Morgunblaðið - 18.04.2001, Page 63

Morgunblaðið - 18.04.2001, Page 63
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2001 63 því hann var ekki maður fljótræð- is. Ég kynntist Sigmari fyrst, sem ógiftum bónda á Gljúfri, þegar Mummi bauð mér í sveitina sína. Þar tók Sigmar mér með sinni alúð og hlýju, ásamt smástríðni. Það varð nú að athuga hvort þessi stelpa að norðan væri samboðin honum Mumma. Hann Simmi frændi með stórum stöfum. „Hann kenndi mér það sem ég kann.“ „Honum er að þakka það sem gott er í mér,“ hef- ur bóndi minn oft sagt. Það var lánið hans Mumma að fá, ásamt mörgum fleirum, að alast upp á Gljúfri undir handleiðslu Guðnýjar ömmu og bræðranna Sigmars og Einars. Sigmar kenndi strákunum að bera virðingu fyrir landinu og skepnunum, fyrir Krumma í Gljúfrinu og Glóa gamla, drátt- arhestinum, sem þoldi ungum strákum ýmis uppátæki. Kenndi þeim að vinna, lagfæra, smíða og að „morgunstund gefur gull í mund“. Það var líka Sigmar, sem taldi Mumma trú um að hann væri svona hrokkinhærður vegna þess, hve oft þurfti að rífa í hárið á hon- um fyrir leti sakir. Eftir að við Mummi fórum að búa í Saurbæ, kom Sigmar árlega í heimsókn og þeir „fóstrar“ gengu um tún og garða og ræddu málin. Hann var alltaf að styðja og styrkja strákinn sinn, einnig síð- astliðinn vetur, þegar Mummi dvaldi syðra, vegna vinnu sinnar, og bjó þá hjá Sigmari og Gyðu. Í ágúst s.l. ákvað Gyða að skreppa til útlanda, en við vorum svo lán- söm, að Sigmar kaus heldur að dvelja hjá okkur í Saurbæ. Nær- vera hans var notaleg, auk þess sem „hann var svo skemmtilegur, karlinn“, eins og einhver sagði. Í Saurbæ skildi Sigmar líka eftir handverk, sem minnir stöðugt á hann. Síðustu árin setti heilsan Sig- mari nokkrar skorður. Í dag skulum við minnast þess góða, vera þakklát fyrir árin með Sigmari og gleðjast hans vegna, sem ferðast nú frjáls og fylgist með sínu fólki og aðstoðar eins og hann var vanur – bara á annan hátt. Hann Sigmar á a.m.k. auð- veldara með það núna að vekja strákana sína á morgnana ef með þarf. Elsku Gyða. Þú og börnin eruð rík að hafa átt hann Sigmar. Guð veri með ykkur. Sigrún Grímsdóttir. Nú þegar við kveðjum föður- bróður okkar, hann Sigmar Sig- urðsson, þá er margs að minnast. Elsku Simmi, við áttum margar góðar stundir saman bæði í sveit- inni og einnig eftir að þið fluttuð í Hveragerði. Simmi var einstakur maður, allt- af var hann glaður og kátur, sama hvað á gekk. Vinátta og hlýja skein alltaf úr augum hans. Hann var afskaplega vel lesinn og fróður um alla hluti og hann þekkti sína heimasveit betur en flestir aðrir. Það var ósjaldan sem við leituðum til hans og báðum um ráðleggingar og aldrei stóð á þeim. Simmi var mikill hagleiksmaður og lék allt í höndum hans og var hrein unun að horfa á hann vinna. Það er margt sem væri gaman að minnast á en við geymum það í minningunni. Sem börn á Gljúfri munum við öll eftir hlýjunni sem Simmi sýndi okkur. Hann tók okk- ur alltaf opnum örmum og huggaði þegar eitthvað bjátaði á. Elsku Gyða og fjölskylda, við sendum ykkur innilegustu samúð- arkveðjur. Ef ég mætti yrkja, yrkja vildi ég jörð. Sveit er sáðmanns kirkja, sáning bænar gjörð, vorsins söngvaseiður sálmalögin hans. Blómgar akur breiður, blessun skaparans. (Bjarni Ásgeirsson.) Einarsbörn frá Gljúfri. Elsku Ágúst, það er mjög erfitt að sætta sig við þá staðreynd að þú sért horfinn okkur um alla tíð. Þegar ég lít til baka koma upp í hug- ann margar góðar minningar enda varst þú sá frændi sem alla stráka dreymir um að eiga þegar þeir eru að vaxa úr grasi. Þú varst sá sem leyfðir mér að keyra bíl í fyrsta skipti úti á þjóðvegi, kenndir mér á snjósleða og á mótorhjólinu þínu fékk ég að þeysa um heiðarvegina. Við vorum mjög nánir þegar ég var yngri og það tel ég okkur einnig hafa verið í seinni tíð þó svo að stundir okkar saman hafi verið alltof fáar síðustu ár, en alltaf áttum við gott spjall saman þegar við hittumst. Ég geymi í huga mér þá ferð er við fór- um saman tveir norður í jarðarför- ina hennar langömmu á Fjöllum og gistum hjá þér á Húsavík, en hluta þess sumars hafðir þú verið að keyra bílinn fyrir pabba í Reykjavík. Á ferð okkar norður gafst okkur góður tími til samræðna, þú varst mikið að velta fyrir þér framtíðinni og nú sé ég að ég hefði betur unnið að þeirri hugsun með þér áfram og átt fleiri stundir með þér síðustu tvö árin, en nú er það orðið of seint. Elsku Ágúst, ég kveð þig með miklum söknuði um leið og ég þakka þér fyr- ir allar góðu stundirnar sem við átt- um saman, þær minningar mun ég ávallt geyma. Ég bið góðan Guð um að veita þér frið og halda sinni verndarhendi yfir fjölskyldu þinni. Elsku Kristín, Sveinn, Arnar, Alex- ander, Berglind, amma og afi, megi Guð veita ykkur styrk í þessari þungu sorg. Jóhann. ✝ Björn Ágúst Sig-urðsson fæddist að Garði í Keldu- hverfi 4. apríl 1955. Hann lést 25. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Húsavíkurkirkju 31. mars. Ég var staddur á flugvellinum í Chicago þegar að ég frétti að einn af mínum bestu frændum Gústi væri látinn. Flugið frá Chicago til Baltimore varð því ein sú erf- iðasta ferð sem ég hef farið. Ég var í háloft- unum og hugsaði með mér að Gústi væri að minnsta kosti ekki langt frá mér. Rifjuð- ust þá upp margar minningar sem tengd- ust Gústa frænda. Þeg- ar ég var fimm ára byrjaði ég að fara í sveitina til afa og ömmu, og þar eyddum við Gústi mörgum stundum saman við heyskap, sauðburð, göng- ur og ýmislegt fleira. Seinna bjó hann hjá okkur fjölskyldunni á Raufarhöfn þegar hann stundaði sjómennskuna. Alltaf fylgdi honum mikill galsi og gleði sem verður mér ávallt minnisstætt. Frá sex til tíu ára aldurs þvældist ég með Gústa á mótorhjólum og vél- sleðum og kynntist ég þeim tækjum fyrst hjá honum ásamt bílum. Þegar átti t.d. að fara í fjárhúsin beið ég ósjaldan eftir því að vita hvort Gústi færi á mótorhjólinu og hvort ég fengi að fara með. Í þeim ferðum var alltaf passað uppá að stökkva að minnsta kosti einu sinni mjög hátt og fá í magann. Við áttum það til að að sitja yfir bílablöðum í Garði og útskýrði Gústi fyrir mér alla eiginleika og aukahluti hvers einasta bíls sem hann hafði í hyggju að kaupa. Segja má að Gústi hafi kennt mér að keyra og þá var ég ungur að árum. Tíu ára gamall var ég farinn að keyra Gamla Rússann í göngunum og var mjög montinn með það. Eitt skiptið var ég kominn niður á þjóðveg og hélt áfram að keyra gíf- urlega hreykinn. Þá var kallað hátt „Löggan er að koma“ og Gústi kom á fleygiferð í átt að bílnum, ég stökk afturí undir teppi og hann undir stýrið. Ég varð dauðhræddur og kom ekki undan teppinu fyrr en ég heyrði hláturinn frá fólkinu löngu síðar. Þessi saga er aðeins ein af mörg- um sem að við Gústi áttum saman og ekki leiddist honum að segja þessa og fleiri við mannamót. Ég á ótal góðar minningar í hjarta mínu sem ég ætla að varðveita um ókomna tíð um samskipti okkar Gústa. Við átt- um eftir að gera ýmislegt saman en við munum hittast síðar og klára þau verkefni. Því kveð ég hann í bili og þakka fyrir árin sem við áttum sam- an. Elsku Kristín, Sveinn, Arnar, Al- exander, Berglind, Jón, Sigurgeir, Pabbi, afi og amma megi guð fylgja ykkur og leiðbeina í sorginni. Sigurður Helgi. Á sunnudagskvöldið, er ég kom heim úr bústað, fékk ég þær fréttir að Gústi væri dáinn... Ég er ekki enn farin að skilja af hverju þú. Frá því að ég var 7 ára og flutti í Skúlagarð hefur þú reynst mér eins og stóri bróðir og besti vinur. Alltaf var líf og fjör í kring um þig, gaman þegar þú komst í kaffi til okkar, bara að spjalla. Síðan geystumst við í gegn- um hverfið saman á mótorhjólinu og ég þurfti að halda svo fast utan um þig svo ég fyki ekki af, og að hlusta á talstöðina; 2990 kallar Skúlagarður. Gamli Rússinn stóð alltaf fyrir sínu, það sem stóð upp úr voru ferðirnar út í sanda þegar þú varst að kenna mér að keyra. Eftir að ég fékk prófið varð ég sjálf kjörin einkabílstjórinn þinn, það var geggjað. Aldrei gleymi ég því eina skipti sem þú skammaðir mig, þegar við vorum í melskurði og ég var að stríða Ingveldi og hún skar mig í puttann, ég hélt að puttinn væri að detta af. Þú settir plástur á hann, ég þorði ekki að segja foreldrum mín- um þetta og enn þá er örið til að minna mig á þetta. Þá var komið að því að fara í skóla suður og þú varst svo góður að senda mér reglulega bréf og peninga með. Það var aldeilis góð búbót fyrir 19 ára stelpu sem þú vorkenndir og hugsaðir svo vel til og hjálpaðir. Takk fyrir það, Gústi minn. Rosa var ég montinn þegar þú komst til mín í Safamýrina með kær- ustuna þína hana Kristínu, þið voruð svo ástfangin og voruð nýtrúlofuð, komuð við til að sýna mér hringana ykkar. Síðan kom Alexander í heim- inn, hvað þið voruð glöð og stolt. Gott var að koma í heimsókn í fal- lega húsið ykkar og vera hjá ykkur. Við tvö fórum í bíltúr á þínum bíl til að tala saman og kaupa ís handa Arnari, Kristínu og okkur og var spjallað fram á nótt. Manstu þegar ég var fyrir norðan og Kristín var að fara að eiga Berglindi? Um kvöldið buðu þau mér í grill en ég neitaði því ég varð að flýta mér suður, Kristín átti þá um nóttina 3. júní og ég varð ólétt þá nótt, það fannst mér alveg magnað. Við fórum í skemmtilegar útilegur og bústaðaferðir með Krist- ínu, Einari og öllum börnunum okk- ar. Það var gaman á Egilsstöðum, þá spurðir þú mig „ertu komin aftur af stað?“ því ég var alltaf ælandi. Nei sagði ég, mér verður bara illt af grillmatnum, en auðvitað vissir þú hvað var í gangi hjá mér, barn núm- er tvö. Ég held þú hafir ekki getað verið heppnari með konuna í lífi þínu, hvað hún tók mér og minni fjölskyldu allt- af vel þegar við stormuðum til Húsa- víkur, þetta hefðu ekki allar konur verið sáttar við en við tvær náðum ansi vel saman, gátum talað saman heilu og hálfu næturnar og þú skreiðst upp í rúm og nenntir ekki að hlusta endalaust á okkur. Skrítið, ég var að hugsa til þín þennan örlagaríka sunnudag, ég ætlaði að hringja í þig eins og alltaf á afmælinu þínu, það gengur víst ekki upp núna elsku Gústi minn, ég segi það þá bara núna. Til hamingju með daginn. Ég veit að við eigum eftir að hitt- ast aftur og þá verður nú gaman. Nú ætla ég að setja punkt og kveðja þig, elsku vinur minn, og mundu að ég mun og hef alltaf elskað þig. Elsku Kristín, Sveinn, Arnar, Al- exander, Berglind, Jóhanna, Siggi og aðrir aðstandendur, Guð styrki ykkur öll í sorg ykkar. Ágústa Hugrún Bárudóttir. BJÖRN ÁGÚST SIGURÐSSON 2           6%3$ ( $  1 ++H 44 2& -+*"               !   ++# .+. +.! 2))  8+6- 8+ # ' )"6- 8+ ))  +.2   + # +6222&))  . , .+ %#  +2&)) ( 2           ,   ;&  $ 1N   1 / +        "    ,  ?  )  '#   +## $+ . 7)!+ ))  2& 6"+   +K7) ))    $+.,# ! +$+.,))  +  $ $+.,# ! +'(3.,)))  + $+.,# !&.K ))  %+G$+.,))  /+ +/ /+ +/+ +/ #.&) ( 2             K3$1 1 +9,+ )2 ) 12)+2)L    * ;)  +   ()4 ? ),  '#   #+# 6    4   ;>;;   @  6 + 9 $+.,))  8 K #6+ ,8))   K ))   + %9+# /- .K )) #./+ +/ ( 2     6!1     0) I+. ++  + ) ++G                ?  ), '#   ++# : &       5    5    4 ; %. ;;  8;&5 )2   # #. - &+( ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Formáli minning- argreina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.