Morgunblaðið - 12.05.2001, Side 37

Morgunblaðið - 12.05.2001, Side 37
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001 37 FYRIR skömmu rann út umsóknar- frestur í Menningar- sjóð Sjóvá-Almennra trygginga hf. Þetta er í fjórða sinn sem aug- lýst er eftir umsóknum úr A hluta sjóðsins en til ráðstöfunar í þeim hluta eru að þessu sinni tvær milljónir króna. Tilgangur Menningarsjóðsins er að koma að ýmsu því sem er til heilla ís- lensku samfélagi hvort sem það tengist menn- ingu, forvörnum, list- um eða íþróttum. Þannig hafa þær rúmlega 450 um- sóknir, sem borist hafa frá upphafi, endurspeglað samfélagið í heild sinni og 46 verðug verkefni alls staðar af að landinu hafa hlotið stuðning. Ástæða stofnunar sjóðsins eru þær fjölmörgu fyrirspurnir og er- indi sem félaginu berast á ári hverju. Sá mikli fjöldi kallaði á skil- virkari meðhöndlun sem bæði eru til hagsbóta fyrir umsækjendur sem og félagið sjálft. Þannig tryggir sjóðurinn að allar umsóknir sitja við sama borð og að fjölbreytileiki um- sókna á hverju sviði verður meiri. Fjöldi umsókna að þessu sinni er alls 181 talsins. Það er svipaður fjöldi og barst fyrir síðustu úthlut- un á menningarári Reykjavíkur- borgar. Reynslan hef- ur sýnt að stuðningur sjóðsins er ekki ein- vörðungu fjárhagsleg- ur heldur oft einnig huglægur. Þannig er styrkveitingin viður- kenning á starfi við- komandi umsækjanda og um leið hvatning til áframhaldandi verka. Með menningarsjóð- um geta fyrirtæki styrkt hin ýmsu mál- efni sem oft á tíðum sitja hjá eða eiga hvergi heima í hinum ýmsu opinberum sjóð- um þessa lands. Slíkir menningarsjóðir eru því góð viðbót við þá styrki sem ríkið veitir og mikilvægur hlekkur til að viðhalda fjölbreyttri menningarflóru. Það er vandasamt verk sem býð- ur sjóðstjórnar á næstu dögum við úrvinnslu umsókna en þann sjötta júní næstkomandi kemur í ljós hverjir hljóta styrki fyrir árið 2001. Menningarsjóðir Hugi Hreiðarsson Höfundur er kynningarfulltrúi Sjóvár-Almennra trygginga hf. Styrkur Með menningarsjóðum geta fyrirtæki, segir Hugi Hreiðarsson, styrkt hin ýmsu málefni. Reiki-, heilunar- og sjálfstyrkingarnámskeið Skráning á námskeið í síma 553 3934 kl. 10–12 virka daga. Guðrún Óladóttir, reikimeistari. Hvað fá þátttakendu r út úr slíkum námskeiðu m? Læra að nýta sér orku til að lækna sig (meðfæddur eiginleiki hjá öllum) og/eða koma sér í orkulegt og tilfinningalegt jafnvægi. Læra að beita hugarorkunni á jákvæðan og uppbyggilegan hátt í staðinn fyrir að beita henni til niðurrifs. Læra að hjálpa öðrum til þess sama. Lausir einkatímar í heilun og ráðgjöf Námskeið í Reykjavík 14. - 16. maí I stig • Kvöldnámskeið. 29. - 31. maí II stig • Kvöldnámskeið. 5. - 7. júní I stig • Kvöldnámskeið. VEGNA fréttar Morgunblaðsins um löggildingarnámskeið iðnmeistara, sem birt- ist í síðustu viku, er rétt að koma eftirfar- andi athugasemdum á framfæri. Með skipulags- og byggingarlögum sem samþykkt voru á Al- þingi 1997 og tóku gildi 1. janúar 1998 voru sett skilyrði fyrir því hvaða iðnmeistar- ar gætu borið ábyrgð á einstökum verkþátt- um við byggingar- framkvæmdir. Þetta ákvæði laganna á ekki eingöngu við um húsasmíðameistara eins og mátti skilja á fréttinni heldur einn- ig um stálvirkjameistara, veggfóðr- arameistara, málarameistara, blikksmíðameistara, rafvirkja- meistara, pípulagningameistara og múrarameistara. Þeir þurftu sam- kvæmt lögunum leyfi ráðherra til að bera þessa ábyrgð. Það leyfi átti að veita þeim aðilum einum sem höfðu fullgilt meistarabréf og höfðu lokið prófi frá meistaraskóla enda væru þeir starfandi sem meistarar í iðn sinni. Þegar þetta ákvæði var skoðað nánar kom í ljós að ekki var settur á meistaraskóli á landsvísu fyrr en 1. janúar 1989. Þannig að fyrir þann tíma höfðu fjölmargir iðnað- armenn fengið meistarabréf án meistaraskóla enda var það í sam- ræmi við menntunarkröfur og lög þess tíma. Hins vegar var laga- ákvæðið sett fram með þeim hætti að þessir einstaklingar glötuðu í raun starfsréttindum sínum. Oftast er það svo að þeir sem hafa starfs- réttindi við setningu nýrra laga, sem hafa í för með sér strangari ákvæði, halda þeim réttindum án nokkurra takmarkana. Þrátt fyrir það ákvað umhverfisráðuneytið í þessu tilviki að gera að skilyrði að þessir einstaklingar yrðu að sækja námskeið til að halda starfsréttindum sínum. Þess vegna var sett til bráðabirgða ákvæði í skipulags- og bygg- ingarlög í desember 1999, sem tók gildi 1. janúar 2000, til að heimila námskeið þannig að þessir aðilar gætu sótt sín starfs- réttindi að nýju. Rétt er að geta þess að Meistarafélag húsa- smiða gerði ekki at- hugasemdir við þessa lagabreyt- ingu á umsagnarstigi frumvarps- ins. Í framhaldi af þessu lagaákvæði hófst vinna af hálfu umhverfisráðu- neytisins við setningu reglugerðar um námskeiðin. Leitaði ráðuneytið m.a. til Samtaka iðnaðarins og það var fyrir tilstuðlan Samtakanna að Meistarafélag húsasmiða kom að þeirri vinnu. Hafði Meistarafélag húsasmiða mikil áhrif á hvernig reglugerðin leit út í endanlegri mynd. Umhverfisráðuneytið samdi síð- an við Menntafélag byggingariðn- aðarins um að halda þessi löggild- ingarnámskeið. Menntafélag byggingariðnaðarins sér því um að halda námskeiðin, innheimtir nám- skeiðsgjald o.s.frv. Námskeiðs- gjöld renna því ekki til Samtaka iðnaðarins, eins og haldið hefur verið fram, þótt Samtökin séu aðili að Menntafélaginu rétt eins og Meistarafélag húsasmiða. Í marsmánuði sl. var gerð sú breyting á reglugerðinni, vegna kröfu Meistarafélags húsasmiða, að fulltrúi Meistarafélags húsa- smiða á nú sæti í verkefnastjórn námskeiðanna. Það skýtur því skökku við að Meistarafélag húsasmiða lýsi yfir áhyggjum sínum vegna þessara námskeiða þegar ljóst er að Meist- arafélagið hefur haft mest áhrif á reglugerðina um námskeiðin og á jafnframt fulltrúa í verkefnastjórn þeirra. Þá er ljóst að fátt hefur orðið til að auglýsa námskeiðin eins mikið og framganga Meistara- félags húsasmiða í málinu. Að lokum er vert að nefna að 66% þátttakenda á námskeiðum þessum hafa verið eldri en 41 árs miðað við könnun sem gerð var á námskeiðum á Akureyri, Borgar- nesi, Reykjanesi, Reykjavík og Sel- fossi. Það er því ljóst að þessir ein- staklingar búa yfir mikilli reynslu og varla dettur nokkrum í hug að kasta rýrð á störf þeirra sem iðn- aðarmanna frá því að þeir luku formlegu iðnmeistaranámi í sam- ræmi við kröfur þess tíma. Löggilding- arnámskeið iðnmeistara Ólafur Helgi Árnason Höfundur er lögfræðingur Samtaka iðnaðarins. Iðnnám Það skýtur því skökku við, segir Ólafur Helgi Árnason, að Meistara- félag húsasmiða lýsi yfir áhyggjum sínum vegna þessara námskeiða þeg- ar ljóst er að Meist- arafélagið hefur haft mest áhrif á reglugerð- ina um námskeiðin og á jafnframt fulltrúa í verkefnastjórn þeirra. Dragtir Neðst á Skólavörðustíg Tvíbreiðar sængur og sængurverasett Skólavörðustíg 21, sími 551 4050 GENGI GJALDMIÐLA mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.