Morgunblaðið - 19.05.2001, Qupperneq 38
38 LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
Á MEÐAN atvinnulífiðhefur í heild vaxið umfjórðung hefur hluturríkisins í atvinnulífinu
vaxið um þriðjung milli áranna 1993
og 1999. Fákeppni einkennir ís-
lenskt atvinnulíf þar sem eitt til
fjögur fyrirtæki eru leiðandi á
mörkuðum, ekki síst í nýjum at-
vinnugreinum, fyrirtækjablokkum
hefur fjölgað og hinar eldri haldið
umsvifum sínum. Þetta er meðal
helstu niðurstaðna skýrslu Sam-
keppnisstofnunar um stjórnunar-
og eignatengsl í íslensku atvinnulífi
sem Valgerður Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, kynnti í
gær á fundi með fjölmiðlum.
Skýrslan miðast við upplýsingar
um atvinnulífið frá árinu 1999 en
sambærileg skýrsla kom út árið
1994 og miðaðist þá við gögn frá
1993. Í apríl 2000 fól ráðherra Sam-
keppnisstofnun að gera þessa út-
tekt þar sem þingmenn Samfylk-
ingarinnar höfðu lagt fram þá
beiðni á Alþingi. Skýrslunni var
einnig dreift til þingmanna í gær.
Svipaðar niðurstöður
og frá árinu 1993
Samkeppnisstofnun vekur at-
hygli á því að þrátt fyrir ýmsar
breytingar í íslensku atvinnulífi frá
1993 og umhverfi þess,
s.s. nýjar atvinnugrein-
ar, ný kynslóð eigenda,
aukin einkavæðing og
frjálsræði í viðskiptum,
séu niðurstöður úttekt-
arinnar svipaðar nú. Meðal niður-
staðna er sú að lítil tengsl séu á milli
eignar og valds í fyrirtækjum. Meg-
inskýringin sé sú að ríki og sveit-
arfélög, ásamt lífeyrissjóðum og
sjálfseignarstofnunum, eigi drjúg-
an hluta atvinnulífsins. Þá séu mörg
stærstu hlutafélög landsins að
stórum hluta í dreifðri eign almenn-
ings sem hafi lítil afskipti af stjórn-
un þeirra. Stofnunin segir að
stjórnarmenn og stjórnendur
stærstu fyrirtækja landsins eigi
sjálfir lítinn eða engan hlut í þeim
fyrirtækjum sem þeir séu í forsvari
fyrir. Eignarhaldið sjálft hefur
þróast þannig að stærstu eigend-
urnir eiga stærri hlut 1999 en árið
1993. Þá segir í niðurstöðunum að
aukinn hlutur lífeyrissjóða í at-
vinnulífinu og dreifð sala hluta til
almennings hafi dregið úr tengslum
milli eignar og valds.
Sem skýringu á aukinni hlutdeild
ríkisins nefnir Samkeppnisstofnun
að stærstu greinarnar þar sem ríkið
á stóran hlut, s.s. fjármál, fjarskipti
og orkumál, hafi vaxið meira en aðr-
ar. Um þetta segir m.a. í skýrsl-
unni: „Áhrif ríkisins í atvinnulífinu
byggjast að hluta á umsvifum sam-
fara vel á annað hundrað milljarða
króna eignarhluta í atvinnufyrir-
tækjum, að hluta á valdi til að út-
hluta takmarkaðri aðstöðu til at-
vinnurekstrar og að hluta á því að
setja atvinnulífinu reglur og líta eft-
ir framkvæmd þeirra. Þrátt fyrir
einkavæðingu og sölu á fyrirtækj-
um ríkisins hefur hlutur ríkisins í
atvinnulífinu vaxið að verðgildi og
hlutfalli. Helsta skýringin er að fyr-
irtæki í ríkiseign hafa vaxið og
dafnað umfram atvinnulífið í heild.
Síðan 1999 hefur þó heldur dregið
úr þátttöku ríkisins í atvinnulífinu
og virðist að svo muni fram halda á
næstu misserum.“
Nýjar fyrirtækjablokkir
Nýjar blokkir eru sagðar hafa
komið til sögunnar frá 1993 og
þrjár mest áberandi.
„Ein er á sviði verslunar en hinar
tvær eru í hátæknigreinum. Önnur
þeirra er á sviði margmiðlunar með
ljósvakafjölmiðlun sem burðarás en
hin er í upplýsingaiðn-
aði þar sem samþjöppun
eykst hröðum skrefum,“
segir m.a. í skýrslunni.
Vakin er í skýrslunni
athygli á umfangi lífeyr-
issjóðanna á fjármagnsmarkaði. Í
ljós kemur tilhneiging hjá t.d. Sam-
vinnulífeyrissjóðnum til að fjárfesta
frekar í fyrirtækjum sem áður
höfðu tengsl við Samband íslenskra
samvinnufélaga, SÍS. Lífeyrissjóð-
ur verslunarmanna fjárfesti aftur á
móti gjarnan í annarri blokk.
Skýrsluhöfundar Samkeppnis-
stofnunar telja eðlilegt a
hvað hafi verið haft að lei
þessum fjárfestingum.
Eignarhald olíufélagann
um útgerðarfélögum veku
athygli Samkeppnisstofnu
þetta atriði segir í skýrslun
„Þótt það hafi ekki veri
má ætla að þessi fjárfes
komið til vegna greiðslue
útgerðarfyrirtækja frekar
íufélögin hafi haft það á st
sinni að eignast hlut í útg
irtækjum. Olíufélögin hafa
selt þessa hluti sína þeg
hefur árað hjá útgerðinni.
beinir sjónum sérstaklega
inu er hinn sterki réttur ú
fyrirtækjanna til að nýta fi
sem flestir líta á sem fjöre
arinnar, og hið nána
samband olíufélaganna
við erlend stórfyrirtæki.
Rétt er að vekja athygli
á að „fyrirtækjablokkir“
hafa aukið hlut sinn í út-
gerð frá 1993 og spyr
gjarnan saman hagsmunir
eldsneyti, tryggingar og f
saman við hagsmuni útger
Við þessar aðstæður mynd
útboð á aðföngum útger
stuðla að aukinni samkepp
Samkeppnisstofnun kem
að þeirri niðurstöðu að ei
Fákeppni einken
– aukinn hlutur r
Fákeppni einkennir ís-
lenskt atvinnulíf sam-
kvæmt skýrslu Sam-
keppnisstofnunar, bæði
meðal eldri og nýrri
fyrirtækjablokka. Val-
gerður Sverrisdóttir
iðnaðarráðherra segir
aukinn hlut ríkisins
í atvinnulífinu hafa
komið sér á óvart.
Lítil tengsl
milli eignar
og valds
#& $
)2 !"
- 88:/
# $ -< 1;:/
# $ % - 88:/
&
-<516:/
'()* - 88:/
# $
!
-98:/
*+*,- - 88:/
8 5 7 4 9 8 9
$
-7;1;:/
- 88:/
"
@ $- 5:/
( 3
$
" -58:/
?,
"
)- 88:/
2 "$
& $
- 88:/
3
$" - 88:/
A
&0"
$ -48:/
!)$" -9 :/
3
$" - 88:/
A $ "$
-781 :/
Skýrsla Samkeppnisstofnunar um s
og eignatengsl í íslensku atvinnu
SAMSKIPTIN VIÐ JAPAN
TÍMI AÐHALDS
Þjóðin hefur búið við mikiðgóðæri undanfarin ár. Slíktímabil standa aldrei til ei-
lífðar eins og allir vita. Þótt há-
punktur þessa góðæris sé að öllum
líkindum að baki þýðir það ekki að
kreppa blasi við. Þvert á móti;
efnahagur þjóðarinnar er mjög
traustur en það er augljóst, að tími
aðhalds er genginn í garð.
Seint á síðasta ári mátti merkja,
að fyrirtæki voru byrjuð að und-
irbúa sig undir aukið aðhald í
rekstri og niðurskurð útgjalda.
Gera má ráð fyrir að flest atvinnu-
fyrirtæki landsmanna hafi frá ára-
mótum unnið skipulega að því að
auka aðhald með útgjöldum og
draga úr þeim eins og kostur er.
Slíkar samdráttaraðgerðir draga
úr viðskiptum. Þær þurfa hins veg-
ar ekki að leiða til versnandi af-
komu fyrirtækja heldur geta þær í
mörgum tilvikum leitt til þess að
reksturinn verður árangursríkari
og allavega skilvirkari.
Líklegt má telja, að einstakling-
ar og fyrirtæki verði varkárari í
fjárfestingum en tíðkazt hefur síð-
ustu árin. Lækkun á gengi krón-
unnar er áminning um, að miklar
erlendar lántökur til fjárfestinga í
íslenzkum eignum, sem ekki skila
tekjum í gjaldeyri fela í sér mikla
áhættu. Búast má við að fyrirtæki,
sem hafa stefnt á aukin umsvif
haldi að sér höndum um skeið.
Landsmenn eru smátt og smátt
að vakna til vitundar um breyttar
aðstæður. Fyrirtæki og heimili
munu draga úr útgjöldum og auka
sparnað eftir því, sem kostur er.
Hið sama á við um ríki og sveit-
arfélög. Raunar hafa alger um-
skipti orðið í ríkisfjármálum á und-
anförnum árum og að einhverju
leyti hjá sveitarfélögunum einnig.
Það skiptir máli, að aðhald í út-
gjöldum verði aukið á öllum svið-
um á næstu mánuðum en það er
líka mikilvægt að fólk geri sér
grein fyrir, að við erum ekki að
sigla inn í nýtt krepputímabil af
því tagi, sem við kynntumst fyrir
áratug. Þvert á móti má segja, að
við séum að stefna að eðlilegu
ástandi í efnahagsmálum. Góðæri
síðustu ára hefur verið svo mikið
að það getur ekki fallið undir skil-
greiningu á eðlilegu ástandi í efna-
hags- og atvinnumálum.
Undirstöðugreinar atvinnulífsins
standa traustum fótum. Sjávarút-
vegurinn er fjárhagslega sterkari
en fyrir áratug. Vísbendingar eru
um hækkandi afurðaverð á erlend-
um mörkuðum en að vísu hafa
menn áhyggjur af verri stöðu
þorskstofnsins en búizt var við.
Við eigum ýmissa kosta völ varð-
andi uppbyggingu stóriðju og nýj-
ar atvinnugreinar hafa skotið rót-
um. Þjóðin á töluverðar eignir í
útlöndum eftir þetta mikla góð-
æristímabil og atvinnufyrirtækin
hafa byggt upp starfsemi í öðrum
löndum, sem skilar tekjum hingað
heim. Það er þess vegna engin
ástæða til svartsýni. En óhófleg
bjartsýni undanfarinna ára á að
heyra fortíðinni til.
Það getur verið auðveldara að
venjast góðum tímum en venja sig
af þeim.
Í gær var fastaskrifstofa sendi-ráðs Japans á Íslandi opnuð
með formlegum hætti. Í haust
verður íslenzkt sendiráð opnað í
Tókýó. Þetta eru mikilvægir áfang-
ar í samskiptum Íslands og Japans.
Við Íslendingar höfum um langt
árabil átt þýðingarmikil viðskipti
við Japan. Íslenzk fyrirtæki hafa
starfrækt skrifstofur þar. Íslenzk
ungmenni hafa leitað þangað til
náms og m.a. lært að tala japönsku
en sú þekking er mikilvæg í sam-
skiptum okkar við Japan.
Japanir eru ein auðugasta þjóð í
heimi og Japan er mikilvægur
markaður fyrir íslenzkar sjávaraf-
urðir og margvíslegar framleiðslu-
vörur, sem tengjast sjávarútvegi.
Ekki er ólíklegt að með opnun ís-
lenzks sendiráðs í Japan og auk-
inni starfsemi Japana hér eigi
ferðamönnum frá Japan eftir að
fjölga . Víða um lönd eru Japanir
mikilvægir viðskiptavinir þeirra
fyrirtækja, sem starfa við ferða-
þjónustu. Þeir eiga áreiðanlega
eftir að verða það líka hér á Ís-
landi.
Í samtali við Morgunblaðið í
gær, sagði Masao Kawai, sendi-
herra Japans á Íslandi, m.a.:
„Hefðbundin mynd af Íslandi er
kannski sú, að landið sé mjög langt
í burtu, mjög kalt land þar sem
fiskveiðar skipta öllu máli. En ég
tel, að þetta sé ekki alveg rétt
mynd af landi og þjóð. Síðan ég
kom hingað hefur mér þótt mikið
koma til árangurs ykkar í efna-
hags- og atvinnumálum. Sá árang-
ur hefur ekki aðeins orðið til vegna
nýtingar á náttúruauðlindum í
landinu og umhverfis það, heldur
er þetta árangur, sem byggist á
miklu hugviti og mikilli vinnu íbú-
anna. Íbúafjöldi er innan við
300.000 manns, en samt er hér
þetta stórkostlega samfélag.“
Þetta eru vinsamleg orð í garð
okkar Íslendinga. Með opnun
fastaskrifstofu japanska sendiráðs-
ins á Íslandi og íslenzks sendiráðs
í Japan síðar á þessu ári hefur
grundvöllur verið lagður að stór-
auknum samskiptum okkar og Jap-
ana. Þótt mikill kostnaður sé þessu
samfara fyrir okkur Íslendinga má
telja víst að hann skili sér með
margvíslegum hætti í auknum við-
skiptum á milli landanna.
Við lærum margt af samskiptum
við aðrar þjóðir. Eitt af því, sem
við getum lært og höfum lært
vegna aukinna samskipta við As-
íuþjóðirnar, er betri nýting á fisk-
afurðum okkar. Fólk, sem hingað
hefur flutt frá Asíu, hefur vakið at-
hygli okkar vegna dugnaðar og
iðjusemi.
Þegar á allt er litið er rík ástæða
til að fagna auknum samskiptum
okkar við Japani og aðrar Asíu-
þjóðir.
SAMKEPPNISSTOFNUN segir í
skýrslunni um stjórnunar- og
eignatengsl að merki séu um
blokkir fyrirtækja í atvinnulífinu
og eldri blokkir hafi haldið
stöðu sinni frá síðustu könnun
1993.
„Stærstu fyrirtækin á sviði
trygginga, olíuverslunar, flutn-
inga og ferðaþjónustu tengjast
með gagnkvæmu eignarhaldi.
Stjórnunartengsl eru einnig
mikil þar sem sömu aðilar sitja í
stjórnum þessara fyrirtækja og
veita þeim forystu. Lýsingin hér
að framan fyrir árið 1999 er lík
lýsingu á stöðunni 1993 en nýjar
blokkir hafa síðan litið dagsins
ljós,“ segir m.a. í skýrslunni.
Í skýrslunni kemur ein
fram að á ýmsum sviðum
vinnulífsins tengist stór
irtæki. Er þar átt við blo
sem kenndar hafa verið
legu tali við „kolkrabban
„smokkfiskinn“. Tekið er
um Eimskip og Flugleiði
flutningamarkaði og þeim
ist Sjóvá-Almennar, Skel
og fleiri fyrirtæki eins o
bílaleigur og ferðaskrifs
flutningamarkaði sé einn
skip sem tengjast ferðas
stofu auk Vátryggingafé
lands og Olíufélagsins hf
Samkeppnisstofnun segir
sé þetta með líkum hætt
1993.
Staða fyrirtækja
blokka svipuð