Morgunblaðið - 06.03.2001, Qupperneq 75
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 75
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert duglegur við að þoka
málum þínum áfram og
þrautseigja þín bjargar þér
oftar en ekki í mark.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Loksins virðist þér óhætt
að fara af stað með mál,
sem þú hefur lengi þurft að
sitja á. En reiknaðu með
ýmsum ljónum í veginum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að leita samkomu-
lags við vinnufélaga þinn
svo að misskilningur ykkar
í millum endi ekki í tómum
leiðindum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú mátt ekki missa sjónar
á lokatakmarkinu, þótt eitt
og annað komi upp á og
krefjist athygli þinnar um
skeið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Láttu það ekki stíga þér til
höfuðs þótt þér takist að
koma máli þínu í höfn. En
hagstæð úrslit hvetja þig
til frekari dáða.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þeir eru margir sem sækj-
ast eftir nærveru þinni svo
þú skalt umfram allt hafa
stjórn á skapi þínu, ef þú
vilt félagsskapinn.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er eins og ekkert
gangi upp hjá þér í dag.
En misstu ekki móðinn,
bíddu bara þar til lánið
leikur við þig á ný.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Leiðindaþrætur geta vald-
ið þér efiðleikum í dag.
Þegar þig langar til að
leggja orð í belg, skaltu því
halda aftur af þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert alltaf að ganga í
vatnið. Ein leið til að forð-
ast það er að muna að fæst
orð hafa minnsta ábyrgð.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ferðalag er alltaf
skemmtilegt og upplífg-
andi. Bara tilhugsunin get-
ur bjargað deginum, ef
ekki vill betur.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það fer bezt á því að þú
vinnir út af fyrir þig í dag.
Láttu vinnufélagana engin
áhrif hafa á slíka ákvörðun
þína.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er svo oft að við búum
sjálf yfir þeim svörum,
sem við leitum helzt. Gefðu
þér góðan tíma til íhugun-
ar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Erfiðar fréttir berast, en
það er umfram allt að taka
þeim af karlmennsku og
reyna að sjá broslegu hlið-
arnar á tilverunni.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
VÖRNIN reynir á – það
vita spilarar vel. Fyrstu
slagirnir eru mikilvægastir
og ekki síst útspilið. En
séu menn svo heppnir að
halda á ÁK í lit er oftast
best að byrja þar og fá
upp blindan. Lesandinn er
í vestur í tvímenningi. NS
eru á hættu í þremur lauf-
um og það gæti verið
nauðsynlegt að taka spilið
tvo niður til að tryggja
góða skor.
Norður
♠ G84
♥ 753
♦ G7
♣ K10865
Vestur
♠ 1065
♥ ÁKG842
♦ K10
♣Á3
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 lauf
1 hjarta 3 lauf Pass Pass
Paasss
Stökk norðurs í þrjú lauf
er hrindrun og vestur
passar mjög treglega og
hefur síðan vörnina með
hjartaás. Drottningin kem-
ur frá makker, greinilega
ein á ferð. Þar með aukast
líkurnar á því að hægt sé
að vinna þrjú hjörtu í AV
og því mikilvægt að ná
200-kallinum í þremur
laufum ef hann er fyrir
hendi.
Góð vörn byggist á
tvennu: Rökvísi og skýrum
varnarreglum. Vestur tek-
ur næstu tvo slagi á KG í
hjarta og makker hendir
fyrst spaðaníu, síðan
spaðatvisti. Það er hægt að
nota margvíslegar reglur
þegar kastað er fyrst í
eyðu (spaðanían hér), en
þetta par beitir þeirri ein-
földu reglu að kalla eða
vísa frá. Og nían er frávís-
un í spaða (lá/há-köll), en
tvisturinn er með „hliðar-
kallsívafi“, eins og einn
sleipur eftiráspilari komst
að orði. En hvað á að gera
í fjórða slag?
Norður
♠ G84
♥ 753
♦ G7
♣ K10865
Vestur Austur
♠ 1065 ♠ 9732
♥ ÁKG842 ♥ D
♦ K10 ♦ D96532
♣Á3 ♣D7
Suður
♠ ÁKD
♥ 1096
♦ Á84
♣G942
Makker á greinilega
ekkert í spaða og ef hann
héldi á tígulás myndi hann
hreinlega kalla hraustlega
í þeim lit. Spaðatvisturinn
virðist þó benda til að
hann eigi eitthvað nothæft
í tígli, sennilega drottn-
inguna. Síðan er að vona
að makker sé með drottn-
inguna í trompi líka. Og þá
er eina vörnina til að
tryggja það að spilið fari
tvo niður þessi: Tígultíu er
spilað í fjórða slag – ekki
kóng, því vestur þarf að
vera inni þegar búið er að
taka tígulslaginn. Sagnhafi
drepur væntanlega og spil-
ar laufi með þeim ásetn-
ingi að fara upp með kóng-
inn (hann hefur ekki
gleymt sögnum). En nú
hoppar vestur upp með
laufás, tekur tígulkóng og
spilar hjarta. Makker fær
þá sjötta slaginn á lauf-
drottningu.
Ekki beinlínis auðveld
vörn, en falleg og rökrétt
þegar litið er á heildar-
myndina.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
70 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 6.
mars, er sjötugur Friðrik
Lindberg Márusson, raf-
eindavirkjameistari og yfir-
deildarstjóri, Háaleitis-
braut 40, Reykjavík. Hann
og kona hans, Steinþóra
Ingimarsdóttir, eru að
heiman í dag.
STAÐAN kom upp á of-
urmótinu í Linares sem
lýkur á morgun 7. mars.
Erkifjendurnir Garry
Kasparov (2849) og An-
atoly Karpov (2679) áttust
síðast við í kappskák á Las
Palmas skákmótinu 1996.
Síðan þá hafa þeir báðir
þurft að horfa á eftir
heimsmeistaratitlum sínum
en eru engu að síður í hópi
bestu skákmanna heims.
Þetta á ekki síst við um
hinn fyrrnefnda enda trón-
ir hann í
efsta sæti á
hverju
mótinu á fæt-
ur öðru á
meðan hinn
vermir að
jafnaði eitt af
virðingar-
minni sætun-
um. Kasparov
hafði hvítt í
stöðunni
gegn Anat-
oly. 22.Bxd5!
exd5
23.Hxd5
Dxc7 24.Bxc7
Hxc7 25.Hf5
Þó að svartur
hafi þrjá létta menn fyrir
drottningu er staða hans
töpuð þar sem menn hans
vinna mun verr saman en
liðsher hvíts. Svartur
reyndi 25...Hd7 en eftir
26.c3 f6 27.Hg1 Rd8
28.Dg4 Ke8 29.Hh5 Hf8
30.Hxc5! Bxc5 31.Dh5+
gafst hann upp saddur líf-
daga. Í heild tefldist skák-
in: 1.e4 c6 2.d4 d5 3.e5 Bf5
4.Rc3 e6 5.g4 Bg6 6.Rge2
Re7 7.Rf4 c5 8.dxc5 Rd7
9.h4 Rxe5 10.Bg2 h5
11.De2 R7c6 12.Rxg6 Rxg6
13.Bg5 Be7 14.gxh5 Rf8
15.Rb5 Rd7 16.h6 Rxc5
17.Bf4 Kf8 18.hxg7+ Kxg7
19.O-O-O Kf8 20.Kb1 a6
21.Rc7 Hc8 o.s.frv.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
LJÓÐABROT
Þú leggst í grasið
Og eitt sinn muntu standa á víðum velli
um vor og horfa inn í ljómann bjarta
sem rís í bylgjum yfir fossi og felli
– en fortíðin mun gráta í þínu hjarta
og lágar stunur líða af vörum þér:
ó lífsins vættir – fyrirgefið mér.
– – –
Og tár þín munu glitra um grænan baðminn
sem grær við yl frá þínu nýja blóði
og þú munt falla eins og lag að ljóði
að landinu sem tekur þig í faðminn
og þú munt eins og sorg í sál þess ríkja
og segja: ég skal aldrei framar víkja.
Og hrímhvít móðir alltaf söm við sig
í sólskini þess dags mun blessa þig.
Jóhannes úr Kötlum.
Það er kominn tími til þess að þú farir fram á launa-
hækkun. Það tekur mig bara hálftíma að eyða laun-
unum þínum.
COSPER
Full búð af dönskum og þýskum
sumarfatnaði
Laugavegi 84
sími 551 0756
Námskeið í postulínsbrúðugerð
Ný námskeið að hefjast í mars.
Ath! Afsláttur fyrir hópa,
5-6 saman t.d. saumaklúbbinn.
Brúðugerð Önnu Maríu,
Garðsstöðum 64,
símar 587 7064 og 861 7064.
Sprogkonsulenttjenesten i Island
Nordisk Ministerråd sprogprogram
NORDMÅL
Kennsluráðgjafinn í Norræna húsinu stendur fyrir
námskeiðinu:
Þjálfun og skilningur á dönsku talmáli.
Á námskeiðinu, sem ætlað er almenningi, er lögð áhersla
á þjálfun og skilning á dönsku talmáli. Samtalsæfingar
verða unnar í tengslum við hlustun. Þátttakendur vinna
saman ýmist tveir og tveir eða í stærri hópum.
Kennt verður í fimm skipti 80 mínútur í senn, frá kl.
17.10-18.30. Fyrra námskeiðið verður dagana 12., 14.,
16., 19., og 21. mars 2001. Seinna námskeiðið verður
dagana 23., 25., 27., 30., apríl og 2. maí 2001.
Námskeiðsgjald er 5.000 kr.
Síðar verður einnig boðið upp á sambærileg námskeið í
norsku og sænsku. Skráning og allar nánari upplýsingar
veitir kennsluráðgjafi Norræna hússins, Kristín Jóhannes-
dóttir, sími 551 70 30, netfang: kristinj@nordice.is
AÐ NJÓTA, ELSKA OG HVÍLAST
er upplyfting fyrir elskandi pör
á öllum aldri sem vilja spila á
strengi ástarinnar á Hótel
Skógum helgina 9.—11. mars.
Aðgát, félagsráðgjafastofa,
símar 551 5404, 581 1335 og
netfang annaoli@mmedia.is.
Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433.
Kvartbuxur
Kvartbuxurnar með uppábrotinu
ert komnar. Ljósar og dökkar.
Verð kr. 1.900.