeilnar lýsing-
ar á aðstæðum og aðhlynning á
heimilinu, sem eru fjarri veru-
leikanum.
Okkur undirrituðum er það
hryggðarefni að hin látna skuli
vanvirt með slíkum hætti og
gert er í téðri grein með því að
níða síðasta heimili hennar og
fólkið sem þar lagði sig fram um
að hlynna að henni veikri hinstu
lífdaga hennar.
En af virðing við minning
Laufeyjar og veru hennar fyrr-
um á meðal okkar sem störfum
á Grund, munum við að svo
komnu máli ekki eyða frekari
orðum á fáryrði þeirra, sem létu
sér sæma að semja og birta
fyrrnefnda ritsmíð í DV.“
Fyrir hönd stjórnar Grundar
Guðmundur Óskar Ólafsson,
formaður,Guðrún Gísladóttir
forstjóri, Júlíus Rafnsson fram-
kvæmdastjóri, Guðjón Lárusson
og John Benedikz yfirlæknar,
Sólveig Jónsdóttir hjúkrunar-
forstjóri, Margrét Rögn Haf-
steinsdóttir hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri og Laufey Egils-
dóttir deildarstjóri viðk. hjúkr-
unardeildar.“
NEFND nokkurra stofnana og hags-
munaaðila hefur skilað frá sér skýrsl-
unni „Þjóðvegir og búfé“ þar sem
lagðar eru fram nokkrar tillögur til
lausnar á þeim vanda sem lausaganga
búfjár við þjóðvegi landsins hefur
skapað. Talið er að tugmilljóna króna
tjón verði á hverju ári af völdum
lausagöngu búfjár. Nefndin hefur
starfað frá árinu 1998 en áður höfðu
tvær slíkar unnið að málinu.
Í nefndinni áttu sæti fulltrúar frá
landbúnaðarráðuneytinu, samgöngu-
ráðuneytinu, dómsmálaráðuneytinu,
Bændasamtökum Íslands, Sambandi
íslenskra sveitarfélaga og Félagi ís-
lenskra bifreiðaeigenda, FÍB.
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra kynnti þessa skýrslu á blaða-
mannafundi í gær, ásamt nokkrum
nefndarmönnum, og sagði meðal ann-
ars að tillögurnar hefðu hlotið góðan
hljómgrunn í ríkisstjórninni. Nú
myndu viðkomandi ráðuneyti og
hagsmunaaðilar vinna eftir tillögun-
um og því verki ætti að vera lokið í
síðasta lagi innan þriggja ára héðan í
frá. Fram kom á fundinum að á ár-
unum 1992–1999 voru skráð um 700
tilfelli þar sem ökutæki og búfé rák-
ust saman, þar af urðu slys á fólki í 34
tilfellum og eitt banaslys.
Helstu tillögur nefndarinnar eru
þær að fjölfarnir vegir víða um land
verði friðaðir með samfelldum og sér-
stökum varnargirðingum. Lagt er til
að búfé fjarri vegum verði í sérstök-
um beitarhólfum þannig að það gangi
ekki í vegsvæðum. Getur þetta átt við
þar sem búfé hefur fækkað mikið, t.d.
í landnámi Ingólfs.
Þar sem vegir verða ekki friðaðir,
og ökumenn geta átt von á að fénaður
sé í lausagöngu, einkum í strjálbýli, er
lagt til að koma upp sérstökum um-
ferðarmerkjum sem gefa til kynna að
búfé gangi þar laust og gæta þurfi
sérstakrar varúðar. Leggja á vegrás-
ir, eða undirgöng, á ákveðnum stöð-
um til að auðvelda umferð búfjár und-
ir vegina.
Nefndin leggur einnig til að Vega-
gerðin og lögreglan annist eftirlit
með búfé á friðuðum vegsvæðum en
sveitarfélögin annist handsömun og
ráðstöfun lausagöngufénaðar. Lagt
er til að svokölluðu vegafé, sauðfé
sem leggst ítrekað í vegina, verði
fargað.
Sveitarstjórnir eru hvattar til að
banna lausagöngu búfjár og stórgripa
þar sem aðstæður leyfa. Þá er gerð
tillaga um að Vegagerðin kosti og sjái
um að girða og annast allt viðhald
girðinga sem ætlað er að friða veg-
svæði stofn- og tengivega, þar með
talin hlið, vegristar og undirgöng. Um
þessa síðasttöldu tillögu náðist reynd-
ar ekki samstaða í nefndinni og sagði
landbúnaðarráðherra að ráðuneytun-
um væri ætlað að ná samkomulagi, í
samráði við Vegagerðina.
Ennfremur er lagt til að metinn
verði áætlaður kostnaður við aðgerðir
og gerð áætlun um framkvæmdir.
Stefnt skal að því að ljúka fram-
kvæmdum innan þriggja ára með sér-
stökum fjárveitingum frá Alþingi.
Áhersla er lögð á að ljúka fram-
kvæmdum á þeim svæðum þar sem
slysatíðni er mest.
Margslungið og erfitt mál
Níels Árni Lund veitti nefndinni
forstöðu. Hann sagði á blaðamanna-
fundinum að lausaganga búfjár við
þjóðvegina og mögulegar lausnir þar
á væru erfitt og margslungið mál.
Ekki væri til nein ein lausn og því
hefði nefndin sett fram margar tillög-
ur. Hann sagði að ef farið yrði eftir
öllum tillögunum myndi það marka
tímamót og slysum af völdum lausa-
göngu búfjár myndi fækka.
Tók hann dæmi um vegarkafla á
þjóðvegi 1 þar sem mismunandi að-
ilar kæmu að sem eigendur land-
svæðis og eftirlitsaðilar girðinga. Til
þessa hefði enginn einn aðili axlað
ábyrgð á girðingunum. Með sínum til-
lögum vonaðist nefndin til þess að
þetta yrði einfaldað með skipulagðri
aðkomu Vegagerðarinnar, sveitar-
félaga og landeigenda.
Ólafur R. Dýrmundsson, fulltrúi
Bændasamtakanna í nefndinni, lýsti
yfir ánægju sinni með skýrsluna og
tillögurnar. Loksins væru komnar
fram raunhæfar tillögur að lausn
vandans. Mælti hann sérstaklega
með vegrásum eða undirgöngum,
ekki síst fyrir stórgripi og kúabænd-
ur, og sagði góða reynslu af slíkum
göngum á Austurlandi.
Fjölfarnir vegir verði
friðaðir fyrir ágangi búfjár
Morgunblaðið/Ásdís
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra kynnir lokaskýrslu vegasvæðanefndar og við hlið hans sitja Níels Árni
Lund, formaður nefndarinnar (t.v.), og Guðmundur B. Helgason, ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðuneytinu.
Nefnd með tillögur til lausnar á lausagöngu búfjár við þjóðvegi landsins
HVALUR hf., útgerðarfyrir-
tækið sem gerir frystitogar-
ann Venus út, gekkst undir
dómsátt í Tromsö í Noregi á
laugardag og samþykkti að
greiða rúmlega 1,7 milljónir
króna fyrir að hafa ekki staðið
rétt að smáfiskaskilju sem var
um borð.
Venus var staðinn að meint-
um ólöglegum veiðum í Bar-
entshafi á föstudag og kom
norska strandgæslan með
skipið til hafnar í Tromsö á
laugardagsmorgun. Réttað
var í málinu á laugardag og
segir Kristján Loftsson, for-
stjóri Hvals hf., að málinu sé
lokið og hefur Venus haldið til
veiða á ný. Aðspurður sagðist
Kristján sáttur við niðurstöð-
una úr því sem komið var en
það væri ávallt slæmt að
missa úr tvo daga í veiðum.
Venus fór til veiða um miðjan
febrúar og kemur aftur til
landsins að hálfum mánuði
liðnum.
Kristján sagði að venjulega
væri notuð önnur gerð smá-
fiskaskilju um borð við veiðar
við Ísland en Norðmenn vildu
að önnur gerð með keðjum
væri notuð við veiðar við Nor-
eg. Hann sagði að strekkst
hefði á keðjunum á þeim tíma
sem Venus var við veiðar og
það væri yfirsjón áhafnar að
skoða ekki smáfiskaskiljuna
þann tíma sem hún var við
veiðar.
Hann benti hins vegar á að
í raun hefði það ekki átt að
koma að sök því Venus var við
veiðar á þorski en ekki smá-
fiski.
Dómsátt í
Tromsö
og Venus
aftur til
veiða