Morgunblaðið - 05.05.2001, Page 21
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2001 21
Grímsey - Að lokinni páskahátíð-
inni var haldið í annað sinn vél-
gæslumannanámskeið hér í
Grímsey. Þetta eru réttindi sem
allir verða að afla sér ef þeir ætla
að stunda veiðar á smábátum.
Þátttakendur voru 11 karlmenn
og ein kona. Fræþing, Fræðslu-
miðstöð Þingeyinga, stóð fyrir
námskeiðinu. Fysta námskeiðið
sóttu 16 menn, þannig að alls
hafa útskrifast í Grímsey, 28 vél-
gæslumenn með 300 hestafla rétt-
indi.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Glaðir vélgæslumenn með kennara sínum.
Vélgæslunámskeið
við nyrsta haf
AKUREYRARKIRKJA: Kirkju-
listavika sett á morgun, sunnudag
kl. 11. Messusöngleikurinn „Leiðin
til lífsins“ fluttur. Tvær sýningar
opnaðar. Morgunsöngur á þriðju-
dag kl. 9. Mömmumorgunn á mið-
vikudag kl. 10. Karl Frímannsson
segir frá skólastefnu Hrafnagils-
skóla. Tónleikar á miðvikudags-
kvöld. Kyrrðar- og fyrirbænastund
á fimmtudag kl. 12. Opið hús fyrir
aldraða sama dag kl. 15. Farið verð-
ur á Möðruvelli og Hlíðarbæ. Bíll
fer frá Kjarnalundi kl. 14.15, frá
Víðilundi kl. 14.30 og frá Hlíð kl.
14.45. Aftansöngur í kirkjunni
næsta föstudag kl. 18.
GLERÁRKIRKJA: Hátíðarmessa í
Lögmannshlíðarkirkju kl. 14.
Minnst verður 140 ára vígsluafmæl-
is kirkjunnar. Sr. Bolli Gústavsson
vígslubiskup predikar. Kirkjukaffi
verður í safnaðarsal Glerárkirkju
eftir messu. Þar mun sr. Ágúst Sig-
urðsson flytja erindi um sögu Lög-
mannshlíðarsóknar.
Opið hús verður fyrir mæður og
börn á fimmtudag kl. 10 til 12.
Bryndís Arnarsdóttir ræðir um
þroska barna.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Vorferð
sunnudagaskólans á morgun,
sunnudag kl. 11. Farið verður í
Kjarnaskóg. Mæting kl. 10.45 við
Hjálpræðisherinn. Sunnudaga-
skólabörn, systkini og foreldrar vel-
komin. Almenn samkoma um kvöld-
ið kl. 20. Heimilasamband kl. 15 á
mánudag.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Brauðsbrotning í kvöld kl. 20.
Gunnar Rúnar Guðnason predikar.
Sunnudagaskóli fjölskyldunnar á
morgun kl. 11.30. Reynir Valdi-
marsson kennir úr Orði Guðs.
Vakningarsamkoma kl. 16.30.
Yngvi Rafn Yngvason predikar.
Fjölbreytt lofgjörðartónlist, fyrir-
bænaþjónusta og barnapössun.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í
dag, laugardag kl. 18 og á morgun,
sunnudag kl. 11.
LAUGALANDSPRESTAKALL:
Sunnudaginn 6.maí er messa í
Grundarkirkju og hefst hún
kl.13:30. Ömmukórinn á Akureyri
undir stjórn Sigríðar Schiöth syng-
ur sálm og stólvers við athöfnina.Þá
mun kórinn syngja nokkur lög í
kirkjunni að lokinn athöfn. Á eftir
verður þeim og kirkjugestum boðið
til kaffisamsætis í Laugaborg.
Kirkjustarf
Ferming verður í Draflastaða-
kirkju á morgun, sunnudaginn
6. maí. Prestur er sr. Arnaldur
Bárðarson.
Fermdar verða:
Elín María Heiðarsdóttir,
Draflastöðum
Úlla Árdal,
Dæli.
Ferming
TÓNLEIKAR gítardeildar Tónlist-
arskólans á Akureyri verða haldnir í
sal Brekkuskóla (gagnfræðaskóla-
húsinu) á morgun, sunnudaginn 6.
maí, kl. 15. Þar flytja nemendur á öll-
um stigum blandaða dagskrá. Eftir
tónleikana mun foreldrafélagið sjá
um kaffiveitingar.
Tónleikar
gítardeildar