Morgunblaðið - 05.05.2001, Blaðsíða 62
62 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
MIG langar til að rifja upp fyrir þér,
lesandi góður, að fyrir um 10 árum
fannst undurfagurt stuðlaberg rétt
við bæjardyr Reykjavíkur, nánar til-
tekið í mynni Seljadals skammt
austan við Hafravatn. Þessi náma
var opnuð til þess að Reykvíkingar
gætu fengið sæmilega hart grjót
sem hráefni í malbikið sitt. Slitlagið,
efsta lagið á götunum eyðist mjög
hratt einkum vegna nagladekkjanna
og óhóflegs saltausturs á göturnar á
vetrum. Fara tugir milljóna ef ekki
hundruð milljóna af skattpeningum
borgarbúa í framleiðslu malbiks
sem vissulega væri betur varið til
annarra málefna þarfari.
Á sínum tíma vakti stuðlaberg
þetta mikla hrifningu meðal allra
náttúruunnenda, enda óvíða jafnfal-
legt stuðlaberg sem þarna kom í ljós
enda var stærðin mikil. Ómar Ragn-
arsson sýndi myndir af þessu nátt-
úrufyrirbrigði í sjónvarpinu. Voru
allir áhugamenn um náttúru lands-
ins einhuga um nauðsyn þess að
koma á einhvers konar friðun á því
sem og næsta umhverfi. En nú virð-
ist sem náma þessi hafi gleymst og
því miður eru yfirvöld oftast mjög
svifasein við að friðlýsa merk nátt-
úrufyrirbrigði og sögulegar minjar.
Meðfylgjandi mynd sýnir fegurð
og stærð stuðlabergsins. Hún var
tekin af undirrituðum á áliðnum sól-
ríkum degi í júlímánuði fyrir nær
áratug. Snemma þennan morgun fór
eg á reiðhjóli úr Mosfellsbænum þar
sem eg bý, lagði hjólinu skammt frá
námunni, gekk austur á Mosfells-
heiði þessa miklu víðáttu sem bíður
þess að fólk með græna fingur bæti
gróðurfar hennar. Á bakaleiðinni
kom eg við í grjótnámunni og tók
meðfylgjandi mynd. Neðst á mynd-
inni er bakpoki og má af honum
marka hæð og stærð stuðlabergsins.
Stjórnsýsla tveggja sveitarfélaga
bregðast Þetta svæði hefur verið
mér mjög kært, enda verið þar oft á
ferð í grenndinni að njóta kyrrðar
og fegurðar náttúrunnar í Seljadal
og Mosfellsheiði. Þegar eg átti síð-
ast leið þarna um á síðastliðnu
hausti gat eg hvergi fundið stuðla-
bergið. Eg setti mig í samband við
starfsmenn Náttúruverndar ríkis-
ins. Afskipti þeirrar stofnunar af
efnistöku byggist fyrst og fremst á
náttúruverndarlögum frá 1999, en í
þeim er því miður ekki gert ráð fyrir
neins konar afskiptum af efnistöku
sem hafin hefur verið fyrir setningu
laganna. Verður því að fara eftir
ófullkomnum fyrirmælum eldri laga.
Fjármálasjónarmið voru því mið-
ur sett ofar náttúruverndarsjónar-
miðum.
Efnistakan hófst fyrir um 12–15
árum. Mun Reykjavíkurborg vera
námurétthafi, en efnistakan var
boðin út á sínum tíma af hagkvæmn-
isástæðum.
Án minnstu miskunnar var
stuðlabergið brotið niður mélinu
smærra enda hefur væntanlega
láðst að hafa samband við verktak-
ann og biðja hann um að þyrma
náttúruundrinu. Jafnframt hefði
verið þörf á að fylgjast betur með
umgengni þarna á námusvæðinu en
hún hefur ætíð verið mjög slæm og
ekki verið verktakanum til neins
sóma.
Stjórnkerfi tveggja sveitarfélaga
hafa brugðist gjörsamlega á þessum
10 árum, bæði stjórnkerfi Reykja-
víkurborgar sem ábyrgðaraðili
framkvæmda og stjórnkerfi Mos-
fellsbæjar einnig sem eftirlitsaðili
framkvæmda þar sem náman er inn-
an lögsagnarumdæmis Mosfellsbæj-
ar.
Nú er því miður orðið of seint að
huga að friðun stuðlabergsins þegar
það er horfið og afmáð af yfirborði
jarðar. Minningin um það er aðeins
til í hugum þeirra sem lögðu á sig að
fara þangað inneftir og sáu það með
eigin augum.
Nú hefur það allt verið brotið nið-
ur og eyðilagt, malbiksframleiðslu
Reykvíkinga til dýrðar.
Og það er vissulega ákaflega grát-
legt hvernig þessi miklu mistök gátu
átt sér stað.
Brýn nauðsyn ber til að bæði bæj-
arstjórn Mosfellsbæjar sem og
Reykjavíkurborg geri hreint fyrir
sínum dyrum og gefi skýringar á því
hvað kom í veg fyrir að stuðlabergið
væri friðað. Svona alvarleg mistök í
stjórnsýslu mega alls ekki endur-
taka sig!
GUÐJÓN JENSSON,
leiðsögumaður og áhugamaður
um náttúruvernd.
Merkar náttúruminj-
ar eyðilagðar: Stuðla-
berg brotið niður
Frá Guðjóni Jenssyni:
Stuðlaberg í Seljadal.