Morgunblaðið - 06.03.2001, Qupperneq 22
AKUREYRI
22 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VASKIR starfsmenn Flutninga-
miðstöðvar Norðurlands, FMN,
tóku þátt í allsherjar hreingern-
ingu á vinnustað sínum á dögunum,
en á síðustu árum hefur verið efnt
til slíks hreingerningardags tvisvar
á ári. Nú er stefnt að því að fjölga
hreingerningardögunum og hafa
þá að lágmarki þrisvar sinnum á
ári. Þetta er liður í að framfylgja
reglum gæðakerfis fyrirtækisins,
GÁMES, en FMN fékk slíka vott-
un í byrjun júlí í fyrra.
Bílar, vöruhús, skrifstofur og
starfsmannaaðstaða eru þrifin hátt
og lágt auk þess sem einnig er tek-
ið til hendinni á útivistarsvæðum.
Vörum er á meðan komið fyrir á
öruggum stað og allir rekkar þrifn-
ir, loft, gluggar, veggir, ljós og
hvað sem á vegi manna verður.
Starfsmenn hafa verið jákvæðir
og duglegir að mæta en fjölskyldur
þeirra hafa einnig tekið þátt í þess-
um degi. Sérstaklega hafa börnin
gaman af þátttöku, en þau fá að
prófa ýmis tæki, eins og hand-
tjakka, vigtar og fleira og einnig
eru teknar myndir af þeim í lyft-
urum og bílum. Hreingerningar-
deginum lýkur með heilmiklu grilli
að loknu vel heppnuðu dagsverki.
Tilgangur þessa dags er marg-
þættur, en auk þess að framfylgja
GÁMES stuðlar hann einnig að
betra vinnuumhverfi og þjappar
starfsfólki og fjölskyldum þeirra
saman.
Starfsfólkið hreinsaði hjá FMN
Heilmikið fjör á
hreingerningardegi
Bílar, vöruhús, skrifstofur og
starfsmannaaðstaða voru þrifin
auk þess sem tekið var til hend-
inni á útivistarsvæðum.
Hreingerningardeginum lauk með heilmikilli grillveislu.
sagði Magnús Jónsson veðurstofu-
stjóri. Hann sagðist vonast til þess
að með þessu verði unnt að efla rann-
sóknarstarfsemi Veðurstofunnar
auk þess sem hún fengi aðgang að
ungu fólki sem hugsanlega geti síðar
lagt fyrir sig nám á þessu sviði, en
störf sem tengdust veðurstofunni
væru af margvíslegum toga. „Það er
okkur mikilvægt að komast í tengsl
við þann mannauð sem til staðar er í
háskólanum,“ sagði Magnús.
Augljós ávinningur
af samstarfinu
Háskólinn á Akureyri mun veita
Landmælingum aðstöðu til að koma
upp fastri gervitunglalandmælinga-
stöð (GPS) í húsakynnum sínum án
gjaldtöku, en Landmælingar leggja
til tækjabúnað og kosta uppsetningu
stöðvarinnar. Starfsmenn háskólans
sjá um nettengingu stöðvarinnar og
sinna reglubundnu eftirliti. Stefnt er
að því að gögn stöðvarinnar verði að-
gengileg almenningi og að þau muni
nýtast við kennslu í umhverfisvökt-
un.
Magnús Guðmundsson, forstjóri
Landmælinga Íslands, sagði ávinn-
ing af samstarfinu augljósan, en m.a.
væri verið að skapa tengsl við vís-
indasamfélagið innan háskólans.
Hann benti á að skortur væri á sér-
fræðingum á ýmsum sviðum land-
mælinga og gera þyrfti átak í því efni
en samstarfið gæti ef til vill orðið til
að bæta þar úr í framtíðinni. Þá sagði
hann einnig mikilvægt að koma upp
GPS-stöð á Akureyri en fyrir væru
slíkar stöðvar á Höfn í Hornafirði og
við Háskóla Íslands.
SAMNINGAR milli Háskólans á
Akureyri við tvær stofnanir, Veður-
stofu Íslands og Landmælingar Ís-
lands, hafa verið undirritaðir, en þeir
fela í sér samstarf til að efla rann-
sóknir og kennslu á sviði náttúru- og
umhverfisvísinda.
Samstarfið við Veðurstofuna nær
m.a. til jarðvísinda, veðurfræði og
umhverfisvöktunar, en við Land-
mælingar nær það m.a. til landmæl-
inga og umhverfisvöktunar. Þor-
steinn Gunnarsson rektor, Há-
skólans á Akureyri, sagði að lögð
væri áhersla á það í háskólanum að
efla náttúruvísindi og umhverfis-
fræði og því vildi hann gjarnan eiga
samstarf við þá sem starfa á því
sviði. Þorsteinn sagði því mikilvægt
að hefja nú formlegt samstarf við
þessar stofnanir.
Vonandi vísir að
einhverju meira
Veðurstofan stefnir að því að
koma upp aðstöðu fyrir tvo starfs-
menn í nýju rannsóknahúsi háskól-
ans þegar það rís, en til bráðabirgða
mun háskólinn veita einum starfs-
manni Veðurstofunnar, Ragnari
Stefánssyni jarðskjálftafræðingi, að-
stöðu í núverandi húsnæði háskól-
ans. Þá mun Veðurstofan koma upp
og reka sjálfvirka veðurathugunar-
stöð á Végeirsstöðum í Fnjóskadal,
skógræktar- og rannsóknajörð í eigu
Háskólans á Akureyri. Einnig verð-
ur sjálfvirkri veðurstöð komið upp á
Akureyri í samvinnu við háskólann.
Stefnt er að því að gögn stöðvarinnar
verði aðgengileg almenningi og að
þau muni nýtast til kennslu í um-
hverfisfræðum.
„Þetta skref sem nú er stigið er
vonandi vísir að einhverju meira,“
Háskólinn á Akureyri, Veðurstofan og Landmælingar
Samstarf til að efla
rannsóknir í náttúru- og
umhverfisvísindum
Morgunblaðið/Kristján
Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga ríkisins, afhenti Þor-
steini Gunnarssyni, rektor Háskólans á Akureyri, fána stofnunarinnar
að lokinni undirskrift. Þorsteinn rektor skrifaði einnig undir samning
við Magnús Jónsson veðurstofustjóra, sem situr við borðið.
MJÖG slæmt veður var austan Ak-
ureyrar og með ströndinni austur
frá Húsavík í gærmorgun. Ófært
var frá Akureyri til Dalvíkur og
Ólafsfjarðar og á Akureyri tók að
snjóa nokkuð aðfaranótt mánu-
dags. Klukkan níu í gærmorgun var
kominn 15 sentimetra jafnfallinn
snjór sem skóf víða í skafla á götum
bæjarins. Nokkuð blint varð í skaf-
renningnum og starfsmenn bæj-
arins hófust snemma handa við að
opna helstu umferðargötur með
snjóruðningstækjum, þannig að
ófærð varð ekki vegfarendum til
trafala og gekk umferðin að mestu
snurðulaust fyrir sig, að sögn lög-
reglunnar. Fáir lentu í því að festa
bíla sína, nema helst þá í innkeyrsl-
um og á fáfarnari götum.
Mjög snjólétt hefur verið framan
af vetri á Norðausturlandi miðað
við árstíma, þó að víða hafi verið
ófært í gær vegna snjókomu og
skafrennings. Ekki varð þó eins
mikill vindur og búist var við og
síðdegis í gær var farið að draga
verulega úr snjókomu og vindi og
ljóst að vetrarríkið mun ekki
standa lengi að þessu sinni norð-
anlands. Samkvæmt spá frá Veð-
urstofunni er búist við hlýnandi
veðri næstu daga með austlægum
áttum og rigningu fram að næstu
helgi og er gert ráð fyrir hlýju
veðri fram á sunnudag.
Fannfergi á Akureyri
eftir snjóléttan vetur
Ljósmynd/Rúnar Þór
Börn á Akureyri gleðjast jafnan yfir fannferginu sem annars staðar og
nota tækifærið til að grafa snjógöng í háum ruðningum. Hér eru þau
Hjördís og Stefán efst á skaflinum en Sigþór liggur fyrir framan.
Starfsmenn bæjarins hófust snemma handa við að hreinsa götur. Mynd-
in er tekin á Brekkunni, á horni Þingvallastrætis og Kaupvangsstrætis.
Arnaldur bæjarstarfsmaður
burstar snjó af umferðarljósum.