Morgunblaðið - 06.03.2001, Page 58
UMRÆÐAN
58 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Á Landakotstúninu
spölkorn vestur af
Kristskirkju, í jaðri
skólaþyrpingarinnar
sem þar hefur verið
byggð upp á undan-
förnum árum, stendur
gamla kirkjuhúsið,
forveri núverandi
kirkju, nokkurs konar
móðir hennar, og hef-
ur um árabil gegnt
hlutverki íþróttahúss
og verið kennt við ÍR.
Sú bygging var upp-
haflega reist 1897
nokkru vestar en hún
er nú, nálægt þeim
stað þar sem Krists-
kirkja stendur. Húsið var þá prýtt
stórum gluggum, m.a. á gafli yfir
altari, turn var yfir miðju þaki með
kirkjuklukkum og þaðan var kallað
til tíða.
Þegar nýja kirkjan var reist
rúmum 30 árum síðar þurfti að
færa gamla húsið til og það var því
dregið á keflum upp hæðina og sett
þar á nýjan steyptan kjallara, þar
sem það stendur nú. Klætt var yfir
klæðningar þess og burðarvirki að
innan með krossviðarklæðningu og
húsið tekið í notkun sem íþróttahús
og hefur gegnt því hlutverki þar til
á árinu sem leið.
Húsið er í öllum að-
alatriðum enn í prýði-
legu ástandi. Klæðn-
ingar og allur frá-
gangur þess að utan
hefur látið á sjá af
mikilli notkun, sem
eðlilegt er. Hið innra
er húsið stráheilt og
burðarvirki þess sem
nýtt, það er mjög vel
viðað með sérstæðum
frágangi við sperru-
enda og hefur það gef-
ið salnum fallegt yf-
irbragð.
Eins og málin
standa nú þrengir
þetta hús að frekari
þróun og uppbyggingu skólans, að-
koman að honum er erfið á blá-
horni mikillar umferðargötu.
Því liggur ljóst fyrir að húsinu
þarf að finna annan stað. Í því efni
hafa ýmsir kostir verið ræddir.
Fyrir nokkrum árum var sett fram
tillaga um flutning á húsinu aftur
nær sínum fyrri stað austar á
Landakotshæðinni, sbr. ljósmynd
af líkani sem hér fylgir.
Með því móti gat margt unnist:
Minningu og sögu safnaðar og húss
væri sýnd virðing og sómi með því
að kirkjuhúsið gamla fengi nýtt
hlutverk nálægt sínum fyrri stað.
Losað yrði um rými á lóð skólans
við umferðarhornið og tækifæri
skapaðist til nýrrar skipulagningar
þar.
Fyrir framan Kristskirkju yrði
myndað skemmtilegt rými, nokk-
urs konar kirkjutorg sem tengdi
saman gömlu kirkjuna til annarrar
handar og prestsbústaðinn og skól-
ann til hinnar. Fallegt heildstætt
skipulag kirkju, safnaðarheimilis
og skóla. Tillögu þessa gerði Knút-
ur Jeppesen arkitekt.
Tillagan hefur þó ekki náð fram
að ganga, kannski orðið hornreka í
málarekstri um eignarhald á hús-
inu og skyldur og rétt í því samb-
andi sem er ekki efni þessarar
greinar.
Niðurstaða þess hefur hins veg-
ar orðið sú að við blasir flutningur
hússins á óvissan stað.
Til þess er þessi greinarstúfur
skrifaður að vekja athygli á þessu
litla máli á ný, sem gæti þó haft svo
augljósa farsæla og einfalda lausn,
og til að hvetja af einlægni til þess
að ráðamenn þessara hluta taki
höndum saman og finni leiðina að
henni.
Húsinu þarf að sjálfsögðu að
finna nýtt hlutverk, en varla verð-
ur það að vandamáli, söfnuður
kirkjunnar, íbúasamtökin, félög og
klúbbar gætu náð samkomulagi við
eiganda eða rekstraraðila, söng-
hópar, leikhópar, litlar sýningar
o.s.frv. Möguleikarnir eru legio.
Ágætu borgaryfirvöld, forsvars-
menn kirkjunnar í Landakoti og
aðrir sem að þessu máli geta kom-
ið: Látið nú ekki þetta tækifæri til
að leysa einfaldan hlut renna ykkur
úr greipum.
Um örlög eins
húss vestur í bæ
Stefán Örn
Stefánsson
Húsvernd
Ljóst liggur fyrir að
húsinu þarf að finna
annan stað, segir
Stefán Örn Stefánsson.
Í því efni hafa ýmsir
kostir verið ræddir.
Höfundur býr vestur í bæ.
Ljósmynd af líkani á Borgar-
skipulagi: Guðmundur Ingólfs-
son / Ímynd.
AF FRAMSÝNI og
stórhug byggðu Hafn-
firðingar hjúkrunar-
og dvalarheimilið Sól-
vang fyrir hálfri öld og
völdu til þess sólríkan
og friðsælan stað sem
mótast af Læknum og
hraunjaðrinum með
Hamarinn og höfnina í
sjónmáli. Hinn aldni
og/eða sjúki Hafnfirð-
ingur sem kom til að
dvelja á Sólvangi hafði
öll þessi höfuð kenni-
leiti sem hann hafði
búið svo lengi við í
sjónmáli yrði honum
litið út um stofuglugg-
ann sinn.
Fyrir réttum tíu árum fannst
nokkrum bæjarfulltrúum að tími
væri kominn til að halda þróuninni
áfram. Í Sunnuhlíð í Kópavogi höfðu
verið byggðar íbúðir fyrir aldraða
með nýstárlegum hætti. Þetta þótti
bæjarfulltrúunum mjög athyglis-
vert og félagsmálaráði var falið að
gangast fyrir stofnun áhugamanna-
sveitar til að hrinda verkinu í fram-
kvæmd hvað gert var. Verkalýðs-
félög, þjónustuklúbbar og
áhugamanna félög tóku höndum
saman og stofnuðu Öldrunarsam-
tökin Höfn. Þau hrifust af þeim yf-
irlýsta vilja og ásetningi bæjaryfir-
valda í Hafnarfirði að ætla að helga
Sólvangssvæðið þjónustu við aldr-
aða Hafnfirðinga. Menn sáu glöggt
hversu snjallt var að tengja saman
hjúkrunarheimili, heilsugæslu og
íbúðarsvæði aldraðra.
Þetta hefur einnig verið mat bæj-
aryfirvalda, þegar þau
fólu samtökunum að
gera skipulagstillögur
um byggingu íbúða
fyrir aldraða á Sól-
vangssvæðinu, tillögur
sem síðar voru sam-
þykktar af skipulags-
yfirvöldum. Viðhorf
bæjaryfirvalda var enn
frekar staðfest, þegar
Öldrunarsamtökunum
Höfn var falin umsjá
og eftirlit með öllum
framkvæmdum á
svæðinu, með sérstakri
samþykkt bæjar-
stjórnar og bréfi til
Hafnar um það efni.
Nú er öldin önnur!
Með nýjum herrum koma nýir
siðir og ný viðhorf. Friðsældin og
kyrrðin sem Sólvangsbúar hafa búið
við skal rofin. Skólavöllur með
nokkrum hundruðum af börnum og
unglingum á að koma upp undir
vegg á Sólvangi og skerða það svæði
verulega sem Sólvangur hefur nú.
Orð skulu ekki standa. Þær skipu-
lagstillögur sem samþykktar höfðu
verið og þau fyrirheit sem höfðu
verið gefin um að svæðið yrði helgað
öldruðum Hafnfirðingum er nú lýst
markleysa. Og hvers vegna? Jú, það
gleymdist að gera ráð fyrir í skipu-
lagi nægu rými fyrir nýjan skóla svo
hægt væri að rýma Lækjarskóla er
svarið. Þeirri miklu umferð sem
verður vegna skólans skal nú beint
inn á Sólvangsveg til mikilla óþæg-
inda fyrir aldna íbúa þessa svæðis.
Börn og unglingar nota eðlilega
skólaleikvelli fyrir utan skólatíma.
Því fylgir mikill hávaði langt fram
eftir kvöldum sem verður Sól-
vangsbúum til verulegra óþæginda.
Ekki verður hægt að byggja fleiri
þjónustuíbúðir fyrir aldraða sam-
kvæmt hugmyndum Öldrunarsam-
takanna Hafnar á Sólvangssvæðinu.
Ef svo er þá er
mál að vakna
Grundvöllur lýðræðisins er að
borgarar setji sig inn í mál og hafi
skoðanaskipti við þá sem þeir völdu
til að stjórna. Í þínu tilfelli þinn bæj-
arfulltrúa. Á næstu dögum gefst
tækifæri til að skoða málið á skipu-
lagsuppdráttum, setja sig inn í þau
skoðanaskipti sem fram fara og fella
eigin dóm. Ef þú telur rétt að ganga
á gefin loforð um friðsæla vin fyrir
aldraða Hafnfirðinga á Sólvangs-
svæðinu, ef þú telur rétt að
valda Sólvangsbúum verulegum
óþægindum með hávaða, stórauk-
inni umferðar og slysahættu og ef
þú telur rétt að leysa vandamál eins
hóps með því að ganga á gefin loforð
við annan þá er þér óhætt að sofa
áfram. Ef ekki, þá er mál að vakna
og skoða málin ofan í kjölinn og hafa
áhrif á gang mála.
Hafnfirðingur,
sefur þú?
Haukur
Helgason
Skipulagsmál
Grundvöllur lýðræðisins
er að borgarar setji sig
inn í mál, segir Haukur
Helgason, og hafi skoð-
anaskipti við þá sem
þeir völdu til að stjórna.
Höfundur er stjórnarformaður
Sólvangs, formaður félagsmálaráðs
Hafnarfjarðar þegar Öldrunar-
samtökin Höfn voru stofnuð.