Morgunblaðið - 06.03.2001, Blaðsíða 63
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 63
NÚNA!
ÞAÐ er kannske að
bera í bakkafullan læk-
inn að skrifa um flug-
völlinn, en þar sem um
er að ræða mikið þjóð-
þrifamál, ætti öll um-
ræða að vera af hinu
góða. Lítum nánar á þá
kosti, sem eru fyrir
hendi: Að flytja allt
flug, þar með innan-
landsflug, til Keflavík-
ur, er að margra mati
engin lausn, langt er að
fara og kostnaður litlu
lægri en endurbygging
Reykjavíkurflugvallar.
Nýr völlur í Kapellu-
hrauni kemur ekki til mála, segir
bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Hætt er
að tala um Álftanesið í þessu sam-
bandi, sem var þó mikið rætt hér á
árunum. Sumir vilja leggja niður
Reykjavíkurflugvöll, en þó halda í
hann, þ.e.a.s færa austur-vestur-
brautina út í Fossvoginn, aðdáend-
um Nauthólsvíkur til mikillar skelf-
ingar. Kemur upp í hugann sagan
um ausutetrið, sem í smíðum var,
„þá kom sá þriðji og bætti um betur,
og boraði á hana gat“, eins og segir í
vísunni!; sem sagt engin raunveru-
leg lausn, heldur er vandræðabarnið
klætt í önnur föt. En hvernig væri
að byggja nýjan flugvöll úti á
Lönguskerjum, og losa þannig höf-
uðborgina við ómagann? Að minnsta
kosti tveir íslenzkir arkitektar og
skipulagsfræðingar hafa gert að
þessu drög. Kostirnir við þessa
lausn eru vissulega margir, –
Reykjavíkurborg eignast nýjan mið-
bæjarkjarna í Vatnsmýrinni, flugör-
yggi bætt, hávaðamengun vegna nú-
verandi ástands væri að mestu úr
sögunni, völlurinn samt sem áður
innan seilingar frá borginni, sem er
farþegum innanlandsflugs mikið
kappsmál, og, viti menn, nú yrði
meira að segja utanlandsflug mögu-
legt frá Reykjavík. En það þarf að
borga brúsann og þetta verður víst
voðalega dýrt. Talað er um 12,5
milljarða, en 4,5 ef gamli, góði
Vatnsmýrarvöllurinn yrði endur-
byggður. Samgöngumálaráðherra
segir það vera „hagstæðasta kost-
inn“, að ditta að þessum gamla her-
flugvelli, sem Bretar bjuggu til í
flýti í stríðinu. En
skoðum málið nánar.
Ef horft er á þessar
tölur, er önnur þeirra
vissulega þrisvar sinn-
um hærri en hin. Und-
irritaður man þá tíð,
að mikil umræða var
um göng undir Hval-
fjörð, til að losna við
gömlu leiðina fyrir
fjarðarbotninn. Allir
voru sammála um, að
þetta yrði hin mesta
samgöngubót. Margir
voru þó vantrúaðir af
kostnaðarástæðum, og
töluðu um að endur-
bæta gamla veginn. Má geta sér til,
að núverandi samgönguráðherra
hefði álitið það vera „hagvæmari
kostinn“, og þá sætum við uppi í dag
með gömlu Hvalfjarðarleiðina,
ferðamönnum til mikillar skap-
raunar. Sem betur fer sigruðu önn-
ur og „dýrari“ sjónarmið, og nú eru
göngin komin undir Hvalfjörð. Ekki
nóg með það, önnur göng, engu
ódýrari, hafa verið gerð á Vestfjörð-
um. Samanlagður kostnaður við
bæði göngin mun slaga hátt upp í
verð á nýjum flugvelli í Skerjafirði.
Af þessu má draga margar álykt-
anir, en vonandi gleymist ekki sam-
anburður á þeim samgöngubótum,
sem í húfi eru, og vonandi sigrar
ekki bara margföldunartaflan í svo
mikilvægu máli. Mér kemur í hug
annar samanburður: Eitt stykki
flugvél af gerðinni Boeing 747–400
kostar u.þ.b. 200 milljónir dollara,
eða töluvert hærri uppæð en kostn-
aður við nýjan flugvöll á Löngu-
skerjum. Setjum sem svo að ís-
lenzka ríkið vantaði slíka flugvél til
einhverra brýnna nota, s.s. land-
helgisgæzlu m.a. Væntanlega yrði
þá sú vél keypt, en ekki farin ein-
hver önnur „hagkvæmari“ leið, þ.e.
önnur ódýrari flugvél keypt, sem
ekki væri hentug til áætlaðra nota.
Nú er góða fréttin sú að sem betur
fer þarf ekki Landhelgisgæzlan á
Boeing 747–400 að halda, hitt er
verra, að Íslendinga bráðvantar nýj-
an flugvöll fyrir höfuðborgina. Í bí-
gerð er að efna til þjóðaratkvæða-
greiðslu um málið. Vonandi ber
okkur gæfu til að taka rétta ákvörð-
un í þessu mikla hagsmunamáli allra
landsmanna, ákvörðun sem miðast
við framtíðarlausn, og verður þar af
leiðandi dýrari en allar bráðabirgða-
lausnir.
Um flugvöll
Höfundur er flugstjóri í Lúxemborg.
Flugvöllur
Ein Boeing 747-400
kostar töluvert hærri
upphæð, segir Ingi
Kolbeinsson, en
kostnaðurinn er við
nýjan flugvöll á
Lönguskerjum.
Ingi Kolbeinsson
Iðnbúð 1, 210 Garðabæ
sími 565 8060
Nýtt Nýtt
Afskorin blóm
20% afsláttur í mars
Flísar
og
parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri