Morgunblaðið - 19.05.2001, Qupperneq 25
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001 25
STJÓRNENDUR SAS segjast hafa
áhuga á að kaupa minni flugfélög í
Eystrasaltslöndunum og á heima-
markaði en samruni við annað stórt
evrópskt flugfélag komi ekki til
greina. Ætla má að þessi áhugi SAS
taki líka til Íslands og talsmenn
félagsins vilja ekki útiloka kaup í ís-
lensku flugfélagi, þ.e. Flugleiðum.
Í viðtali við The Financial Times
segir Jørgen Lindgaard, forstjóri
SAS, að stefnan sé að SAS stækki
um 50% á næstu fimm árum og
verði þá með sterka markaðshlut-
deild á flugleiðunum í Norður-Evr-
ópu. „Ég lít svo á að SAS verði í
framtíðinni sjálfstætt flugfélag sem
kaupi minni flugfélög á heimamark-
aði sínum til þess að ná að vaxa.“
Lindgaard skilgreinir heimamarkað
SAS sem Skandinavíu, Eystrasalts-
löndin, Pólland og norðurhluta
Þýskalands. Hann segir að ekki
verði komist hjá frekari samþjöpp-
un á evrópskum flugmarkaði til
þess að ná niður kostnaði og auka
arðsemi flugfélaganna. Lindgaard
segir að SAS sé það stórt félag að
það geti staðið eitt, það hafi mjög
sterka stöðu í Skandinavíu og hafi
fjárhagslega burði til þess að
stækka.
Heimamarkaðurinn teygir
sig í vestur og austur
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Henrik Stensen, upplýsingafulltrúi
SAS, að markmið nýrrar yfirstjórn-
ar SAS séu skýr, þ.e. að SAS verði
eitt af þeim flugfélögum sem muni
taka virkan þátt í endurskipulagn-
ingu evrópsks flugmarkaðar á
næstu fimm til tíu árum. „Við ætl-
um okkur að taka frumkvæðið í
stað þess að verða ef til vill fórn-
arlamb annarra félaga í þessum
geira.“ Aðspurður um hugsanleg
kaup á öðrum flugfélögum á heima-
markaði SAS segir Stensen að
fyrsta markmiðið sé að auka umsvif
SAS eins og það er nú. „Við munum
síðan meta þau tækifæri sem bjóð-
ast varðandi kaup á öðrum flug-
félögum og við viljum fyrirfram
ekki útiloka nokkuð í því sambandi
heldur halda öllum möguleikum
opnum.“ Stensen segir að SAS vilji
ekki skilgreina heimamarkað sinn
mjög nákvæmlega, það sé ljóst að
hann taki til Eystrasaltssvæðisins
en hann teygi sig líka bæði í austur-
og vesturátt. Aðspurður um hugs-
anleg kaup SAS á bréfum í Flug-
leiðum segir Stensen að ekki liggi
fyrir beinar áætlanir um slíkt. „Og
ef við hefðum slík áform myndi ég
að sjálfsögðu ekki segja frá þeim.
Við höldum öllum möguleikum opn-
um.“
SAS stefnir að því að kaupa minni flugfélög á heimamarkaði
Útilokum ekki kaup
í íslensku flugfélagi
Reuters
SAS stefnir að því að vaxa um 50% á heimamarkaði á næstu fimm árum.
FJÁRFESTINGARBANKINN
Morgan Stanley Dean Witter birti
í gær endurskoðað álit sitt á de-
CODE genetics, móðurfélagi Ís-
lenskrar erfðagreiningar. Morgan
Stanley mælti áður með kaupum á
hlutabréfum í deCODE, en nú hef-
ur það hlutlausa afstöðu til þess
hvort fjárfestar skuli kaupa eða
selja bréfin.
Fjárfestingarbankinn segir
tekjur fyrsta ársfjórðungs um það
bil helming þess sem hann hafði
spáð og stafi það af töfum í sam-
starfi við Roche Holding. Bankinn
segir að vegna innri endurskipu-
lagningar hjá Roche sé ekki hægt
að útiloka frekari tafir á tekjum de-
CODE.
Fjárfestingarbankinn Lehman
Brothers, sem ásamt Morgan
Stanley Dean Witter sá um útboð
deCODE, birti í fyrradag álit sitt á
gengi félagsins. Álit bankans var
jákvætt, hann mælir með kaupum í
deCODE og telur rétt verð vera 15
Bandaríkjadali.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Páll Magnússon, blaðafulltrúi Ís-
lenskrar erfðagreiningar, að félag-
ið hefði ekki lagt í vana sinn að lýsa
skoðun sinni á mati greiningaraðila
og það mundi ekki setja fram skoð-
un sína á þessu mati nú.
Morgan Stanley lækk-
ar mat sitt á deCODE
NORSKA símafyrirtækið Telenor
staðfesti í gær að viðræður sínar við
bandaríska fyrirtækið SBC um kaup
á hlut þess í danska símfyrirtækinu
TDC væru farnar út um þúfur. Segir
í Financial Times að ástæðan sé
ósætti TDC, áður TeleDanmark, og
SBC um framtíð símafyrirtækisins
en SBC hafði áhuga á að halda eftir
hlut í fyrirtækinu. Talsmaður Tele-
nor, Dag Melgaard, tók í gær fram
að ekki hefði verið rætt um samruna
fyrirtækjanna þótt slíkt hafi verið
fullyrt í fjölmiðlum. Sagði hann Tele-
nor ekki einu sinni hafa rætt við
TDC, heldur aðeins bandaríska fyr-
irtækið. Þá ítrekaði hann að um
óformlegar viðræður hefði verið að
ræða, alls enga samningagerð.
Melgaard sagði að með viðræðuslit-
unum væri jafnframt tekið fyrir
áhuga Telenor á danska símafyrir-
tækinu, Norðmenn myndu ekki eiga
frumkvæði að frekari viðræðum.
SBC er hins vegar reiðubúið til að
ræða sölu á hlut sínum í TDC. Frétt-
in um viðræðuslitin varð til þess að
hlutabréf í TDC lækkuðu lítillega en
þau hafa hækkað talsvert frá því að
áhugi Telenor var upplýstur. Hluta-
bréf í norska fyrirtækinu tóku aftur
á móti kipp upp á við, um 3,9%, en
þau féllu í verði um 2,4% þegar frétt-
in um viðræður við SBC lak út.
Telenor hættir við
kaup á TDC
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.