Morgunblaðið - 19.05.2001, Page 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝ kort af gönguleiðum í
Reykjavík voru formlega
kynnt í rafstöðinni í Elliðaár-
dal í gær. Þá var kynnt vegg-
spjald og bæklingur um
Fræðslustíg í Elliðaárdaln-
um, kort af göngustígum í
Heiðmörk og bæklingur um
gönguleiðir í Reykjavík.
Fræðslustígurinn í Elliða-
árdal var formlega opnaður á
síðasta ári. Stígurinn er
þriggja kílómetra langur og
liggur beggja vegna eystri
kvíslar Elliðaánna. Efri mörk
stígsins eru á göngubrúnni
neðan við félagsheimili Orku-
veitunnar en neðri mörk hans
á hitaveitustokknum, neðan
rafstöðvarinnar. Þar getur að
líta forvitnilega staði svo sem
Drekkjarhyl við Skötufoss,
skammt neðan við Brúarfoss
en þar var konum drekkt á
öldum áður en ekki er vitað
með vissu hve margar konur
létu þar lífið. Skammt neðan
Drekkjarhyls má finna fyrstu
brúna sem reist var yfir
Elliðaár en hún var byggð ár-
ið 1883. Meðfram Fræðslu-
stígnum eru skilti með mynd-
um og texta þar sem fram
koma upplýsingar um svæðið
og tengjast meðal annars
náttúru þess og sögu.
Hjóluðu alla leið
í Heiðmörk
Meðal gesta við kynn-
inguna voru Oddur Guð-
mundsson og Björn Orri Her-
mannsson, sem báðir eru
nemendur í 6. bekk í Ártúns-
skóla. Þeir voru ánægðir með
stíginn og sögðust nota hann í
hjólreiðatúrum þótt enn væri
veðrið ekki orðið nógu gott til
að hægt væri að fara í langar
ferðir. Aðspurðir sögðust þeir
hafa hjólað alla leið í Heið-
mörk og lítið mál væri að
hjóla þá leið.
Fyrir nokkrum árum gaf
Umhverfismálaráð Reykja-
víkur út yfirlitsbækling um
helstu gönguleiðir í Reykja-
vík. Umhverfis- og heilbrigð-
isnefnd hefur nú látið end-
urgera þennan bækling en í
honum má finna umfjöllun
um ýmis útivistarsvæði höf-
uðborgarinnar, svo sem í
Öskjuhlíð, Viðey, við Esju og
á Austurheiðum. Auk þess er
í bæklingnum stórt kort af
Reykjavík sem sýnir auk
annars göngustíga borgar-
innar allt frá Seltjarnarnesi
að eystri mörkum byggðar í
borginni.
Umhverfisdagar
um helgina
Á Umhverfisdögum sveit-
arfélaganna sem haldnir eru
af sveitarfélögum höfuðborg-
arsvæðisins um þessa helgi
er boðið upp á fjölbreytta
dagskrá. Í dag, laugardag,
verður leiðsögn um Grasa-
garðinn í Laugardal milli kl.
10-12 og 13-15. Mæting er við
garðskálann.
Fræðslustígurinn í Elliða-
árdalnum verður genginn kl.
10 og er mæting við Minja-
safnið. Þá verður hreinsistöð-
in Skólpa við Ánanaust opin
gestum milli 13 og 16.
Á sunnudag verður farinn
hjólreiðatúr frá Seltjarnar-
nesi til Hafnarfjarðar. Lagt
er af stað frá Sundlaug Sel-
tjarnarness kl. 12 með við-
komu í Laugardalnum kl.
13.30, Engihjalla í Kópavogi
kl. 14.30, Garðatorgi í Garða-
bæ kl. 15.30 og endað við
Víðistaðatún í Hafnarfirði kl.
16 Á áfangastöðum verður
boðið upp á létta hressingu
og er þátttakendum í sjálfs-
vald sett hversu langt þeir
hjóla.
Klukkan 13 verður farin
sameiginleg gönguferð Reyk-
víkinga og Kópavogsbúa um-
hverfis Elliðavatn. Gangan
hefst við sunnanvert vatnið.
Ný kort af gönguleiðum í Reykjavík og Fræðslustígur kynnt að viðstöddu fjölmenni
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Einar Gunnlaugsson jarð-
fræðingur sýnir krökkun-
um áhugaverða steina.
Oddur Guðmundsson og Björn Orri Hermannsson, nem-
endur í 6. bekk í Ártúnsskóla, skoðu göngustígana í fylgd
umsjónarkennara og bekkjarfélaga.
Elliðaárdalur
Konum var
drekkt í
Skötufossi
BONSAI-GARÐURINN í
Hellisgerði verður opnaður á
mánudaginn.
Plönturnar hafa verið
klipptar, snyrtar til og þeim
hefur verið umpottað eftir
dvala yfir vetrartímann og
eru núna tilbúnar til sýningar.
Í fréttatilkynningu segir að
aðsóknin í garðinn í fyrra hafi
verið góð og að meðaltali hafi
um og yfir 400 manns heim-
sótt garðinn mánaðarlega.
Til loka ágúst verður
Bonsai-garðurinn opinn milli
kl. 15og 22 alla virka daga en
um helgar milli kl. 13 og 18.
Bonsai-
garðurinn
opnaður
Hellisgerði
FRAMKVÆMDIR við end-
urbyggingu Reykjavíkurflug-
vallar halda áfram og nú hef-
ur Ístak tekið til við
norður-suðurbrautina af full-
um krafti. Brautin hefur frá
síðustu mánaðamótum verið
lokuð fyrir allri flugumferð.
Jarðvegsskipti eiga sér stað á
norðurenda brautarinnar en
framkvæmdir við suðurend-
ann eru langt komnar. Mal-
bikun fer að hefjast þar fljót-
lega.
Mikið álag á
austur-vestur-braut
Að sögn Auðar Eyvinds,
verkefnisstjóra hjá Flugmála-
stjórn, eru framkvæmdir á
áætlun og vonast til að suður-
endinn, með um þúsund
metra braut, verði tekinn í
notkun 7. júlí næstkomandi.
Áætlanir miðast við að braut-
in í heild sinni verði tilbúin 1.
október í haust, ásamt nýrri
akbraut við norðurendann
sem kemur til með að auka
verulega öryggi vallarins.
Allri flugumferð um
Reykjavíkurflugvöll er nú
beint á austur-vesturbrautina
á meðan framkvæmdir standa
yfir. Álagið er því mikið á
þeirri braut en ekki hefur
þurft að loka vellinum vegna
óhagstæðra vindátta. Þó stóð
tæpt í vikunni þegar stífar
norðanáttir létu á sér kræla
og við lá að leggja þyrfti niður
áætlunarflug.
Norður-suður-braut á áætlun
Vatnsmýri
Morgunblaðið/ÁsdísNorður-suður-braut Reykjavíkurflugvallar á að vera tilbúin 1. október í haust.
HUGMYNDIR um bryggju-
hverfi á landfyllingu í Arnar-
nesvogi eru meðal þess sem
skipulagsnefnd Garðabæjar
mun hafa til hliðsjónar í vinnu
við breytingar á aðalskipulagi
svæðisins, sem verið hefur at-
hafnasvæði Stálvíkur við Arn-
arnesvog og svæðið vestan við
það. Bæjarstjórn ákvað í vik-
unni að fela skipulagsnefnd-
inni að hefja vinnu við breyt-
ingarnar og vill að
hugmyndir, sem kynntar hafa
verið um nýtt íbúðahverfi við
Arnarnesvog, verði hafðar til
hliðsjónar.
„Það var ákveðið að í stað-
inn fyrir iðnaðarsvæði við
voginn yrði byggt íbúðasvæði
og á öðrum reit þar sem fyr-
irhugað er að hafa iðnað,
verslun eða íbúðir yrðu líka
byggðar íbúðir,“ segir Laufey
Jóhannsdóttir, forseti bæjar-
stjórnar aðspurð um málið.
Hún segir enga ákvörðun
hafa verið tekna um hvort af
landfyllingu verður úti í vogn-
um en að hugmyndir þar um
verði teknar með í skipulags-
vinnuna. „Það er verið að fara
heildstætt í þetta verkefni og
skipulagsnefnd er falið að
skoða allar hugmyndir. Síðan
þarf það að fara í kynningu og
ef það nær fram þá verður það
að endanlegu skipulagi.“
Laufey segir aðalskipulags-
breytingar taka langan tíma
en segist búast við að á haust-
mánuðum fari fyrstu tillögur
að aðalskipulaginu að líta
dagsins ljós.
Breyting á aðalskipulagi
Bryggjuhverfi
til skoðunar í
skipulagsnefnd
Arnarnesvogur
EF bryggja er innan seil-
ingar fylgir það ævinlega
vorinu og sumrinu að menn
taka að venja þangað komur
sínar með veiðistöng og aðr-
ar nauðsynlegar græjur sem
þarf til að krækja í eitthvað
úr djúpinu. Þetta sannaðist á
feðgunum Helga Aroni
Ágússyni 8 ára og Ágústi
Helgasyni bakara, sem
Morgunblaðið hitti fyrir á
bryggjusporði við Suð-
urbakka Hafnarfjarð-
arhafnar í vikunni. Að-
spurðir kváðust þeir vera
nýkomnir og ekki hafa feng-
ið neitt ennþá, en ættu von á
þorski, og kannski ufsa eða
kola. Og ef ekki einhverri
þessara tegunda, þá allavega
marhnúti.
Þeir feðgar egndu með
gervibeitu, svonefndum
kraftnöggum. „Þetta virkaði
ágætlega á silunginn í Hítar-
vatni,“ sagði Ágúst, þegar
hann var spurður að því
hvort hafnfirsku fiskunum
þætti slíkt girnilegur biti.
Helgi sagðist ekki fara oft
að veiða, en sér fyndist það
samt mjög gaman. Hann
kynni þó ekki að leysa
fiskana af og yrði að fá að-
stoð hjá pabba við það, enda
gæti það stundum verið dá-
lítið flókið mál.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Þeir voru glaðir í bragði, feðgarnir Helgi og Ágúst, enda eflaust nóg af fiski þarna niðri.
Dorgað á bryggju-
sporðinum
Hafnarfjörður