Morgunblaðið - 06.03.2001, Blaðsíða 78
FÓLK Í FRÉTTUM
78 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Alríkislögreglumaðurinn Elliot
Ness varð þess óþægilega heiðurs
aðnjótandi að verða goðsögn í lif-
anda lífi. Nafn hans varð eins og
nýyrði fyrir hugtakið réttvísi þegar
hann kom, ásamt hópi sínum, „hin-
um ósnertanlegu“, glæpakonungi
Chicaco, Al Capone, á bak við lás og
slá. Fyrir vikið varð Ness að þjóð-
hetju og raunir hans efniviður í
sjónvarpsþáttaröð og síðar í kvik-
myndina The Untouchables þar
sem Kevin Costner fór með hlut-
verk Ness, Robert De Niro lék
Capone og Sean Connery hlaut
Óskarsverðlaun fyrir túlkun sína á
samstarfsmanni Ness, Jim Malone.
En þar var „ævintýrum“ Eliot Ness
ekki lokið. Og eftir því sem á́ eftir
kom að dæma var Ness ef til vill
mun áþreifanlegri en nafngiftin á
lögregluhópi hans gaf í skyn.
Nokkrum árum eftir að Capone
var innpakkaður fangelsisveggjum
vegna ógreiddra skatta í lok þriðja
áratugarins fluttist Ness til Cleve-
land þar sem hann gerðist yfirmað-
ur öryggismála. Þar varð hann fyr-
ir mikilli gagnrýni vegna þess hve
illa honum varð ágengt að stöðva
fjöldamorðingja nokkurn sem drap
23 einstaklinga á hrottafenginn
hátt. Bókin Torso eftir Brian
Michael Bendis og Marc Andreyke
fjallar um þessa atburði.
Bókin hefst á blaðamannafundi í
Cleveland þar sem borgarfulltrúar
eru að bjóða Ness opinberlega vel-
kominn til starfa.
Eitthvað hefur verið um líkfundi
í borginni, þar sem fórnarlömbin
eru hræðilega limlest og nánast
handan þess að hægt sé að bera
kennsl á þau.
Ness fær reglulega orðsendingar
frá morðingjanum á póstkortum
þar sem hann gerir miskunnarlaust
grín að getuleysi Ness og lög-
reglunnar til að hafa uppi á sér.
Þetta hljómar allt eins og gömul
rulla í hasarmynd. Ekki skrýtið og í
raun ótrúlegt að ekki sé búið að
gera kvikmynd eftir þessari sögu,
þarna er að finna ekta glæpasögu-
drama úr raunveruleikanum þar
sem aðalsöguhetjan er hvorki
meira né minna en þjóðhetja í
Bandaríkjunum. Þetta ætti því vit-
anlega að vera skothelt efni í stór-
mynd.
Það eru líklegast tvær megin-
ástæður fyrir því að myndin er enn
ógerð. Sú fyrri er líklegast sú að
það er ekki svo vinsælt að sjá „þjóð-
hetjur“ haga sér á einhvern annan
máta en hetjulega. Ness var í mik-
illi sálarkreppu vegna hins gífur-
lega álags vinnu sinnar og stöðugra
árekstra í einkalífinu. Seinni
ástæðan er líklegast sú að morðing-
inn náðist aldrei. Það þýðir þó ekki
að það hafi ekki verið nein málalok
og lesendur bókarinnar eru alls
ekki látnir hanga eftir í lausu lofti.
Hinir raunverulegu atburðir voru
hinsvegar ekki gerðir opinberir á
sínum tíma og allar lögreglu-
skýrslur um málið hurfu á undar-
legan hátt. Bókin er unnin upp úr
viðtölum við aðstandendur, blaða-
greinum frá þessum tíma og vanga-
veltum sérfræðinga um málið.
Bókin er afbragðs lesning og sú
staðreynd að efniviður hennar er
unninn upp úr sönnum atburðum er
ávísun upp á það að lesendur henn-
ar geta ómögulega lagt hana frá sér
fyrr en lestrinum er lokið.
MYNDASAGA
VIKUNNAR
Torso: A True Crime Graphic Nov-
el eftir Brian Michael Bendis og
Marc Andreyke. Bókin er útgefin af
Image Comics árið 2000 og vann
hin eftirsóttu Eisner verðlaun.
Fæst í myndasöguverslun Nexus.
Frekari ævintýri
hins áþreifanlega
Elliot Ness
Birgir Örn Steinarsson
Bíóblaðsdagar
í Stjörnubíói
2
á verði eins*
miðar
*Gegn framvísun þessa miða
færðu tvo miða á verði eins á
kvikmyndina QUILLS vikuna
2.-9. mars
✄
Fjaðurpennar
Skráning er í síma 565 9500
HRAÐLESTRARSKÓLINN
www.hradlestrarskolinn.is
SÍÐASTA
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐIÐ!
Viltu margfalda lestrarhraðan og auka afköst í starfi?
Viltu margfalda lestrarhraðan og auka afköst í námi?
Ef svarið er jákvætt, skaltu skrá þig strax á síðasta hraðlestrarnám-
skeið vetrarins (aukanámskeið) sem hefst fimmtudaginn 8. mars.
- AUKANÁMSKEIÐ -