Morgunblaðið - 18.04.2001, Side 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2001 27
Gjöfin þín
Gjöfin
þín
Lyf og heilsa og
óska öllum landsmönnum gleðilegs sumars og bjóða
upp á fallega sumargjöf*
*í boði meðan
birgðir endast.
Austurstræti - Mjódd - Melhaga - Austurveri
SÍMI 562 9020
Sérfræðingur frá
LANCÔME veitir
ráðgjöf í dag.
SÍMI 581 2101
Sérfræðingur frá
LANCÔME veitir
ráðgjöf í dag.
*ef keyptar eru LANCÔME vörur fyrir 5.000 kr. eða meira.
Ath.: Fleiri tegundir gjafa í boði.
www.lancome.com
SÍMI 557 3390 SÍMI 552 2190
RÚSSNESKI fjölmiðlajöfurinn
Vladimír Gúsinskí sakaði í gær Vest-
urlönd um að sjá í gegn um fingur
sér andspænis því sem hann kallar
„rek“ Vladimírs Pútíns Rússlands-
forseta í átt að alræðisstjórnarhátt-
um, að forsetinn láti þagga niður í
gagnrýnum fjölmiðlum og sjái til
þess að dómskerfið hagi sér líka eins
og Kremlarvaldinu er þóknanlegt.
Í heilsíðuviðtali við Genfarblaðið
Le Temps lýsir Gúsinskí, sem er í út-
legð á Spáni, djúpstæðum vonbrigð-
um sínum yfir aðgerðaleysi ríkis-
stjórna Vestur-Evrópuríkja við
þróuninni í Rússlandi.
Fjölmiðlaveldi Gúsinskís var veitt
eitt reiðarslagið til viðbótar í gær, er
meðeigendur hans að pólitíska
fréttavikuritinu Itogi ráku alla rit-
stjórn blaðsins. Gerðist þetta aðeins
nokkrum tímum eftir að sömu aðilar
tilkynntu að útgáfu dagblaðsins Sev-
odnya, systurblaðs Itogi, yrði hætt.
Lögmaður hins brottræka rit-
stjóra Itogi tjáði blaðamönnum að
Vladimír Birjúkov, sem á að hluta og
rekur Sem Dnei-útgáfufyrirtækið,
hefði sent uppsagnarbréf til liðs-
manna ritstjórnar tímaritsins, en
flestir munu þeir vera Gúsinskí holl-
ir. Birjúkov, sem á aðeins minnihluta
hlutabréfa í Sem Dnei, gat afráðið
þessa uppstokkun í krafti þess að
hafa hlutabréf rússneska jarðgasein-
okunarfyrirtækisins Gazprom líka á
bak við sig.
Í yfirlýsingu sem Reuters-frétta-
stofunni barst á faxi segir, að nokkrir
af reyndustu blaðamönnum Sevodn-
ya hefðu samþykkt að taka að sér að
byggja upp nýja ritstjórn Itogi, sem
ætlunin er að komi áfram út, enda
hefur rekstur þess staðið undir sér.
Sama sagan og við
yfirtöku NTV
Sergei Parkhomenko, er sagt var
upp störfum sem ritstjóra Itogi,
sagði að uppstokkun þessi væri end-
urtekning á yfirtöku Gazprom á
sjónvarpsstöðinni NTV, „feitasta
bitanum“ í Media-MOST-fjölmiðla-
veldi Gúsinskís. Parkhomenko hét
því að hann myndi stofna nýtt frétta-
tímarit og bauð þeim blaðamönnum
sem reknir voru af Itogi að slást í lið
með sér.
Rimman um stjórn NTV var til
lykta leidd í lok síðustu viku; flestir
frétta- og dagskrárgerðarmenn
stöðvarinnar höfðu sig á brott í mót-
mælaskyni og hyggjast halda áfram
gagnrýnni fréttamennsku á Netinu
og á annarri sjónvarpsstöð sem enn
er í meirihlutaeigu Gúsinskís en hef-
ur ekki nándar nærri eins mikla út-
breiðslu og NTV. Hún er eina einka-
rekna sjónvarpsstöðin sem nær um
allt Rússland.
Nú um páskahelgina bundu hinir
nýju stjórnendur NTV enda á upp-
reisn starfsmanna með því að yfir-
taka stöðina með hjálp lögreglu.
Bandaríski auðkýfingurinn Ted
Turner, sem stofnaði alþjóðlegu
fréttasjónvarpsstöðina CNN, lýsti í
gær vonbrigðum sínum yfir þessari
þróun, en viðræður hafa verið í gangi
um að Turner keypti hlutabréf Gús-
inskís í stöðinni. Turner hefur áður
sagt að skilyrði fyrir því að hann fjár-
festi í NTV væri að ekki yrði stuggað
við því fréttamannaliði sem fyrir
væri á stöðinni.
Talsmenn Media-MOST lýstu því
yfir, að öll þessi atburðarás væri að
undirlagi núverandi stjórnarherra í
Kreml; markmið hinna síðarnefndu
væri að skrúfa fyrir gagnrýna, óháða
fjölmiðlun í landinu. „Við munum
halda okkar starfi áfram, að minnsta
kosti svo lengi sem grímulausu al-
ræði hefur ekki verið komið á í Rúss-
landi,“ segir í yfirlýsingu frá Media-
MOST.
Gazprom „hreinsar út“ á fjölmiðlum úr veldi Gúsinskís
Dagblaði lokað og rit-
stjórn vikublaðs rekin
Moskvu, Genf. Reuters, AFP.
Reuters
Liðsmenn ritstjórnar rússneska
fréttavikuritsins Itogi standa
hér við innganginn að höfuð-
stöðvum útgáfufyrirtækisins
Sem Dnei í Moskvu í gær.
DILBERT mbl.is