Morgunblaðið - 19.05.2001, Síða 49
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001 49
Aðalfundur
Heilsuhringsins
verður haldinn í Norræna húsinu þriðjudaginn
22. maí kl. 20.00.
Að loknum aðalfundarstörfum kl. 21.00 verður
flutt erindi: Hefur geislun alvarleg áhrif á
heilsu fólks?
Fyrirlesari: Kári Einarsson, rafmagnsverkfr.
Allir velkomnir á fyrirlesturinn.
Stjórnin.
Aðalfundur
Íþróttafélagsins
Gerplu
verður haldinn mánudaginn 21. maí 2001
kl. 19.30 á Skemmuvegi 6, Kópavogi.
Dagskrá:
● Venjuleg aðalfundarstörf.
● Framtíðarhúsnæði.
● Önnur mál.
Þá er rétt að minna á Vorsýningu Gerplu
í Laugardalshöll 20. maí kl. 14.00.
Stjórnin.
Gigtarfélag Íslands
Aðalfundur
Aðalfundur Gigtarfélags Íslands verður haldinn
laugardaginn 26. maí kl. 14:00 á Grand Hótel
Reykjavík við Sigtún í Setrinu.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa heldur Jón
Þorsteinsson, gigtarlæknir, erindi, sem hann
nefnir: Gigt á þjóðveldisöld.
Gigtarfélags Íslands.
ÞORBJÖRN FISKANES hf.
Aðalfundur Þorbjarnar
Fiskaness hf.
fyrir árið 2000 verður haldinn í húsnæði félags-
ins í Hafnargötu 12 í Grindavík þriðjudaginn
22. maí 2001 kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 18. gr.
samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega uppborin.
Stjórn Þorbjarnar Fiskaness hf.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 20.00.
Ræðumaður Aril Edvardsen frá
Noregi.
Allir hjartanlega velkomnir á
meðan húsrúm leyfir.
gospel.is
Laugardaginn 19. maí
kl. 20.00 og sunnudaginn 20.
maí kl. 16.30 sameiginlegar sam-
komur í Hvítasunnukirkjunni.
Arild Edvarsen talar.
Allir velkomnir.
Mánudaginn 21. maí kl. 15.00:
Heimilasamband í Kirkjustræti 2.
Síðasta sinn fyrir sumarfrí.
Allar konur velkomnar.
Göngudagur FÍ 20. maí
2001.
Kl. 10.30 gönguferð á
Reykjanesi; Þráinsskjöldur —
Stóri Hrútur — Slaga, 6—7
klst. ganga. Fararstjórar Jónas
Haraldsson og Agnar Björnsson.
Verð kr. 1.500.
Kl. 13.00 „Fast þeir sóttu sjó-
inn“, ferð á Selatanga, þar
sem skoðaðar verða einar merk-
ustu minjar um forna verstöð og
útræði. Komið við í Seltúni og
Krísuvíkurkirkju. Fararstjóri Ólaf-
ur Sigurgeirsson. Verð kr. 1.200.
Veitingar í ferðalok innifald-
ar í báðum ferðum. Brottför
frá BSÍ, komið við í Mörkinni 6
og við kirkjugarðinn í Hafnar-
firði. Frítt fyrir börn að 15 ára
aldri í fylgd með forráðamönn-
um.
Hvítasunna með FÍ: Eiríksjök-
ull 1.—3. júní, Hvannadals-
hnúkur 1.—4. júní.
Pantið strax á skrifstofu, sími
568 2533. www.fi.is, textavarp
RUV bls. 619.
Sunnudagsferð 20. maí
kl. 10.30
Eldvörp - Méltunnuklif.
3. áfangi Reykjavegarins.
Verið með í þessari vinsælu 10
ferða raðgöngu, en alls tóku 229
þátt í fyrstu tveimur áföngunum.
Um 5 klst. fjölbreytt ganga.
Brottför frá BSÍ, stansað í Hafn-
arfirði við kirkjugarðinn.
Verð. 1.500 kr. fyrir félaga og
1.700 kr fyrir aðra.
Fimmtudagur 24. maí
kl. 10.30.
Fjallasyrpan 2. ferð: Akra-
fjall.
Bókið tímanlega í hvíta-
sunnuferðirnar:
1. 1.—4./6. Látrabjarg-Rauði-
sandur - Sjöundá.
2. 2.—4./6. Goðaland-Básar.
3. 2.—4./6. Fimmvörðuháls-Bás-
ar.
4. 4. 2.—4./6. Fimmvörðuháls,
skíðaferð inn á jökla.
Minnum á Lónsöræfi 1.—4./7.
og 11.—14./7.
Kynnið ykkur sumarleyfis-
ferðirnar á heimasíðu:
www.utivist.is
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
✝ Aðalbjörg Þorvaldsdóttirfæddist 1. október 1916 á Völl-
um í Þistilfirði í Norður-Þingeyj-
arsýslu. Hún andaðist á Sjúkra-
húsinu á Húsavík 9. maí
síðastliðinn. Foreldrar hennar
voru hjónin Þorvaldur Pálmi Guð-
mundsson bóndi á Völlum, f. 29.6.
1872, d. 15.11. 1953, og Jónína
Kristveig Kristjánsdóttir, f. 7.10.
1874, d. 26.4. 1947. Aðalbjörg var
tólfta í röðinni af þrettán systk-
inum sem eru Laufey, f. 1.11.
1897, d. 26.4. 1965, Guðmundur, f.
20.12. 1898, d. 2.6. 1977, Kristín, f.
28.3. 1901, d. 23.2. 1902, Kristín, f.
6.12. 1902, d. 24.8. 1985, Kristján,
f. 11.10. 1904, d. 19.1. 1930, Örn, f.
11.1. 1907, d. 29.12. 1989, Þór-
björgu og Helga Viðar. b) Jónína
Kristveig, f. 10.5. 1945, gift
Helga Sigurði Ásgrímssyni, f.
10.4. 1944, verkstjóra, og búa
þau á Dalvík. Þau eiga tvö börn:
Aðalbjörgu Grétu og Árna Geir.
Seinni maður Aðalbjargar er
Njáll Hólmgeirsson. Þau giftu
sig 3. júní 1962 og hófu þá fljót-
lega búskap í Víðum í Reykjadal.
Þar bjuggu þau til 1974, en
fluttu þá í Narfastaði í sömu
sveit. Þar bjuggu þau til 1986,
en urðu þá að bregða búi og
flytja til Húsavíkur. Bjuggu fyrst
í Þórshamri, en síðan í Hvammi,
dvalarheimili aldraðra. Síðustu
árin dvaldi Aðalbjörg á Sjúkra-
húsinu á Húsavík. Njáll, eftirlif-
andi eiginmaður hennar, dvelur í
Hvammi.
Útför Aðalbjargar verður gerð
frá Einarsstaðakirkju í Reykja-
dal í dag og hefst athöfnin
klukkan 14.
arinn, f. 15.1. 1909, býr á dval-
arheimili aldraðra á Þórshöfn,
Kristlaug, f. 24.10. 1910, d. 30.1.
1977, Hafliði, f. 5.11. 1911, d.
1.5. 1924, Þórey, f. 25.1. 1913, d.
12.5. 1957, Eiríkur, f. 11.1. 1914,
d. 30.8. 1991, og Ingibjörg, f. 8.3.
1921, d. 25.7. 1988.
Aðalbjörg giftist Katli Sigur-
geirssyni 14. maí 1939. Bjuggu
þau á föðurleifð hans, Stafni í
Reykjadal í Suður-Þingeyjar-
sýslu. Ketill lést 14.10. 1956.
Dætur þeirra eru: a) Kristín
Ingibjörg, f. 14.12. 1939, gift
Tryggva Stefánssyni, f. 30.12.
1936, bónda á Hallgilsstöðum í
Hálshreppi. Þau eiga fjögur
börn; Ketil Ingvar, Stefán, Aðal-
Bærinn Vellir í Þistilfirði stendur á hjalla
í Viðarfjallinu, rétt við sjóinn. Niður und-
an bænum er falleg vík, Viðarvík. Austan
við hana er Rauðanes sæbratt með þver-
hníptum björgum. Í Viðarvíkina fellur
Víðinesá og frá bænum og niður að henni
í snarbrattri, grasigróinni brekku, er
bugðóttur göngustígur. Eftir honum
þurfti áður að bera allt vatn til heim-
ilisþarfa, líka allan varning og sjávarfang
sem heimilið þurfti.
(Einar Kristjánsson frá
Hermundarfelli.)
Það er augljóst að á Völlum hefur
lífsbaráttan verið hörð. Börnin far-
in að hjálpa til strax og þau gátu.
Uppeldi við þannig aðstæður skóp,
undantekningarlítið, mannkosta-
fólk. Harðduglegt, hjálpfúst, hisp-
urslaust og fastheldið í skoðunum.
Gestrisið með afbrigðum en þó
fremur öllu öðru trygglynt og
hjartahlýtt. Þessa eiginleika alla
erfði Aðalbjörg, næst yngsta syst-
irin á Völlum, sem hér er kvödd.
Frá fermingaraldri var hún víða í
vistum, en veturinn 1936-37 var hún
á Húsmæðraskólanum á Laugum í
Reykjadal. Árið 1939 giftist hún
Katli Sigurgeirssyni í Stafni. Þar
bjuggu þau þangað til hann lést,
löngu fyrir aldur fram. Þau eign-
uðust tvær dætur: Kristínu hús-
móður á Hallgilsstöðum í Fnjóska-
dal og Jónínu húsmóður á Dalvík.
Aðalbjörg hélt áfram búskap í
Stafni, eftir að hún varð ekkja.
Vann einnig nokkra vetur í eldhúsi
Laugaskóla. Hún giftist árið 1962
Njáli Hólmgeirssyni á Hjalla í
Reykjadal. Þau bjuggu þar stutt og
fluttu fljótlega í Víða, ásamt föður
Njáls, Hólmgeiri Björnssyni. Hann
andaðist hjá þeim í Víðum árið
1966. Í Víðum bjuggu Aðalbjörg og
Njáll uns þau fluttu í Narfastaði ár-
ið 1974.
Aðalbjörg starfaði í kvenfélagi
Reykdæla í mörg ár. Alstaðar þar
sem hún vissi að þörf væri á kom
hún til hjálpar. Hlaut fyrir það
verðskuldaðar vinsældir.
Sumarið 1973 var eg kominn,
heimilislaus og hálfrótlaus, á fornar
æskustöðvar. Það samdist svo um
milli mín og Víðahjónanna, að eg
teldi heimili mitt hjá þeim. Haustið
eftir fluttum við í Narfastaði og þar
var eg heimilisfastur öll ár þeirra
þar, en stundaði vinnu annars stað-
ar. En svo bilaði heilsa kæru
hjónanna minna beggja í einu. Þá
var þessum búskap á Narfastöðum
sjálfhætt og lá þá leiðin okkar
þriggja til Húsavíkur, á elliheimilið.
Allt frá því í nóvember 1993 hefur
Aðalbjörg verið ósjálfbjarga sjúk-
lingur á sjúkrahúsinu á Húsavík.
Dýrmæt umönnun hjúkrunarfólks
er hér þökkuð hjartanlega. Þung-
bært er slíkt ævikvöld og torskilin
ákvörðun almættisins. Þá sjaldan
eg náði sambandi við hana í heim-
sóknum mínum, síðustu árin, var
alltaf spurt hins sama: „Ætlarðu
ekki að koma mér heim. Strax?“.
Einu sinni spurði eg: „Hvert heim?“
„Nú auðvitað í Velli“ svaraði hún.
Nú leyfi eg mér að vona að hún sé
nú komin heim. Kannske í stóra
hópinn sinn á Völlum? Mági mínum
elskulegum og nánustu aðstandend-
um votta eg samúð mína og umfram
allt þökk fyrir mig. Í Guðs friði.
Kæra Abba mín, hittumst heil
hinum megin. Vertu nú sæl.
Hákon.
Nú sveipa heiðar næturfölva feldi
um fætur hægt og döggvast gróin tún.
Hnigin er sól, en aftangeisla eldi
er ennþá dreift um hæstu fjalla brún.
Um sævardjúp á lágum bárum bíður
blikfegurð kvölds og vaggar dagsins
þraut.
Í aftanblævar fylgd mín ljóðúð líður
til lags við röðulbjarmans töfraskraut.
Kvöldhimins fögur litadýrð er dofnuð
og döggva slungið græðis ljósatraf.
Hver alda harms er lægð, hver sárkennd
sofnuð,
hver sorgarelfur tæmd í vordraums haf.
(Sigurjón Friðjónsson.)
Margar eru minningarnar sem
leita á hugann, nú þegar Aðalbjörg
er kvödd. Yfir þeim minningum öll-
um er mikil birta, en efst er mér í
huga þakklæti fyrir ógleymanlegar
samverustundir og ástúð í minn
garð.
Aðalbjörg hlaut margt í vöggu-
gjöf, þar á meðal fádæma eljusemi.
Snemma gekk hún til búverka, jafnt
innanhúss sem utan. Einnig vann
hún lengi utan heimilis og eru hér
þó ótalin öll þau verk er hún tók sér
fyrir hendur þegar erfiðleikar
steðjuðu að hjá vandamönnum, vin-
um og sveitungum. Væri einhver
hjálparþurfi var Aðalbjörg ætíð
boðin og búin að liðsinna og líkna.
Varð hún enda vinsæl og vinmörg
og margir lögðu leið sína um lengri
eða skemmri veg til samvista við
hana.
Eg kynntist ekki Aðalbjörgu að
ráði fyrr en faðir minn eignaðist
samastað hjá þeim hjónum, henni
og Njáli. Var það hans gæfa að fá
athvarf á þeirra heimili. Fyrir það
vil eg þakka hér og nú.
Margar stundirnar dvaldi eg hjá
þeim, á Narfastöðum, í fríum mín-
um. Ætíð var það mér mikið til-
hlökkunarefni að fara norður til
þeirra og finna hversu innilega eg
var velkominn á þeirra heimili. Að-
albjörg töfraði daglega fram veislu-
borð á örskotsstundu, að mér
fannst, og frá hennar borði gengu
allir mettir. Sumardagarnir þar
voru einkar sólríkir, en liðu ætíð allt
of hratt. Nokkur jól dvaldi eg hjá
þeim og verð að viðurkenna að yfir
mín bernskujól slær nokkrum fölva
við þann samanburð. Þar fann eg
hinn sanna jólafrið sem allir leita.
Það er nefnilega viðhorfið til lífs-
ins og afstaðan til náungans sem
öllu máli skiptir. Á heimili Aðal-
bjargar og Njáls var kærleikurinn
ætíð hafður í öndvegi. Þangað leit-
uðu margir og þaðan fóru allir mett-
ir á líkama og sál.
Eg vil þakka Aðalbjörgu fyrir að
fá að ganga með henni þessi spor í
jarðvist okkar. Það var venja á
hennar heimili að fylgja gestum út á
dyrahelluna og veifa í kveðjuskyni
uns þeir hurfu úr hlaði. Nú er það
hlutverk okkar sem eftir sitjum, er
hún fer til fundar við ástvini á öðr-
um stað. Guð gefi henni góða heim-
komu.
Öllum ástvinum hennar votta eg
samúð mína.
Hólmgeir Helgi.
AÐALBJÖRG
ÞORVALDSDÓTTIR
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textameðferð og
kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er enn fremur unnt að senda
greinarnar í símbréfi (569 1115)
og í tölvupósti (minn-
ing@mbl.is). Nauðsynlegt er,
að símanúmer höfundar/send-
anda fylgi.
Um hvern látinn einstakling
birtist formáli, ein uppistöð-
ugrein af hæfilegri lengd, en
aðrar greinar um sama einstak-
ling takmarkast við eina örk,
A-4, miðað við meðallínubil og
hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í
blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða
ljóð takmarkast við eitt til þrjú
erindi. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín
en ekki stuttnefni undir grein-
unum.
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina