Morgunblaðið - 12.05.2001, Síða 63
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001 63
Fágun –
fagmennska
Gullsmiðir
ÉG get ekki lengur orða bundist yf-
ir kjörum lögreglumanna á Íslandi.
Mér sem aðstandanda lögreglu-
manns blöskrar svo meðferðin á
samningaviðræðum þeirra og virð-
ingarleysið sem samninganefnd rík-
isins hefur sýnt í þessu máli. Lög-
reglumenn eru virtir að vettugi og
samninganefnd ríkisins hefur oftar
en ekki afboðað samningafundi með
stuttum fyrirvara, mætt of seint
eða alls ekki, og sýnt algjört vilja-
leysi í að semja. Þessi stétt á svo
miklu meiri virðingu skilið. Vinnu-
tími þeirra er langur og vaktirnar
algjörlega ófjölskylduvænar. Hjá
lögreglunni í Reykjavík vinna al-
mennir lögreglumenn sex vaktir í
törn og eiga fjóra daga í frí milli
tarna. Hver vakt er 8–9 tímar og
unnin er dagvaktatörn, nætur-
vaktatörn og kvöldvaktatörn. Lög-
reglumennirnir eru svo aukavinnu-
skyldir tvo fyrri frídagana eftir
hverja vakttörn, þannig að þeir fá
kannski einn og hálfan til tvo daga í
frí á milli vaktatarna. Vaktirnar eru
„rúllandi“ þannig að þeir eiga frí
um helgi kannski 6.–8. hverja helgi.
Og sem dæmi má nefna að í síðasta
mánuði var maðurinn minn með
tæpa 100 yfirvinnutíma og fékk á
milli 130 og 140 þúsund útborguð.
Það er skammarlegt. Sjoppustarfs-
menn með þennan tímafjölda eru
með mun hærri laun.
Ég hef þurft að horfa upp á
manninn minn koma heim af vakt,
örþreyttan, alblóðugan, slasaðan,
sótugan og vonsvikinn á mannfólk-
inu.
Þetta starf er ekki einungis lík-
amlegt erfiði heldur einnig mjög
erfitt andlega, þar sem þeir þurfa
að horfa upp á ljótleikann í lífinu
daginn út og daginn inn, sjálfsvíg,
barsmíðar, heimilisofbeldi og ým-
islegt þaðan af verra svo við tölum
nú ekki um dópistana og lýðinn sem
reynir að stinga þá með nálum eða
bíta til að smita þá af eyðni eða lifr-
arbólgu C (sem er því miður mjög
útbreiddur sjúkdómur og er bráð-
smitandi). Þetta er það sem þeir og
aðstandendur þeirra þurfa að lifa
við. Stöðugan ótta. Gerið ykkur
grein fyrir að það eru þessir menn
sem eru fyrstir á slysstað og leggja
oftar en ekki sitt líf í hættu fyrir þig
eða þína. Og þeir telja það ekki eftir
sér því að þessir menn eru í þessu
starfi fyrir hugsjón. Þeir byrja fer-
ilinn með því að vilja „bjarga“
heiminum, en þegar á líður sér
maður hvernig hugsjónin víkur fyr-
ir vonleysi, en þeir lifa samt alltaf í
voninni um að geta breytt ein-
hverju, bjargað lífi eins barns eða
bjargað einu barni frá fíkniefna-
djöflinum. Það gæti vel verið þitt
barn. Gerið ykkur líka grein fyrir
því að tæplega 1⁄5 af lögreglumönn-
um í Reykjavík er að íhuga eða hef-
ur þegar sagt upp störfum og leitar
nú að nýju betur launuðu starfi, þar
sem það er vita vonlaust að sjá fyrir
fjölskyldu á þessum kjörum.
Góðir menn sem byrjuðu í þessi
starfi fyrir hugsjón, fullir af eld-
móði og áhuga til að leggja sitt af
mörkum til samfélagsins eru að yf-
irgefa þetta starf og það mjög skilj-
anlega. Margir gætu hugsað sem
svo: Nú, þeir völdu þetta. Jú, það er
rétt og ekki völdu þeir þetta út af
laununum, það er nokkuð ljóst. En
þegar fólk fer að eignast fjölskyldu
fara menn að hugsa sinn gang.
Samninganefnd ríkis og aðrir sem
koma að þessu ættu að hugsa sinn
gang allrækilega og munið það að
þið eigið örugglega eftir að þurfa á
þeirra hjálp að halda einhvern tím-
ann á lífsleiðinni.
Lögreglumenn, og svo ekki sé nú
talað um slökkviliðsmenn sem einn-
ig eru á lúsarlaunum, eiga miklu
betra skilið.
Spyrjið ykkur sjálf að því hvort
við viljum virkilega sjá á bak okkar
bestu mönnum í önnur störf og fá
kannski einhverja óprúttna náunga
sem sjá aðra hagsmuni en í lög-
gæslu í lögreglustarfinu?
Ég bara spyr!
SÓLEY SIGRÚN
INGÓLFSDÓTTIR,
flugfreyja og aðstandandi
lögreglumanns.
Ég bara spyr!
Frá Sóleyju Sigrúnu Ingólfsdóttur:
FRÉTTIR
ÉG skrifaði hér svolítinn pistil eftir
páska og gleymdi honum svo við
hliðina á tölvunni minni, en nú langar
mig til að senda hann.
Bergljót Valsdóttir, fjögurra
barna móðir, skrifar í Moggann 19.
apríl um ábyrgð foreldra í námi og
leik, var þetta ánægjuleg lesning.
Vildi ég gjarnan að flestir hugsuðu
þannig, en ekki eins og móðirin sem
kenndi skólunum um að barnið
hennar kynni ekki að halda á hníf og
gaffli.
Fyrst ég held á pennanum langar
mig að þakka pistlana frá Ellert
Schram, rétt fyrir páska skrifaði
hann um eldri kynslóðina, sem er óð-
um að kveðja, já – við eigum svo
sannarlega margt að þakka. Einnig
langar mig að þakka pistlana hans
Gísla Jónssonar, sem eru einskonar
konfekt fyrir íslensk hjörtu og sálir.
En að lokum vil ég þakka fyrir
ævisögubrot herra Sigurbjarnar
Einarssonar biskups, hugljúft og fal-
legt. Tekið saman af Freysteini Jó-
hannssyni. Það er ekki ofsagt að við
samferðafólkið mættum þakka þess-
um manni margt. Ef farið er í kirkju
og sálmabókinni flett er nafn hans á
annarri hverri síðu, bæði með frum-
samda teksta og þýdda. Að gefa okk-
ur hinum hlutdeild í trú sinni og
skoðunum er þakkarvert.
Ekki veit ég hvort má minnast á
það sem eftir kemur í svona virðu-
legu blaði, en samt ætla ég að reyna.
Mig langaði að segja að þessi maður
sem er hér til umfjöllunar er áber-
andi fallegur í bliki sálar og huga.
Hugsið ykkur hve lífið væri hvers-
dagslegt ef þeirra hjóna og barna
þeirra hefði ekki notið við? Þau gefa
okkur listatóna á mörgum sviðum.
Takk kæru hjón, frú Magnea og hr.
Sigurbjörn.
Ein af samferðamönnunum,
ERLA STEFÁNSDÓTTIR,
Melhaga 1, Reykjavík.
Ábyrgð foreldra
Frá Erlu Stefánsdóttur:
Í BRÉFI til blaðsins frá Jóni Stef-
ánssyni fimmtudaginn 10. maí sl.
urðu þau leiðu mistök að fyrirsögnin
var villandi, hún átti að vera: Bif-
reiðastjórafélagið Átak hefur sagt
sig úr samstarfi við umsjónarnefnd
leigubílamála.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
Leiðrétting
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist efnir á
árinu til 10 ferða raðgöngu um
Reykjaveginn, gönguleið um
Reykjanesskagann til Þingvalla.
Hún hófst með fjölmennri göngu 22.
apríl sl. og 2. áfangi var genginn 29.
apríl. Þrátt fyrir óhagstætt veður
mættu 50 manns í þá göngu.
Fyrir þá sem misstu af því og til að
koma fleirum af stað verður 2. áfangi
endurtekinn á sunnudaginn 13. maí
og er brottför frá BSÍ kl. 13 og stans-
að á leiðinni við kirkjugarðinn í
Hafnarfirði og hjá Fitjum. Alls er
gangan áætluð um þrjár klst. Fyr-
irhugaðri minjaferð í Krýsuvík er
frestað.
Allir eru velkomnir í ferðina,
félagar greiða lægra fargjald sem er
1.500 kr., en 1.700 kr. kostar fyrir
aðra.
Ganga um
Reykjaveginn
endurtekin
SIGLINGAFÉLAGIÐ Ýmir býður
bæjarbúum Kópavogs í heimsókn til
sín í Vesturvör 8 í dag, laugardaginn
12. maí.
Tilefnið er 30 ára afmæli félagsins
og opnunarmót siglingatímabilsins
fyrir kænur, þar sem börn og ung-
lingar munu keppa. Mótið fer fram á
Fossvogi við félagssvæði Ýmis í
Vesturvör 8.
Dagskrá dagsins verður sem hér
segir: Opið hús, kaffiveitingar og
skemmtisiglingar fyrir almenning í
boði félagsins kl. 13. Siglingakeppni
hefst kl. 14 með ávarpi formanns.
Verðlaunaafhending og útigrill kl. 15.
30 ára afmælis-
hátíð Ýmis
GIGTARFÉLAG Íslands stendur
fyrir happdrætti á vori hverju. All-
ur ágóði rennur til styrktar starf-
semi félagsins. Í Gigtarfélaginu eru
rúmlega 4.600 félagar. Félagið hef-
ur aðsetur í Ármúla 5 í Reykjavík
og rekur þar gigtarmiðstöð.
Á Gigtarmiðstöðinni eru göngu-
deildir sjúkra- og iðjuþjálfunar og
læknastofur gigtarsérfræðinga.
Félagið skipuleggur hópþjálfun
fyrir gigtarfólk, í sundlaug og í sal,
stendur fyrir fræðslufundum og
námskeiðum um gigtarsjúkdóma
og tengd efni, ætluð gigtarsjúkling-
um og aðstandendum þeirra. Þá
stendur félagið fyrir hagnýtri síma-
ráðgjöf fyrir sömu aðla, hún er
veitt tvisvar í viku í tvo tíma í senn
og nefnist þjónustan Gigtarlínan.
Markmið félagsins er að auka
lífsgæði fólks með gigtarsjúkdóma
og þeirra sem eiga á hættu að fá þá,
en um 60 þúsund Íslendingar eiga
við gigtarsjúkdóma að stríða.
Fyrsti vinningur í vorhappdrættinu árið 2001 er Skóda Fabía frá Heklu.
Vinningshafinn Gunnhildur Gígja Þórisdóttir tekur við lyklunum úr
hendi Einars S. Ingólfssonar, formanns GÍ. Unnur Elva Arnardóttir,
sölumaður Skóda, færði vinningshafanum blóm í tilefni dagsins.
Happdrætti
Gigtarfélags
Íslands
TRIMMKLÚBBUR Seltjarnarness
heldur sitt árlega Trimmhlaup á
laugardaginn, 12. maí. Hlaupið verð-
ur frá Sundlaug Seltjarnarness kl.
11 og er skráning frá 9 til 10.45. Þátt-
tökugjald er 500 kr. fyrir fullorðna
og 200 kr. fyrir börn. Hægt er að
kaupa fjölskyldupakka á kr. 1.000.
Hlaupnir verða 3,5 km, 7,5 og 15 km,
en tímataka er í lengri hlaupunum,
sem verða aldursflokkaskipt. Þátt-
takendum verður boðið í Sundlaug
Seltjarnarness eftir hlaupið og einn-
ig upp á hressingu.
Hlaupið um
Seltjarnarnes
ÁRVISSAR sýningar á handavinnu
eldra fólks í Kópavogi verða laug-
ardag 12. maí og sunnudag 13. maí, í
félagsheimilunum Gjábakka, Fann-
borg 8 og Gullsmára, Gullsmára 13.
Sýningarnar verða opnaðar í báðum
félagsheimilunum á sama tíma, á
laugardaginn kl. 14:00 og verða opn-
ar báða dagana frá kl. 14:00–18:00.
Það verður Ásdís Skúladóttir
ásamt Bókmenntaklúbbi Hana-nú
sem opnar sýninguna í Gjábakka og
Sigurbjörg Björgvinsdóttir ásamt
Söngvinum kór aldraðra í Kópavogi
sem opnar sýninguna í Gullsmára.
Þarna sýna um 200 einstaklingar
fallega og vel unna skraut- og nytja-
hluti. Ákveðið var að hafa sýning-
arnar í félagsheimilunum á sama
tíma, svo gestir sem oft hafa komið
um langan veg, gætu skoðað í báðum
félagsheimilunum á sama tíma. Á
laugardaginn ætla Söngvinir að
syngja á Gjábakka um kl. 15:00 og
líkamsræktarhópur Margrétar
Bjarnadóttur ætlar að bregða á leik í
Gullsmára um kl. 15:00 og síðan um
kl. 16:00 í Gjábakka.
Á laugardag verður einnig sölu-
sýning í Gjábakka sem opnar á sama
tíma og Vorsýningin.
Á sunnudag, verða „Hagleiks-
smiðjur“ meðal annars í japönskum
pennasaum, skartgripagerð, gler-
skurði, vatnslitamálun, postulíns-
málun, harðangurs- og klaustur-
saumi og kortasaum í Gjábakka frá
kl. 15:00–16:00. Þá verða einnig
„bobbarar“ að leika bobb, gripið
verður í spil og tafl.
Á sama tíma verður Listasmiðja
Listvefarahóps Guðrúnar Vigfús-
dóttur, listvefara opin í Gullsmára.
Þar verða sýndar þrjár mismunandi
aðferðir myndvefnaðar í römmum
og fínni og grófari vefnaður í vef-
stólum.
Vöfflukaffi verður selt á Gjábakka
og Gullsmára báða dagana og hefst
kaffisalan kl. 14:30. Fólk á öllum
aldri er hvatt til að koma og líta
þessa hagleiksvinnu og listsköpun
augum og er aðgangur án endur-
gjalds.
Vorsýningar í
Gjábakka og
Gullsmára
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦