Morgunblaðið - 06.03.2001, Side 55
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 55
Umboðs- og heildverslun
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609
Netverslun - www.isold.is
Hjóla-
Heildarlausnir
fyrir fyrirtækið
skápar
Hámarksnýting rýmis
Á FUNDI um mál-
efni Reykjavíkurflug-
vallar í Ráðhúsi
Reykjavíkur sunnu-
daginn 18. febrúar síð-
astliðinn lýsti sá sem
þetta ritar afstöðu
Flugmálastjórnar til
nokkurra þeirra kosta,
sem verið hafa til um-
fjöllunar á undanförn-
um mánuðum varðandi
framtíð flugvallarins.
Eitthvað virðist þetta
hafa farið fyrir brjóstið
á Agli Helgasyni og
Merði Árnasyni, sem
hafa ráðist að undirrit-
uðum af nokkru offorsi.
Tvær ástæður virðast liggja að baki
þessum viðbrögðum. Í fyrsta lagi sé
óviðeigandi af flugmálastjóra að
hafa einhverja skoðun á málefni,
sem þeir telja að eigi alfarið að vera í
höndum stjórnmálamanna. Hins
vegar virðist afstaða Flugmála-
stjórnar, sem lýst var í stuttu máli á
fundinum, ekki falla í kramið hjá
þeim félögum. Því sé best að ráðast
að þeim, sem hana kynnir.
Varðandi fyrra atriðið er það að
segja, að eitt af hlutverkum Flug-
málastjórnar Íslands er að veita
stjórnvöldum og almenningi upplýs-
ingar og ráðgjöf á sviði flugmála.
Þetta kemur vel fram í 2. grein
reglugerðar um Flugmálastjórn.
Þar segir orðrétt:
Stofnunin gefur út upplýsingar og
gögn um flugsamgöngukerfið, flug-
umferð og flugflutninga og veitir al-
menningi, atvinnulífi og stjórnvöld-
um ráðgjöf og þjónustu, þar sem
sérþekking hennar kemur að notum,
svo sem vegna skipulagsmála og
mannvirkjagerðar.
Því má segja, að Flugmálastjórn
væri að bregðast skyldum sínum, ef
stofnunin léti ekki í ljós afstöðu sína
varðandi eins mikilvægt mál og
framtíð miðstöðvar innanlandsflugs-
ins er fyrir flugsamgöngukerfið.
Reykjavíkurborg leitaði reyndar eft-
ir þátttöku Flugmálastjórnar í þeirri
vinnu, sem fram hefur farið á und-
anförnum mánuðum vegna atkvæða-
greiðslu um framtíð Reykjavíkur-
flugvallar. Aðstoðarmaður
borgarstjóra óskaði eftir því, að
flugmálastjóri væri einn framsögu-
manna á framangreindum fundi,
væntanlega með það í huga. Þessi
samvinna er ekki ný af nálinni því
stofnunin hefur átt mikið og gott
samstarf við embættismenn og
kjörna fulltrúa borgarinnar um mál-
efni Reykjavíkurflugvallar um langt
árabil. Þetta samstarf hefur verið
mjög umfangsmikið á síðastliðnum
fimm árum og m.a. falist í vinnu við
gerð deiliskipulags fyrir flugvallar-
svæðið og úttekt Hagfræðistofnunar
Háskólans á þjóðhagslegri hag-
kvæmni flugvallarins. Sú skipu-
lagsvinna, sem fram hefur farið á
undanförnum mánuðum á vegum
Flugmálastjórnar, er í rökréttu
framhaldi af þessu samstarfi. Mark-
mið hennar er fyrst og fremst að
kanna helstu skipulagskosti vegna
nýrrar samgöngumiðstöðvar á flug-
vallarsvæðinu, sem er í undirbúningi
samkvæmt ákvörðun samgönguráð-
herra, auk þess að bæta ástand og
ásýnd flugvallarins og nýta betur
landið umhverfis hann.
Hvað varðar kostina, sem fram
hafa komið um framtíðarmiðstöð
innanlandsflugsins, þá hefur það
lengi verið afstaða Flugmálastjórnar
og Flugráðs að aðeins tveir raun-
hæfir kostir séu í stöðunni. Annað-
hvort sé um að ræða að halda áfram
rekstri Reykjavíkurflugvallar í
Vatnsmýrinni eða flytja þessa mið-
stöð til Keflavíkurflugvallar. Miklar
athuganir, sem fram hafa farið á
vegum samvinnunefndar um svæð-
isskipulag höfuðborgarsvæðisins
hafa ekki leitt neitt í ljós, sem gefur
tilefni til að breyta þessari afstöðu.
Flugvöllur í Hvassa-
hrauni, sem mörgum
hefur orðið tíðrætt um,
kemur fyllilega til
greina sem flugvöllur
fyrir kennsluflug,
einkaflug og annað
flug léttra flugvéla.
Reyndar hefur nú um
nær tveggja ára skeið
verið unnið á vegum
Flugmálastjórnar að
athugunum á flugvall-
arstæði fyrir æfingar-
flug í Afstapahrauni,
sem er í næsta ná-
grenni Hvassahrauns.
Til flugvallar af þessu
tagi eru hins vegar
gerðar allt aðrar kröfur varðandi
nýtingu en til miðstöðvar innan-
landsflugsins. Slík miðstöð verður
helst að vera opin, ef á annað borð
gefur veður til flugs til einhvers
áfangastaðar úti á landsbyggðinni.
Flest bendir til þess, að flugvöllur
í Hvassahrauni geti ekki uppfyllt
þær kröfur, sem gera verður til
þessarar miðstöðvar. Þetta álit
byggist ekki aðeins á flugprófunum,
sem gerðar voru fyrir þremur ára-
tugum, og leiddu í ljós, að flugvöllur
í Kapelluhrauni, sem er á næsta leiti
við Hvassahraun, mundi hafa mun
lægra nýtingarhlutfall en Reykja-
víkurflugvöllur. Útreikningar, sem
gerðir voru af þýskum sérfræðing-
um á vegum samvinnunefndarinnar,
sýna að flugvöllur í Hvassahrauni
mundi hafa 1,5% lægra nýtingar-
hlutfall en Reykjavíkurflugvöllur
vegna hliðarvinds og lenda neðan
þeirra marka, sem miðað er við sam-
kvæmt alþjóðlegum kröfum. Fyrr-
nefndar flugprófanir leiddu í ljós, að
þessi munur mundi aukast um a.m.k.
1,5% til viðbótar vegna minna
skyggnis og lægri skýjahæðar, enda
er Hvassahraun um 40 metrum
hærra yfir sjávarmáli en Reykjavík-
urflugvöllur. Hefur þá ekki verið
tekið tillit til ókyrrðar í lofti, sem
samkvæmt framangreindum flug-
prófunum og reynslu fjölda flug-
manna mundi takmarka flug á þessu
svæði mun oftar en á Reykjavíkur-
flugvelli.
Þá er fullkominn flugvöllur í
Hvassahrauni með tilheyrandi að-
flugs- og fráflugsleiðum svo nálægt
Keflavíkurflugvelli og afstaða flug-
brautanna með þeim hætti, að um-
ferð flugvéla í blindflugi til og frá
þessum tveimur flugvöllum mundi
oft valda gagnkvæmum truflunum
og meðfylgjandi seinkunum á flug-
taki og lendingu, þegar vindur er
austanstæður eða vestlægur. Einnig
má draga í efa að skynsamlegt væri
að fara út í svo mikla fjárfestingu,
sem bygging nýs innanlandsflugvall-
ar útheimtir, þegar fullkomnasti
flugvöllur landsins er innan við 20
mínútna aksturstíma frá Hvass-
ahrauni. Þessi tími mun væntanlega
styttast nokkuð með tilkomu tvö-
faldrar Reykjaneshraðbrautar. Í
þessu sambandi má geta þess, að
hinn nýi flugvöllur mundi kosta
a.m.k. 7 milljarða króna. Til sam-
anburðar þá eru allar fjárfestingar
íslenska ríkisins í flugvöllum á Ís-
landi (utan Keflavíkurflugvallar) í
meira en hálfa öld metnar á um 10
milljarða króna á verðlagi ársins
2000.
Afstaða Flugmálastjórnar til
hinna ýmsu valkosta vegna framtíð-
armiðstöðvar innanlandsflugsins var
tíunduð í skýrslu, sem samvinnu-
nefnd um svæðisskipulag höfuð-
borgarsvæðisins sendi borgarstjórn
Reykjavíkur í janúar síðastliðnum.
Þar kemur m.a. fram, að stofnunin
telji flugvöll sunnan Hafnarfjarðar
(síðar kenndan við Hvassahraun)
„ekki fýsilegan kost fyrir framtíð-
armiðstöð innanlandsflugsins“ af
þeim ástæðum, sem hér hafa verið
raktar. Sú afstaða, sem lýst var á
ráðhússfundinum 18. febrúar síðast-
liðinn, var því ekki annað en árétting
á því mati, sem flugmálayfirvöld
höfðu áður komið á framfæri við
borgaryfirvöld og höfðu verið birt
opinberlega í framangreindri
skýrslu samvinnunefndarinnar.
Hlutverk og skyldur
Flugmálastjórnar
Þorgeir
Pálsson
Höfundur er flugmálastjóri.
Flugvallarmál
Flugmálastjórn væri að
bregðast skyldum
sínum, segir Þorgeir
Pálsson, ef stofnunin
léti ekki í ljós afstöðu
sína varðandi eins mik-
ilvægt mál og framtíð
miðstöðvar innanlands-
flugsins er fyrir flug-
samgöngukerfið.
annan hvern
miðvikudag