Morgunblaðið - 06.03.2001, Síða 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
Borgar túni 37
Sími 569 7700
Reiknaðu
með
Fjármögnun
Halldór Björnsson gekk á fund
Davíðs Oddssonar forsætisráðherra
fyrir rúmri viku þar sem hann lagði
fram „óskalista“. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins er þar um að
ræða atriði sem snerta yfirlýsingu
sem ríkisstjórnin gaf út 10. mars í
fyrra í tengslum við gerð kjarasamn-
inga. Í þeirri yfirlýsingu lofaði rík-
isstjórnin að skattleysismörk fylgdu
launaþróun, tekjutenging barnabóta
yrði minnkuð, greiðslur almanna-
trygginga hækkuðu í takt við laun,
fæðingarorlof yrði lengt og sérstök
athugun yrði gerð á tekjuskattskerf-
inu með tilliti til þess hvort skyn-
samlegt væri að fjölga skattþrepum.
Auk þess mun Halldór hafa lagt
áherslu á að gerðar yrðu úrbætur í
húsnæðismálum.
Beðið eftir svari stjórnvalda
„Ég hef ekki enn fengið svar frá
forystumönnum ríkisstjórnarinnar,
en ef svarið er jákvætt vonast ég eft-
ir að við getum komist að niður-
stöðu,“ sagði Halldór í samtali við
Morgunblaðið. Hann kvaðst hafa bú-
ist við svari í gær en reiknaði nú með
að það kæmi í dag.
Halldór sagði að í sjálfu sér tæki
framkvæmdastjórn Starfsgreina-
sambandsins ekki ákvörðun um
hvort samningunum yrði sagt upp.
Það væri launanefndarinnar að
reyna að komast að sameiginlegri
niðurstöðu og ef það tækist ekki
myndu menn skila hvorir sínu álitinu
og í framhaldi af því yrði samningum
væntanlega sagt upp með þriggja
mánaða fyrirvara. Þá gæti hugsan-
lega komið til átaka á vinnumarkaði í
haust.
Launanefndin átti annars vegar
að skoða verðlagsþróun og hins veg-
ar kostnað við aðra kjarasamninga.
Halldór sagði ljóst að neysluverðs-
vísitala hefði þróast með þeim hætti
frá því að samningarnir voru gerðir
fyrir ári að ekki væri ástæða til þess
að segja þeim upp af þeim sökum.
Það væri hins vegar annað mál
hvernig ætti að meta kostnað við
kjarasamning kennara og óvíst hvort
um það næðist samkomulag í nefnd-
inni.
„Ég held að aðilar reyni að leggja
sig fram um að ná niðurstöðu. Það er
ekki víst að allir verði ánægðir með
hana, en ég held að menn vilji kom-
ast út úr þessu máli sem fyrst. Það er
ekki eftir neinu að bíða,“ sagði
Halldór.
Líkur á samkomu-
lagi í launanefndinni
Halldór Björnsson, varaforseti ASÍ, hefur lagt tillögur
í skatta- og velferðarmálum fyrir stjórnvöld
HALLDÓR Björnsson, formaður Starfsgreinasambandsins og starfandi for-
seti ASÍ, vonast eftir að samkomulag náist í launanefnd Alþýðusambands Ís-
lands og Samtaka atvinnulífsins og að ekki komi til þess að kjarasamningum
verði sagt upp. Hann segir aðkomu ríkisstjórnarinnar að málinu geta þar ráð-
ið miklu, en að hann sé þeirrar skoðunar að stjórnvöld hafi ekki staðið að fullu
við yfirlýsingar sem gefnar voru í tengslum við gerð samninga sl. vor. Halldór
segist vonast eftir svari frá ríkisstjórninni í dag og að hægt verði að ræða það
á fundi framkvæmdastjórnar Starfsgreinasambandsins sem hefst í hádeginu.
FRAMKVÆMDASTJÓRI Atlants-
hafsbandalagsins, George Robertson
lávarður, kom við á Keflavíkurflug-
velli í gær á leið sinni vestur um haf
og átti fund með Davíð Oddssyni for-
sætisráðherra og Halldóri Ásgríms-
syni utanríkisráðherra.
Bæði Robertson og Davíð sögðust
á blaðamannafundi ekki eiga von á
breytingum á stöðu Íslands í varnar-
kerfi NATO, þótt stjórnarskipti hafi
orðið í Bandaríkjunum. Spurningu
um það hvort nýleg ummæli Donalds
Rumsfelds, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, um að endurskoðun
varnarmálastefnu Bandaríkjastjórn-
ar kunni að fela í sér lokun herstöðva
svaraði Robertson á þá leið að sér
skildist þetta nánast eingöngu varða
herstöðvar í Bandaríkjunum sjálfum.
Hann vonaðist til þess að heyra meira
um þetta á fundi sínum með Rums-
feld og George W. Bush Bandaríkja-
forseta síðar í vikunni.
Davíð benti á, að þegar Rumsfeld
lét fyrrgreind orð falla hefði hann tek-
ið fram að hvert land sem aðild á að
NATO myndi búa við „trúverðugar
varnir“, hvað sem annars gerðist. „Ég
tel að þetta hafi ekki áhrif á varnir Ís-
lands,“ sagði Davíð.
Robertson sagði það vera ljóst, að
varnarstöðin í Keflavík þjónaði jafnt
hagsmunum Bandaríkjanna, Íslands
og bandalagsins í heild.
Morgunblaðið/Golli
George Robertson lávarður, framkvæmdastjóri NATO, var fyrstur far-
þega frá Bretlandseyjum í gær til að stíga á sótthreinsimottur sem kom-
ið var fyrir í landganginum í Leifsstöð, þegar hann kom frá Glasgow
með áætlunarvél Flugleiða. Mottunum er ætlað að koma í veg fyrir að
gin- og klaufaveiki, sem herjar á breskan landbúnað, berist til landsins.
Býst ekki
við breyt-
ingum
Staða Íslands/43
Robertson, fram-
kvæmdastjóri NATO
LOKA varð í gær einni skurðdeild
Landspítala – háskólasjúkrahúss við
Hringbraut, 12G sem er 22 rúma
legudeild, vegna þess að fjölónæmar
bakteríur fundust þar. Verður deildin
sótthreinsuð til að koma í veg fyrir að
bakteríurnar nái fótfestu á sjúkra-
húsinu. Þetta þýðir að fresta verður
nokkrum skurðaðgerðum á dag
næstu daga en vart er búist við að
deildin komist í gagnið fyrr en eftir
tvær vikur.
Karl G. Kristinsson, yfirlæknir
sýklafræðideildar spítalans, segir lík-
legt að bakterían hafi borist með
sjúklingi erlendis frá. Fjölónæmar
bakteríur, klasakokkar, valda heil-
brigðu fólki ekki vandræðum en ber-
ist þær til dæmis í skurðsár geta þær
valdið ígerðum og sýkingum sem erf-
itt er að meðhöndla. Karl segir að
bakteríurnar séu landlægar á há-
skólasjúkrahúsum í nágrannalöndun-
um nema á Norðurlöndum og Hol-
landi. Nái þær bólfestu eykst mjög
kostnaður á sjúkrahúsum, m.a. vegna
dýrari lyfjagjafar og tíðari einangr-
unar.
Fjögur tilfelli
Fjölónæma bakterían fannst hjá
sjúklingi fyrir nokkru sem legið hafði
erlendis en leitað er slíkra baktería
hjá sjúklingum sem koma erlendis
frá. Segir Karl slík tilvik hafa komið
upp áður og viðkomandi sjúklinga þá
setta í einangrun. Í tilvikinu
nú fannst ekkert við leit en
þegar sjúklingurinn þurfti á
sýklalyfjameðferð að halda
kom bakterían í ljós og náði
að breiðast út og uppgötv-
aðist nýtt tilfelli síðastliðinn
föstudag. Þá var farið í frek-
ari leit og í gærmorgun
höfðu fundist tvö tilfelli til
viðbótar og þau eru því alls
orðin fjögur.
„Þá var ekki hægt að úti-
loka að þetta væri komið í
umhverfið eða starfsmenn
og því vildum við ekki taka
neina áhættu með frekari
útbreiðslu og ákváðum að
loka deildinni og sótt-
hreinsa,“ segir Karl en til
þess að það sé unnt verður
að loka deildinni. Nokkrir
sjúklingar hafa verið út-
skrifaðir, aðrir verða fluttir
á aðrar deildir ef bakterían
ræktast ekki frá þeim en
Karl segir líklegt að setja
verði einn eða tvo sjúklinga í
einangrun.
Deildin þvegin og
sótthreinsuð
Karl segir að þvo þurfi alla deildina
hátt og lágt og sótthreinsa en auk
þess taka ræktanir frá sjúklingum og
starfsfólki deildarinnar og öðru
starfsfólki sem gæti hafa sinnt sjúk-
lingum þar. Eftir þvott og sótthreins-
un þarf aftur að taka ræktanir í um-
hverfinu til að fá vissu fyrir því að
hreinsunin hafi alveg tekist. Jónas
Magnússon, prófessor og sviðsstjóri
skurðlækningasviðs, segir að þar sem
ein af legudeildum skurðdeildar taki
ekki við sjúklingum í bili verði að
hægja á starfsemi á skurðstofum með
því að fresta valaðgerðum.
Skurðdeild á Landspítala lokað tímabundið vegna fjölónæmra baktería
Reynt að koma í veg fyrir
að bakteríurnar nái fótfestu
Óviðkomandi er bannaður aðgangur að
deild 12G þar sem hún er í einangrun.
EITT af lendingarhjólum einnar af
Boeing 757-200-vélum Flugleiða
losnaði af í flugtaki í Verona á Ítalíu
á laugardag en vélin lenti á Keflavík-
urflugvelli án þess að flugstjórar vél-
arinnar yrðu þessa varir. Vélin hefur
fjögur hjól hvorum megin og losnaði
eitt af fjórum hjólum vinstra megin
og fannst síðan á flugvellinum í
Verona.
Flugvélin lenti því í Keflavík án
hjólsins og kom ekki í ljós fyrr en
vélin var komin að flugstöðinni að
eitt hjólanna vantaði. Þá var hún
skoðuð og virðist sem lega hafi
brotnað og var skipt um öll hjól. Að
sögn Guðjóns Arngrímssonar, upp-
lýsingafulltrúa Flugleiða, á þetta
ekki að skapa hættu, enda eiga vélar
að geta flogið og lent eins og ekkert
hafi í skorist þótt eitt hjól losni.
Missti hjól
í flugtaki