Morgunblaðið - 18.04.2001, Blaðsíða 88
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
FORMAÐUR Þjórsárveranefndar
leggst eindregið gegn áformum
Landsvirkjunar um Norðlingaöldu-
lón og sjötta áfanga Kvíslaveitu.
Hann segir að virkjunarkostir á
svæðinu við Þjórsárver séu nú þeg-
ar fullnýttir og Landsvirkjun hafi
þegar fengið að framleiða meira
rafmagn en í upphafi hafi verið gert
ráð fyrir.
Gísli Már Gíslason, prófessor og
formaður nefndarinnar, hefur gert
tillögu um atkvæðagreiðslu um
málið á næsta fundi hennar í næstu
viku. Þjórsárveranefnd er Náttúru-
vernd ríkisins til ráðgjafar um mál-
efni Þjórsárvera, en samkvæmt
friðlýsingu frá 1981 er heimilað að
byggja uppistöðulón neðst í Þjórs-
árverunum með stíflu við svonefnda
Norðlingaöldu í allt að 581 m hæð
yfir sjávarmáli, enda sýni rann-
sóknir að slík lónsmyndun sé fram-
kvæmanleg án þess að náttúru-
verndargildi Þjórsárvera rýrni
óhæfilega, eins og það er orðað.
Deilt um umhverfismat
Forráðamenn Landsvirkjunar
telja að friðlýsingin geri beinlínis
ráð fyrir lóni í Norðlingaöldu, en
hafa gert tillögu um minni lónshæð
en gert er ráð fyrir í friðlýsingunni
til að liðka fyrir framkvæmdum og
koma til móts við sjónarmið um-
hverfisverndar. Þar á bæ vilja
menn að framkvæmdin fái að sæta
mati á umhverfisáhrifum og að auki
svokölluð Kvíslaveita 6, þar sem
tveimur upptakakvíslum Þjórsár
yrði veitt í Kvíslavatn.
Gegn þeim áformum leggst hins
vegar Náttúruvernd ríkisins. Árni
Bragason, forstjóri hennar, segir að
slík ráðstöfun væri fáránleg af
hálfu Landsvirkjunar, þar eð Nátt-
úruvernd ríkisins væri umsagnar-
aðili í slíku mati lögum samkvæmt
og því tilgangurinn með slíku vand-
séður.
Landsvirkjun hefur kynnt fjóra
möguleika að því er varðar vatns-
hæð Norðlingaöldulóns og er það
allt frá 581 m y.s. niður í 575 m.
Geysilega munar um þessa sex
metra, því samkvæmt útreikning-
um Landsvirkjunar yrði lónflötur
miðað við 581 m alls um 62 ferkíló-
metrar, en 28,5 ferkílómetrar miðað
við lónhæð 575 m y.s.
Formaður Þjórsárveranefndar telur virkjunarkosti við Þjórsárver fullnýtta
Andsnúinn Norðlinga-
öldulóni og Kvíslaveitu 6
Landsvirkjun vill /44–45
YFIR 30 erlendir togarar voru við út-
hafskarfaveiðar á Reykjaneshrygg í
gær er Fokker-flugvél Landhelgis-
gæslunnar,TF-SYN, flaug yfir veiði-
svæðið. Skipin eru flest rússnesk, en
einnig eru þarna skip frá Eistlandi,
Litháen, Þýskalandi og Portúgal.
Aflabrögð hafa verið að glæðast og í
gær fengu skipin um tonn á tímann
eða yfir tuttugu tonn á sólarhring.
Ekkert íslenskt skip er á miðunum
vegna verkfalls sjómanna í fiskiskipa-
flotanum sem hefur nú staðið vel á
þriðju viku. Ekkert miðar enn í samn-
ingaviðræðum sjómanna og útvegs-
manna, engir samningafundir voru
haldnir um páskana en viðsemjendur
hittust hjá ríkissáttasemjara í gær.
Ljóst er að dragist verkfallið á
langinn mun það hafa nokkur áhrif á
úthafskarfaveiðar Íslendinga á
Reykjaneshrygg en aflabrögð eru
vanalega hvað best í maímánuði. Tog-
arinn Polar Siglir er gerður út undir
grænlenskum fána og má skipið veiða
innan íslensku landhelginnar.
Gunnar Júlíusson, útgerðarstjóri
Siglfirðings hf., sem gerir skipið út,
segir aflabrögðin hafa verið fremur
dræm það sem af er en þó hafi þau
skánað síðustu daga. Áhrifa sjó-
mannaverkfallsins er nú farið að
gæta verulega hjá fiskvinnslunni í
landinu og eru flest fyrirtæki lands-
ins hætt vinnslu vegna hráefnis-
skorts. Að sögn Arnars Sigurmunds-
sonar, formanns Samtaka fisk-
vinnslustöðva, höfðu mörg fyrirtæki
hráefni til að vinna úr fram að pásk-
um. Einhver fyrirtæki eigi hráefni til
að vinna í þessari viku og flest verði
sennilega að hætta vinnslu í þeirri
næstu.
Karfaafli útlendinga
glæðist á Reykjaneshrygg
Vélstjórar/D7
Í GÆR varð gengi Bandaríkjadals
gagnvart krónu hærra en það hefur
áður orðið. Skráð miðgengi Banda-
ríkjadals hjá Seðlabanka Íslands var
í gær 93,71 króna og sterlingspunds-
ins 134,22 krónur. Þetta er 0,93%
hækkun Bandaríkjadals og 0,64%
hækkun sterlingspunds frá síðasta
viðskiptadegi, sem var síðastliðinn
miðvikudagur.
Vísitala krónunnar hækkaði í gær
úr 128,11 stigum í 128,56 stig, en þar
sem vísitalan mælir verð erlends
gjaldeyris þýðir hækkun hennar
lækkun gengis krónunnar. Lækkun
gengis krónunnar nam því 0,35% í
gær.
Banda-
ríkjadal-
ur á 93,71
krónu
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úr-
skurðaði í gær tvo karlmenn í
tveggja vikna gæsluvarðhald í þágu
rannsóknar lögreglu á innflutningi
2.800 e-taflna síðastliðinn mánudag.
Þrír menn á aldrinum 23–31 árs voru
þá handteknir í sameiginlegri aðgerð
lögreglunnar í Reykjavík og toll-
gæslunnar á Keflavíkurflugvelli og
hald lagt á töflurnar sem fundust í
fórum eins þeirra. Einungis var gerð
krafa um gæsluvarðhald yfir tveim-
ur mannanna.
Mennirnir eru íslenskir og voru að
koma frá Hollandi þegar upp komst
um smyglið. Fíkniefnadeild lögregl-
unnar í Reykjavík fer með rannsókn
málsins.
Úrskurðaðir
í gæsluvarð-
hald
Hald lagt á 2.800
e-töflur
BJÖRGUNARBÁTUR björgunar-
sveitarinnar Sigurvonar í Sandgerði
sótti veikan skipverja 107 sjómílur
út á rúmsjó á páskadag. Ferðin tók
sautján klukkustundir og var komið
heim að morgni annars dags páska.
Sveitin hefur aðeins einu sinni áður
farið lengra út á sjó eftir veikum
skipverja.
Sóttu veikan
skipverja
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
NJARÐVÍK varð Íslandsmeistari
karla í körfuknattleik með því að
vinna Tindastól frá Sauðárkróki
nyrðra, 96:71, í gærkvöldi í fjórða
úrslitaleik liðanna. Þetta var í ellefta
sinn sem Njarðvík verður Íslands-
meistari í körfuknattleik, en síðast
vann félagið fyrir þremur árum.
Fyrst vann félagið titilinn fyrir tutt-
ugu árum. Teitur Örlygsson, þjálfari
og leikmaður Njarðvíkur, sem kyssir
Íslandsbikarinn á myndinni að ofan,
hefur nú níu sinnum orðið Íslands-
meistari, alltaf með sama félaginu.
Morgunblaðið/Golli
Sigurkoss Njarðvíkinga á Sauðárkróki
Sigurinn/B2
Morgunblaðið/Golli