Morgunblaðið - 12.05.2001, Side 11

Morgunblaðið - 12.05.2001, Side 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001 11 UMBOÐSMAÐUR Alþingis, Tryggvi Gunnarsson, kynnti í gær skýrslu um starfsemi embættisins fyrir árið 2000 á fundi í Þjóðmenn- ingarhúsinu með umboðsmönnum þjóðþinga fjögurra Norðurlanda. Í skýrslunni kemur fram að 253 mál hlutu lokaafgreiðslu á síðasta ári en 232 ný mál komu til meðferðar á árinu, þar af voru 3 mál tekin upp að frumkvæði umboðsmanns. Í árslok 2000 voru 125 mál sem biðu afgreiðslu og í flestum þeirra var beðið eftir umsögnum og upp- lýsingum frá stjórnvöldum. Fyrirferðarmestu málin sem fyrr vörðuðu almannatryggingar, skatta og gjöld og málefni fanga. Í skýrslu umboðsmanns segir að fimmtungur skráðra mála á síðasta ári, eða tæplega 50 mál, hafi verið kvartanir yfir töfum á afgreiðslu mála hjá stjórnvöldum. Umboðs- maður segir þetta aukningu frá fyrra ári sem að einhverju leyti megi skýra með því að stjórnvöld gæti þess ekki nægjanlega vel að tilkynna um fyrirsjáanlegar tafir á afgreiðslu mála og skýra ástæður þeirra. Í þessu sambandi bendir umboðsmaður á þau ákvæði stjórnsýslulaga sem skylda stjórn- völd til að tilkynna um tafir á af- greiðslu mála. Þannig geti yfirvöld viðhaft vandaða stjórnsýsluhætti og lagt grunninn að réttum og eðlilegum samskiptum milli þeirra og almennings. Með því skapi stjórnvöld það traust sem ríkja þurfi milli stjórnsýslunnar og borgaranna. Auka þarf fræðslu innan stjórnsýslunnar Umboðsmaður segir í skýrslunni að skiljanlega reyni oftast á ákvæði stjórnsýslulaga við úrlausn mála hjá embættinu. Þar komi hugtökin rannsóknarreglan, rök- stuðningur og andmælaréttur oft- ast fyrir. Síðan segir í skýrslunni: „Þetta er til marks um að þess gætir enn of oft að stjórnsýslan fylgi ekki í störfum sínum þeim ákvæðum stjórnsýslulaga sem fjalla um þessi atriði. Ég ítreka því þau sjónarmið sem ég hef áður sett fram um mikilvægi þess að auka fræðslu fyrir starfsfólk stjórnsýslunnar um þær réttar- reglur sem gilda um starfshætti hennar... Mér er ekki kunnugt um að boðið sé t.d. upp á námskeið fyrir nýja starfsmenn innan stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga um stjórnsýslulögin og aðrar rétt- arreglur stjórnsýsluréttarins en reglur þessar eru þó almennur grundvöllur þess hvernig standa ber að afgreiðslu mála innan stjórnsýslunnar.“ Skráðum málum fækkar Eins og fyrr greinir tók umboðs- maður upp 3 mál á síðasta ári að eigin frumkvæði. Hann leggur áherslu á mikilvægi þess að geta beitt heimild til að taka upp mál að eigin frumkvæði. Því verði ekki með góðu móti komið við nema að umboðsmanni sé gert það kleift með nauðsynlegum fjárveitingum. Eins og sést á meðfylgjandi súluriti hefur afgreiðsla mála hjá umboðsmanni dregist á langinn á síðustu árum og skráðum málum fækkað. Umboðsmaður skýrir þetta með þeirri umfangsmiklu vinnu er fór í gerð heimasíðu emb- ættisins á Netinu og flutningi sem átti sér stað í nýtt húsnæði að Álftamýri 7. Hefur umboðsmaður sett sér það markmið að af- greiðslutími styttist þannig að nið- urstaða í málum liggi að jafnaði fyrir eigi síðar en 6 mánuðum eftir að kvörtun berst embættinu. Von- ast umboðsmaður til að þetta markmið náist innan skamms. Samfara þessu ætlar umboðsmað- ur að leggja aukna áherslu í störf- um sínum á að hlutaðeigandi stjórnvöld svari fyrirspurnum og beiðnum um afhendingu gagna eins fljótt og kostur er. Í skýrslunni segir umboðsmaður ennfremur að í kjölfar tilkomu heimasíðunnar í fyrra hafi fjölgað nokkuð erindum til embættisins og beiðnum um tilteknar upplýsingar með tölvupósti. Umboðsmaður Alþingis lauk 253 málum í fyrra en 125 mál voru óafgreidd um áramót Morgunblaðið/Jim Smart Tryggvi Gunnarsson kynnti skýrslu umboðsmanns Alþingis á fundi um stjórnsýslurétt í Þjóðmenningarhúsinu. "" $" $"" !" !"" #" #"" " " # $ %&      #&(( #&(& #&&" #&&# #&&! #&&$ #&& #&& #&&' #&&) #&&( #&&& !""" * +    Kvörtunum fjölgar vegna tafa hjá stjórnvöldum HÆSTIRÉTTUR hefur sakfellt skipstjóra fyrir fiskveiðibrot en hann sinnti ekki þeirri skyldu sinni að tryggja að allur afli yrði vigt- aður á hafnarvog í kjölfar lönd- unar. Skipstjórinn var jafnframt sakfelldur fyrir að hafa fært rang- ar upplýsingar um afla í afladag- bók og fyrir að hafa fullunnið hluta aflans um borð án þess að hafa til þess leyfi sjávarútvegsráðuneytis. Hæstiréttur dæmdi skipstjórann til að greiða 800.000 krónur í sekt en áður hafði Héraðsdómur Reykjaness dæmt hann til að greiða 400.000 krónur í sekt. Rík- issaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar. Sagði aflann ætlaðan til einkaneyslu Í dómnum kemur fram að sex fiskkassar voru færðir úr skipi skipstjórans föstudaginn 22. októ- ber 1999 yfir í bifreið sem lög- reglan stöðvaði á Njarðarbraut í Njarðvík. Í kössunum voru 172 kg af hausuðum þorski, 45 kg af þorskflökum, 30 kg af ýsuflökum og 5 kg af lúðu. Auk þessa afla voru 324 kg af slægðum þorski úr bátnum vigtuð á hafnarvoginni í Keflavík. Skipstjóri bar að óvigtaði hluti aflans væri ætlaður til einkaneyslu áhafnar en hvergi var gerð grein fyrir þessum hluta aflans í afla- dagbók skipsins, hvorki sem ætl- aðri soðningu skipsáhafnar né sem hluta af heildarafla. Til viðbótar við þann afla sem var í bifreiðinni fóru 172 kg af hausuðum og slægðum þorski úr skipinu framhjá hafnarvigt þennan dag. Í dómnum kemur fram að skip- stjóri hafi falið skipstjórnarlærð- um manni, sem hann treysti, að færa þennan afla á hafnarvigt. Sá maður var reyndar kaupandi aflans en var hvorki í áhöfninni né starfsmaður útgerðarinnar og laut ekki boðvaldi skipstjóra, heldur var hann kaupandi þessa hluta aflans. Ákærði mátti þannig ekki treysta því að svo yrði farið með aflann sem skylt er, segir í dómn- um. Auk sektarinnar var skipstjórinn dæmdur til að greiða allan áfrýj- unarkostnað málsins, þ.m.t. máls- varnarlaun skipaðs verjanda síns, Björgvins Jónssonar hrl. Héraðs- dómur hafði áður dæmt manninn til greiðslu sakarkostnaðar og 70.000 króna málsvarnarlauna. Hæstiréttur dæmir skipstjóra í 800.000 króna sekt Landaði afla framhjá hafnarvog MANNRÉTTINDADÓMSTÓLL Evrópu hefur vísað frá kæru Ein- ars Þorkelssonar og Friðþjófs Þor- kelssonar gegn íslenska ríkinu. Þeir kærðu til dómstólsins að skylduaðild þeirra að lífeyrissjóði bryti gegn 11. gr. Mannréttinda- sáttmála Evrópu um félagafrelsi og 1. gr. 1. viðauka við sáttmálann um vernd eignarréttar. Dómstóll- inn féllst ekki á þetta og taldi að skylduaðild að lífeyrissjóði væri bundin í lög, hún hefði það rétt- mæta markmið að stuðla að vernd réttinda annarra með stofnun sam- tryggingasjóða og ekki væri geng- ið of langt til ná þessu markmiði, skv. upplýsingum dómsmálaráðu- neytisins um niðurstöðu dómsins. Höfðu kosið að greiða iðgjald til annars lífeyrissjóðs Kærendur voru starfsmenn, en jafnframt stjórnarmenn og hlut- hafar í trésmiðjunni K 14 hf. Höfð- aði Sameinaði lífeyrissjóðurinn mál gegn trésmiðjunni til heimtu lífeyrissjóðsiðgjalda þeirra, en samkvæmt þágildandi lögum nr. 55/1980 um starfskjör og skyldu- tryggingu lífeyrisréttinda var öll- um launamönnum og þeim sem stunduðu atvinnurekstur eða sjálf- stæða atvinnustarfsemi skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði við- komandi starfsstéttar eða starfs- hóps. Bar kærendum samkvæmt þessu að greiða lífeyrissjóðsiðgjöld til Sameinaða lífeyrissjóðsins, en þeir höfðu kosið að greiða iðgjald til annars lífeyrissjóðs, Frjálsa líf- eyrissjóðsins. Með dómi Hæsta- réttar 1996 var Trésmiðjan K 14 dæmd til að greiða lífeyrissjóðs- iðgjöld þessara starfsmanna sinna til Sameinaða lífeyrissjóðsins. Var ekki talið að skylduaðild starfs- mannanna að lífeyrssjóði og tak- mörkun á valfrelsi þeirra um líf- eyrissjóð bryti gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar um félaga- frelsi. Fyrir Mannréttindadómstól Evrópu byggðu kærendur á því að niðurstaðan í dómi Hæstaréttar bryti gegn rétti þeirra til að standa utan félaga sem verndaður væri af 11. gr. Mannréttindasátt- mála Evrópu, auk þess sem skylda til að greiða lífeyrissjóðsiðgjöld í Sameinaða lífeyrissjóðinn bryti gegn eignarréttarákvæðinu í 1. gr. 1. viðauka við sáttmálann. Mann- réttindadómstóllinn féllst á hvor- ugt kæruefnið. Hvað varðar kær- una um brot á eignarréttarákvæð- inu vegna greiðslu iðgjalda, taldi Mannréttindadómstóllinn að um væri að ræða almennar takmark- anir á eignarrétti sem rúmuðust innan marka 2. mgr. 1. gr. ákvæð- isins sem heimilar takmarkanir á þessum rétti, enda væru þær lög- mæltar, settar í þágu almanna- hagsmuna og gengju ekki lengra en nauðsynlegt mætti telja. Mannréttindadómstóll Evrópu Kæru frá Ís- landi vísað frá Dæmdur til að greiða 400.000 í bætur Til átaka kom vegna umgengni um salerni HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík- ur hefur dæmt þrítugan karl- mann í þriggja mánaða skil- orðsbundið fangelsi og til að greiða tveimur bræðrum sam- tals tæplega 400 þúsund krónur í miska- og skaðabætur fyrir að ráðast inn í íbúð án nokkurrar gildrar ástæðu og berja bræð- urna tvo þegar þeir reyndu að tjónka við hann. Annar bróðir- inn nefbrotnaði. Atvikið varð fyrir réttu ári í fjölbýlishúsi þar sem bræðurnir bjuggu í leigu- herbergi. Salerni var sameigin- legt með fleiri íbúðum. Þegar bræðurnir voru að horfa á sjón- varp ásamt vinkonu annars þeirra ruddist árásarmaðurinn inn og sakaði bræðurna um að hafa gengið illa um salernið. Fram kemur í dómi héraðs- dóms að sá sem ákærður var hefði neitað því fyrir dómi að hafa slegið bræðurna en aftur á móti játað hjá lögreglu að hafa slegið annan þeirra á nefið. Framburður hans fyrir dómi hafi verið ótrúverðugur og ruglingslegur og var talið sann- að með frásögn vitna að mað- urinn hefði veist að bræðrunum og slegið þá. Pétur Guðgeirsson héraðs- dómari kvað upp dóminn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.