Morgunblaðið - 19.05.2001, Page 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001 23
ÍSINN fór alveg af Syðri-Flóa 14.
maí en Ytri-Flói varð íslaus helgina
4.-5. maí og er þetta nærri meðalári
samkvæmt yfirliti Sigurjóns Rist.
Dæling á kísilgúr úr vatninu hófst 8.
maí. Dælt er af svæði norðvestur af
Ytri-Höfða. Síðastliðinn vetur var
gúrinn kannaður með mælingum nið-
ur um ísinn og er nú svæði valið í
samræmi við þær mælingar. Segja
starfsmenn að rífandi gangur sé í
dælingunni, stutt leiðsla úti og gott
hráefni.
Sumarið 1956 var fyrst dælt kís-
ilgúr úr Mývatni og var það gert und-
ir stjórn Baldurs Líndal en á reikn-
ing Raforkumálaskrifstofunnar,
verkstjóri var Snæbjörn Pétursson í
Reynihlíð. Slegið var þá saman
stórum tunnufleka og þar gerður
vinnupallur með bensíndrifinni mið-
flóttaaflsdælu en 6" leiðsla til lands
við Hrútavogstanga. Þangað var síð-
an dælt allmiklu magni af botnleðju
um sumarið til prufu.
Haustið 1964 var sami fleki settur
á vatn öðru sinni en þá var dráttarvél
Jóns Aðalsteinssonar í Belg með spili
og gálga höfð á flekanum og leðja
krökuð upp af botninum með krabba
og henni mokað í tunnur þar úti á
flekanum, Jón Sigtryggsson í Syðri-
Neslöndum sigldi síðan með tunn-
urnar til lands á báti sínum, Sleipni.
Þessari dælingu lauk þegar flekann
rak upp á Birgissker í óveðri.
Loks var það 5. september 1965 að
dæling var fyrst reynd með dælu-
búnaði þeim sem síðan hefur verið
notaður við dælingu vegna Kísiliðj-
unnar.
Kuldalegt var við Helgavog í vik-
unni, norðan hríðarhraglandi, all-
hvasst með 4° frosti og eru það slæm
umskipti frá annars ágætri veðráttu
að undanförnu.
Allur fugl er kominn í sveitina og
þar með sáust nokkrir helsingjar á
dögunum í Hofstaðaheiðinni í sól og
sunnanátt. Er það fremur óvenjuleg
sjón hér, því að þeirra leið liggur
frekar um Langadalinn.
Ísinn farinn
og dæling
á kísilgúr
hafin
Morgunblaðið/BFH
Kuldalegt var um að litast við
hafnarmannvirkin í Helgavogi í
áhlaupinu á þriðjudaginn.
Mývatn
SILUNGAPOLLUR, Þórustöðum
II, Ölfusi, hefur nú verið opnaður
aftur eftir vetrarhlé. Þetta er annað
sumarið sem þetta tilbúna veiðivatn
er opið og er ekki annað hægt að
segja en að þessari nýbreytni í ferða-
þjónustu á svæðinu hafi verið mjög
vel tekið, bæði af Íslendingum og er-
lendum ferðamönnum.
Nægur fiskur
Alls veiddust um 1.200 fiskar á síð-
asta ári, regnbogasilungur, lax og
bleikja, en þess er gætt að alltaf sé
nægur fiskur í vatninu og er sleppt í
það vikulega, þannig að ávallt eru
nokkur hundruð fiskar í því, sem á að
tryggja góða veiði. Fyrsta opnunar-
helgin í Silungapolli var lífleg og
margir settu í og glímdu við fisk og
sumir stóra og myndarlega fiska.
Áhugi erlendra ferðamanna á
veiði var ótrúlega mikill í fyrra og
kom að sögn forsvarsmanna pollsins
skemmtilega á óvart. Einnig lögðu
veiðimenn úr öðrum byggðarlögum
oft á sig langa leið til að koma í veiði
og sumarbústaðafólk kunni líka vel
að meta þessa afþreyingu.
Ungir og upprennandi veiðimenn
veiddu þar margir sinn fyrsta fisk
með dyggri aðstoð foreldra sinna.
Einnig nýttu sér þá vatnið eldri og
reyndari veiðimenn, enda er góð að-
staða fyrir alla aldurshópa við Sil-
ungapoll.
„Gullið tækifæri“
„Nú er gullið tækifæri fyrir flugu-
veiðimenn reynda og ekki síst
óreyndra að efna veiðiloforð vetrar-
ins og æfa fluguveiði í réttum skil-
yrðum,“ sagði Gunnar Sigurgeirsson
einn forsvarsmanna Silungapollsins.
Til stendur að halda fluguveiðinám-
skeið við Silungapoll nú í byrjun
sumars og eru þeir sem áhuga hafa
hvattir til að hafa samband við um-
sjónarmann. Opið er í maí, laugar-
daga og sunnudaga frá kl. 13 til 18 en
í júní verður opnunartíminn lengdur.
Silungapollur í Ölfusi opnaður
Selfoss
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Fjölmenni var við Silungapoll fyrstu helgina eftir að opnað var. Kristján
og Kristrún fengu sér bíltúr austur fyrir fjall og settu í þann stóra, 9
punda bleikju, sem veiddist á spún.