Morgunblaðið - 06.03.2001, Side 32
ERLENT
32 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Á NÆSTU 50 árum mun mann-
fjöldi í fátæku ríkjunum þrefaldast
en fólkinu mun aftur á móti fækka í
velmegunarríkjunum. Kemur þetta
fram í nýrri skýrslu frá Sameinuðu
þjóðunum en í henni segir, að
mannfjöldinn í heiminum, sem nú
er 6,1 milljarður, verði 9,3 millj-
arðar eftir hálfa öld.
Eftir hálfa öld munu níu af hverj-
um tíu mönnum búa í þróunarríkj-
unum og einn af hverjum sex í Ind-
landi. Búist er við mannfjölgunar-
sprengingu í Afríku, stórum
hlutum Asíu og Rómönsku Ameríku
og vegna innflytjendastraumsins til
Bandaríkjanna verður íbúafjöldinn
þar orðinn 400 millj. eftir hálfa öld.
Í Evrópu horfir öðruvísi við og
komi ekki til innflytjendur mun
Úkraínumönnum fækka um 40% á
næstu 50 árum og Ítölum og Rúss-
um um fjórðung. Þróunin stefnir
einnig til fækkunar í Evrópusam-
bandsríkjunum almennt þótt fólk-
inu hafi raunar fjölgað þar um
343.000 á síðasta ári. Það var sama
fjölgun og á Indlandi á einni viku.
Fyrir hálfri öld voru Evrópu-
menn 22% jarðarbúa og Afríku-
menn 8% en nú eru hvorir tveggja
13%. Eftir 50 ár verða Afríkubúar
þrisvar sinnum fleiri hvað sem líður
alnæmishörmungunum.
Fyrir utan hugsanlega fólks-
fækkun í velmegunarríkjunum er
mesta áhyggjuefnið það, að með-
alaldur íbúanna hækkar stöðugt.
1998 var fimmtungur Evrópu-
manna 60 ára eða eldri en verða ef
til vill orðnir rúmur þriðjungur
2050 og börnin aðeins 14%. Er
raunar búist við verulegum
vandræðum þegar stóru ár-
gangarnir, sem fæddust eftir stríð,
fara að draga sig í hlé á vinnu-
markaði.
Mikil fjölg-
un í fátæk-
um ríkjum
Sameinuðu þjóðunum. AP.
Reuters
Nýfædd börn á sjúkrahúsi í
Singapore. Búist er við mikilli
mannfjölgun í Asíu, Afríku og
Rómönsku Ameríku á næstu
áratugum.
Mannfjöldaspá
Sameinuðu þjóðanna
FÆREYINGAR halda réttinum til
allra tekna af hugsanlegri olíu-
vinnslu í færeyska landgrunninum.
Óska hvorki danska ríkisstjórnin né
danska þingið þess að samningar
sem færeysk og dönsk stjórnvöld
gerðu þar að lútandi árið 1992 verði
teknir upp að nýju eins og rætt hefur
verið um undanfarnar vikur í Dan-
mörku.
Þetta kom fram á fundi sem Poul
Nyrup Rasmussen, forsætisráð-
herra Dana, átti með fjármála- og
Færeyjanefnd danska þingsins á
miðvikudag. Rasmussen lagði fram
lögfræðilega athugun sem forsætis-
ráðuneytið lét framkvæma á samn-
ingi þeim sem Poul Schlüter, þáver-
andi forsætisráðherra Dana, gerði
við Færeyinga um olíuna. Nokkrir
danskir fjölmiðlar, einkum Extra
Bladet, hafa gagnrýnt hann fyrir að
færa Færeyingum olíuna á silfurfati
þar sem Danir hafi afsalað sér öllum
rétti til olíunnar. Niðurstaða athug-
unar forsætisráðuneytisins var sú að
Schlüter hefði ekki hafst neitt rangt
að, samningurinn stæðist lög og að
hann hefði upplýst þingið um alla
mikilvægustu þætti málsins. Þó var
á því ein undantekning, Schlüter
sagði þinginu ekki að Færeyingar
kynnu að fallast á að skipta réttinum
til landgrunnsins og telur Nyrup
Rasmussen það gagnrýnivert. Ekki
þó svo að rétt sé að taka samninginn
upp.
Niðurstaðan nýtur stuðnings allra
þingflokka nema Danska þjóðar-
flokksins sem krefst þess að samið
verði að nýju um réttinn til að nýta
færeyska landgrunnið. Venstre, sem
sat í stjórn Schlüters, telur að ekki
hefði verið hægt að komast að hag-
stæðari niðurstöðu en Schlüter gerði
og í sama streng taka jafnaðarmenn
sem voru í stjórnarandstöðu er
samningurinn var undirritaður.
Poul Schlüter sýknaður af ásökunum um samningsklúður
Ekki hróflað
við olíusamningi
við Færeyjar
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
BRESKA stjórnin tilkynnti í gær, að
lágmarkslaun í landinu yrðu hækkuð
um 10% í október nk.
Lög um lágmarkslaun í Bretlandi
voru sett fyrir tveimur árum og
verða frá og með október um 610 ís-
lenskar krónur á klukkutíma. And-
stæðingar laganna héldu því fram á
sínum tíma, að þau myndu kynda
undir verðbólgu og atvinnuleysi en
það hefur ekki ræst enda hefur árað
vel í bresku efnahagslífi. Stephen
Byers, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, sagði í gær, að lágmarkslaun-
in tryggðu, að það borgaði sig að
vinna.
Lágmarks-
laun hækkuð
London. AFP.
♦ ♦ ♦