Morgunblaðið - 06.03.2001, Side 35
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 35
Veisluna heim
Þórarinn Guðmundsson
matreiðslumeistari
Leigjum út veislusal Ferðafélags Íslands í Mörkinni í Reykjavík – Brúðkaupsveislur í allt sumar!
Smiðjuvegi 14, 200 Kópavogi, sími 587 3800, fax 587 3801, www. veislusmidjan.is
FERMINGARVEISLUR, BRÚÐKAUP, STÓRAFMÆLI, ERFIDRYKKJUR
ÁRSHÁTÍÐIR, FUNDIR OG SAMKOMUR Í SAL FERÐAFÉLAGSINS Í MÖRKINNI
EÐA HEIMA Í STOFU!
NÚ ER RÉTTI TÍMINN TIL AÐ PANTA FERMINGARVEISLUNA OG BRÚÐKAUPIÐ.
FLESTIR FERMINGARDAGANIR ERU FULLBÓKAÐIR Í VEISLUSAL OKKAR EN VIÐ
GETUM BÆTT VIÐ OKKUR FERMINGARVEISLUM HEIM Í STOFU.
Skipholti 35 sími 588 1955
King
Koil
Ein mesta selda heilsudýnan í heiminum
Alþjóðasamtök Chiropractora mæla með
King Koil heilsudýnunum.
Amerískar lúxus
heilsudýnur
Tilboð!
YOSHIRO Mori, forsætisráðherra
Japans, hélt velli í gær þegar neðri
deild þingsins greiddi atkvæði um
vantrauststillögu stjórnarandstöð-
unnar en samstarfsmenn hans í
stjórninni bjuggu sig þó undir að
koma honum frá. 480 þingmenn eiga
sæti í neðri deildinni og 274 þeirra
greiddu atkvæði á móti vantrausts-
tillögunni en 192 með.
„Við höfum klifið eitt fjall en annar
brattur tindur bíður okkar,“ sagði
Junichiro Koizumi, leiðtogi fylkingar
Moris í Frjálslynda lýðræðisflokkn-
um, stærsta stjórnarflokknum.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
gerðu harða hríð að Mori vegna ým-
issa axarskafta hans sem hafa orðið
til þess að hann er nú einn af óvin-
sælustu forsætisráðherrunum í sögu
landsins.
Mori virtist gera sér grein fyrir
því að hann væri valtur í sessi en lof-
aði að beita sér fyrir því að frumvörp
stjórnarinnar yrðu samþykkt á
þinginu og að reyna að endurheimta
traust kjósenda.
Búist er þó við að þingmenn
stjórnarinnar herði baráttu sína fyr-
ir því að Mori víki úr stjórninni til að
auka líkurnar á því að stjórnarflokk-
arnir sigri í kosningum til efri deild-
ar þingsins í júlí. Stjórnin myndi
ekki þurfa að segja af sér strax ef
flokkarnir biðu ósigur en það gæti
valdið pattstöðu á þinginu sem yrði
til þess að efna þyrfti til kosninga til
neðri deildarinnar löngu áður en
kjörtímabili hennar lýkur árið 2004.
Samstarfsmenn Moris hafa þegar
gefið til kynna að þeir vilji koma hon-
um frá. Takenori Kanzaki, leiðtogi
næststærsta stjórnarflokksins, Nýja
Komeito-flokksins, kvaðst vilja að
Mori tæki skýra ákvörðun um hvort
hann hygðist halda embættinu fyrir
landsfund Frjálslynda lýðræðis-
flokksins á þriðjudaginn kemur.
Chikage Ogi, leiðtogi Nýja íhalds-
flokksins, minnsta stjórnarflokksins,
neitaði að svara því hvort niðurstaða
atkvæðagreiðslunnar í gær þýddi að
Mori hefði fengið gálgafrest. „Það er
undir Frjálslynda lýðræðisflokknum
komið hvað gerist næst,“ sagði hann.
Fimmtán þingmenn Frjálslynda
lýðræðisflokksins sendu leiðtogum
flokksins bréf þar sem þeir kröfðust
þess að Mori tilkynnti strax hvort
hann hygðist segja af sér. Allir
fulltrúar flokksins á héraðsþingi
Akita í norðurhluta landsins kröfð-
ust þess í bréfi til flokksins að Mori
léti strax af embætti.
Óvissa um eftirmanninn
Óvissan um örlög forsætisráð-
herrans og vísbendingar um að al-
varleg efnahagskreppa sé yfirvof-
andi hafa orðið til þess að gengi
japanskra hlutabréfa hefur lækkað.
Nikkei-vísitalan hefur lækkað um
8% á einum mánuði og hefur ekki
verið jafnlág í 15 ár.
Talið er að erfitt verði fyrir stjórn-
arflokkana að ná samkomulagi um
eftirmann Moris. Nýi Komeito-
flokkurinn og Nýi íhaldsflokkurinn
vilja að hann víki fyrir Hiromu Non-
aka, gömlum stjórnmálarefi sem
valdi Mori í forsætisráðherraemb-
ættið á bak við tjöldin í apríl ásamt
þremur öðrum áhrifamönnum í
Frjálslynda lýðræðisflokknum.
Nonaka hefur þó sagt að hann hafi
ekki hug á að taka við embættinu og
margir ungir þingmenn Frjálslynda
flokksins óttast að orðspor hans sem
baktjaldamakkara styggi kjósendur
sem hafa fengið nóg af leynimakki
flokksins.
Koizumi, leiðtogi fylkingar Moris,
og Ryutaro Hashimoto, fyrrverandi
forsætisráðherra, eru einnig taldir
koma til greina í embættið.
Japanska þingið hafnar vantrauststillögu
Stjórnarþingmenn
reyna að koma Mori frá
Tókýó. Reuters.
AP
Yoshiro Mori, forsætisráðherra
Japans, umkringdur frétta-
mönnum eftir að neðri deild jap-
anska þingsins felldi vantrausts-
tillögu stjórnarandstöðunnar.
MOHAMMAD Omar, æðsti leið-
togi Taliban-hreyfingarinnar í
Afganistan, varði í gær þá til-
skipun sína að allar styttur í
landinu yrðu eyðilagðar og
sagði að afganskir múslímar
ættu að vera stoltir af því að
framfylgja henni.
„Þeir Afganar sem gagnrýna
tilskipunina verða sér til
skammar,“ sagði Omar og
áréttaði þá túlkun sína á lög-
málum íslam að eyðileggja bæri
stytturnar og koma í veg fyrir
„skurðgoðadýrkun“.
Omar fyrirskipaði liðs-
mönnum sínum í vikunni sem
leið að eyðileggja allar styttur í
Afganistan, meðal annars tvö
risastór Búddha-líkneski sem
höggvin voru í klett í héraðinu
Bamiyan fyrir að minnsta kosti
1.500 árum. Annað þeirra er 53
metra hátt og hitt 36,5 metra.
Óljóst var í gær hvort talib-
anar væru byrjaðir að eyði-
leggja líkneskin í Bamiyan.
Heimildarmaður úr röðum tal-
ibana í Kabúl sagði á sunnudag
að líkneskin væru enn óskemmd
en aðrir embættismenn hafa
sagt að talibanar séu þegar
byrjaðir að eyðileggja þau,
meðal annars með sprengjum.
Menningarmálastofnun Sam-
einuðu þjóðanna, UNESCO,
kvaðst í gær vona að hægt yrði
að bjarga líkneskjunum.
Talibanar segjast hafa mölv-
að styttur í nokkrum söfnum í
Afganistan frá því að Omar gaf
tilskipunina út í vikunni sem
leið.
Omar sakaði breska ríkis-
útvarpið BBC og fleiri vestræna
fjölmiðla um að hafa hafið her-
ferð gegn Kóraninum, trúarbók
múslíma, og skoraði á múslíma
í Afganistan og út um allan
heim að styðja tilskipuna. „Ég
bið múslíma Afganistans að
hræðast ekki þrýsting heiðingj-
anna og styðja þá ekki.“
Ágreiningur
meðal Afgana
Burhanuddin Rabbani, leið-
togi afganskra andstæðinga
Taliban-stjórnarinnar, for-
dæmdi tilskipunina og lýsti
henni sem tilræði við menning-
ararf afgönsku þjóðarinnar.
Íslamskir klerkar í Afgan-
istan skoruðu hins vegar á Om-
ar að hvika hvergi frá tilskip-
uninni.
Margir Afganar, þeirra á
meðal nokkrir embættismenn
Taliban-stjórnarinnar, eru
þeirrar skoðunar að varðveita
eigi stytturnar þar sem þær séu
ekki lengur dýrkaðar. Nokkrir
þeirra telja að verði fallið frá
tilskipuninni geti það leitt til
klofnings í Taliban-hreyfing-
unni.
Leiðtogi Taliban
ver tilskipun sína
um líkneskin
Reuters
Búddha-munkur í Bombay kveikir í eftirmynd Mohammads Om-
ars, leiðtoga Taliban, til að mótmæla tilskipun hans um að allar
styttur í Afganistan verði eyðilagðar, m.a. forn Búddha-líkneski.
Kabúl. Reuters.