Morgunblaðið - 19.05.2001, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Lífshættir
Matarkúrar fræga fólks-
ins geta verið slæmir.
Lyf
Nýtt lyf gegn krabba-
meini vekur athygli.
Læknisfræði
Æðaslit getur valdið
andlegri vanlíðan.
Sjúkdómar
Óhefðbundnar
lækningar gagnrýndarHEILSA
Spurning: Ég hef mjög mikið æða-
slit á fótum, svo mikið að ég
skammast mín fyrir að fara í sund
eða sturtu í líkamsræktarstöðvum.
Æðaslitið byrjaði þegar ég var um
það bil 25 ára en nú er ég 50 ára.
Mér var sagt að föðursystur mínar
hefðu allar verið svona og ekkert
væri hægt að gera til að laga þetta
lýti. En mig langar samt að for-
vitnast hvort eitthvað sé hægt að
gera því þetta plagar mig mjög. Er
hægt að laga þetta? Ef það er
hægt, hverjir gera slíkar aðgerðir
og hvað þyrfti ég að greiða fyrir
slíka aðgerð? Með fyrirfram þökk
fyrir svar.
Svar: Háræðaslit eða æðaslit er
rangnefni vegna þess að ekki er
um slitnar æðar að ræða heldur
einungis víkkaðar. Þessi orð eru
samt almennt notuð og erfitt að
breyta því. Til eru einnig orðin
háræðastjarna, háræðaflétta og
köngulflétta til að lýsa þessum fyr-
irbærum.
Um er að ræða útvíkkaðar æðar
í húðinni, venjulega háræðar sem
eru minnstu æðarnar. Við eðlilegar
aðstæður eru þessar æðar svo
smáar að þær sjást alls ekki en ef
þær víkka út verða þær sýnilegar.
Æðaslit byrjar oftast á fertugs-
eða fimmtugsaldri en getur líka
byrjað mun fyrr og er oft mest
áberandi á fótum, handleggjum og
í andliti.
Þetta fyrirbæri er algerlega
meinlaust og er venjulega án
óþæginda en það getur verið til
lýta. Á fótum má ekki rugla þessu
saman við æðahnúta sem eru stórir
og bláir (víkkaðar bláæðar) en
æðaslit er fíngert og oft blóðrautt
eða bláleitt á lit. Ekki er vitað um
orsakir æðaslits annað en að það
fylgir aldrinum og það getur einnig
fylgt vissum sjúkdómum og stöku
sinnum er ættarfylgni. Algengi
þessa kvilla hefur lítið verið rann-
sakað en það virðist algengara hjá
konum en körlum. Venjulegi gang-
urinn er hægfara aukning. Æðaslit
hefur engin áhrif á almennt heilsu-
far og ekki er ástæða til að með-
höndla það nema þegar af því er
verulegt lýti. Stundum er reynt að
sprauta í æðarnar efnum sem loka
þeim en það er vandasamt og ber
misjafnan árangur. Sumir húð-
sjúkdómalæknar hafa yfir að ráða
tæki sem getur eytt æðasliti. Þetta
tæki sendir örstutt leiftur af
sterku ljósi (leysigeislum) inn í
húðina sem skemmir æðarnar
þannig að þær minnka eða lokast,
en það er það sem sóst er eftir og
er alveg meinlaust. Þetta veldur
litlum sem engum sársauka og
aukaverkanir eru oftast mildar.
Stundum myndast smávegis roði
eða bólga og jafnvel blöðrur en það
lagast á fáeinum dögum. Stundum
nægir ein slík meðferð en það get-
ur þurft að meðhöndla svæðið
nokkrum sinnum til að ná besta
mögulega árangri. Með þessari
nýju tækni hafa möguleikarnir á að
bæta útlit fólks með æðaslit gjör-
breyst. En þar með er sagan ekki
öll sögð því þessa ljóstækni má
nota við meðferð á ýmsum öðrum
húðkvillum svo sem valbrá, elli-
blettum, húðflúri, fæðing-
arblettum, freknum og óæskilegu
hári. Valbrá er, eins og æðaslit, út-
víkkaðar æðar í húðinni og með
ljóstækni hafa möguleikarnir á
meðferð gjörbreyst. Elliblettir,
fæðingarblettir og freknur eru
stundum þannig að ástæða er til að
eyða þeim og má í flestum tilfellum
gera það með ljóstækni. Suma
þessara bletta verður þó að fjar-
lægja með því að skera þá burt,
m.a. þá sem eru illkynja. Húðlækn-
ar og lýtalæknar hafa mikið að
gera við að fjarlægja húðflúr sem
fólk hefur látið setja á sig án þess
að hugsa dæmið til enda. Sumt
húðflúr er best að fjarlægja með
skurðaðgerð en stundum er einfalt
og áhrifaríkt að nota ljóstækni.
Óæskileg hár í andliti kvenna
eru algengt vandamál sem ýmiss
konar ráðum hefur verið beitt við.
Með þessari ljóstækni má stilla
ljósið þannig að það skemmi hár-
sekkina og við það detta hárin af
og koma ekki aftur, a.m.k. ekki í
langan tíma. Þessi ljóstæki er sem
sagt hin gagnlegasta og má nota
þau við meðferð ýmiss konar kvilla.
Það eru því aðallega húðlæknar og
lýtalæknar sem geta meðhöndlað
æðaslit. Ekki er um eiginlegan
sjúkdóm að ræða og þess vegna
tekur Tryggingastofnun ekki þátt í
kostnaði sem er talsverður. Best er
að fara til læknis sem þá getur
metið möguleika á meðferð og gef-
ið áætlun um kostnað.
Hvað er æðaslit?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Útvíkkaðar
æðar
Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækn-
inn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið
er á móti spurningum á virkum dögum milli
klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og bréfum
eða símbréfum merkt: Vikulok. Fax
5691222. Einnig geta lesendur sent fyrir-
spurnir sínar með tölvupósti á netfang
Magnúsar Jóhannssonar: elmag@hot-
mail.com.
ÞAÐ eru gömul sannindi að lífs-
gleðin létti lífið og nýlega birtar
rannsóknir styðja þessa gömlu
fullyrðingu vísindalegum rökum. Í
15 ár hefur David Snowdon, pró-
fessor í taugalíffræði við háskól-
ann í Kentucky, fylgt efir 678
nunnum við Systraskólann Notre
Dame og fundið út að heilablæð-
ingar eða höfuðáverkar geta aukið
líkur á elliglöpum og Alzheimer
seinna á ævinni.
Þjálfun hugans
frá unga aldri
Snowdon og samstarfsmenn
hans skoðuðu dagbækur sem 180
af nunnunum höfðu skrifað þegar
þær voru á þrítugsaldri og komust
að því að þær sem tjáðu sig á flók-
inn og margbreytilegan hátt voru
ólíklegri til að fá Alzheimer seinna
á ævinni. Þannig telja þeir að auk-
in virkni heilans á unga aldri geti
dregið mikið úr líkum á heil-
skemmdum sem séu einkennandi
fyrir Alzheimer.
Lífsgleði
eða bölsýni?
Með því að fara aftur yfir dag-
bækurnar og kortleggja á hvaða
hátt nunnurnar tjáðu sig með orð-
um eins og hamingja, gleði, ást og
von komust Snowdon og félagar að
þeirri niðurstöðu að þær nunnur
sem notuðu mest af jákvæðum
orðum til að lýsa líðan sinni á þrí-
tugsaldri lifðu yfirleitt 10 árum
lengur en þær sem lýstu dapur-
legri líðan, leiða, vonleysi og svart-
sýni. „Það er gott að vera ham-
ingjusamur og vongóður,“ segir
Snowdon. „Vellíðan dregur úr
streitu og það hefur góð áhrif á
líkamann. Hér höfum við enn eina
ábendingu um hvað fólk getur gert
til að halda góðri heilsu.“
Greint er frá rannsókninni í
tímaritinu The Journal of Person-
ality and Social Psychology.
Lífsglaðar nunnur
sleppa við Alzheimer
Associated Press
Lífsgleðin lengir lífið og líklega ættum við því öll að leika okkur meira
eins og þessi ítalska nunna sem hér sýnir mikil tilþrif í fótbolta.
Lexington, AP.
Nýleg rannsókn á
öldrun og Alzheim-
ersjúkdómnum bendir
til þess að jákvæð við-
horf og lífsgleði strax á
unga aldri dragi úr
líkum á sjúkdómum og
jafnvel lengi lífið.
TENGLAR
..............................................
Tímaritið The Journal of Personality
and Social Psychology.
www.apa.org/journals/psp.html
Bandarískar rannsóknir á öldrun og elliglöpum
ATVINNUTÓNLISTARFÓLK
sem hóf tónlistarnám á unga aldri
hefur meira af gráu efni á sumum
svæðum í heilanum en þeir sem
ekki leggja stund á tónlist, sam-
kvæmt niðurstöðum rannsóknar
sem unnin var við Harvard-
háskóla. Grátt efni er gert úr
heilafrumum og tengingunum á
milli þeirra.
Ekki er ljóst hvað þessara nið-
urstöður þýða fyrir tónlistarfólk
og okkur hin, segir aðalhöfundur
rannsóknarinnar, dr. Gottfried
Schlaug, sem er aðstoðarprófess-
or í taugasjúkdómafræði við
læknadeild skólans.
Heilinn í 15 karlkyns tónlist-
armönnum, sem höfðu byrjað tón-
listarnám um þriggja ára aldur,
var skoðaður með segulheila-
myndatækni, og borinn saman við
fimmtán manns sem ekki stund-
uðu tónlist. Schlaug segir að
strangar æfingar á þeim tíma þeg-
ar heilinn vex og þroskast hvað
mest kunni að stuðla að því að nýj-
ar taugatengingar verði til í skyn-
hreyfisvæðum heilans.
Annar möguleiki sé sá, að börn
sem fari að leggja stund á tónlist
hafi fæðst með öðru vísi heila en
önnur börn og það sé þessi munur
sem leiði til tónlistarhæfileika
þeirra, segir Schlaug. Frekari
rannsókna sé þörf til að skera úr
um hvort um orsakatengsl sé að
ræða.
Reuters
Gáfumenni.
Tónlistarfólk hef-
ur meira af gráu
efni í heilanum
The New York Times Syndicate.