Morgunblaðið - 19.05.2001, Side 59
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001 59
AÐALFUNDUR Hverfafélags
Setbergs og Mosahlíðar verður
haldinn þriðjudaginn 22. maí nk. í
Setbergsskóla og hefst hann kl. 20
með aðalfundarstörfum. Að því
loknu hefur stjórn félagsins boðið
fulltrúum frá skipulags- og skóla-
nefndum bæjarins að sitja fyrir
svörum um málefni sem brenna á
hverfisbúum, s.s. um Reykjanes-
braut, tímasetningar, umfang o.fl.,
frágang hverfisins, íþróttahús við
Setbergsskóla, einsetningu hans og
sjálfsagt fleira.
Vonast stjórnin eftir því að
nefndarmenn eða starfsmenn
skipulagsins og skólaskrifstofu sjái
sér fært að mæta.
Sitja fyrir
svörum
á aðalfundi
SKARTGRIPAVERZLUN Jóns Sig-
mundssonar hefur opnað útibú í
verzlunarkjarnanum Spönginni í
Grafarvogshverfi. Verzlunin býður
þjónustu sem viðkemur skart-
gripum; nýsmíði, viðgerðir eða
breytingar. Opnunartími verzlunar-
innar er mánudaga til föstudaga frá
11 til 18 og laugardaga frá 11 til 16.
Eigendur verzlunarinnar eru hjón-
in Halldóra Arthúrsdóttir og Símon
Ragnarsson gullsmíðameistari.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Eigendur Skartgripaverzlunar Jóns Sigmundssonar, hjónin Halldóra
Arthursdóttir og Símon Ragnarsson gullsmiður, í nýju búðinni.
Skartgripaverslun
opnuð í Spönginni
SELATANGAR eru áfangastaður á
göngudegi Ferðafélags Íslands 2001
sem að þessu sinni er haldinn sunnu-
daginn 20. maí. Selatangar eru forn
og merkur útróðrastaður á sunnan-
verðu Reykjanesi. Þar var fyrrum
ein stærsta verstöð Suðurlands og
þótt víðar væri leitað og enn eru
miklar og merkar menjar um mann-
vistir þar.
Skammt frá rústunum eru merkar
hraunborgamyndanir. Á leiðinni að
Selatöngum er áformað að stoppa
við Seltún og Krísuvíkurkirkju. Far-
arstjóri í þessari ferð er Ólafur Sig-
urgeirsson. Þetta er frekar þægileg
ferð og hentar allri fjölskyldunni en
þeim sem vilja leggja meira á sig er
boðið upp á 6 – 7 klst. göngu á
Reykjanesi. Ekið verður áleiðis að
Keili og gengið þaðan í átt að Þráins-
skildi, sem Þráinsskjaldarhraun
dregur nafn sitt af, þaðan stefnt á
Stóra-Hrút og að lokum komið niður
við Slögu, skammt vestan við Sela-
tanga. Fararstjórar eru Jónas Har-
aldsson og Agnar Björnsson.
Þátttakendum verður boðið upp á
léttar veitingar í göngulok. Sela-
tangaferðin kostar 1.200 kr. en
lengri gönguferðin 1.500 kr. Brott-
för í báðar ferðir er frá BSÍ og kom-
ið verður við í Mörkinni 6 og við
kirkjugarðinn í Hafnarfirði. Sela-
tangaferðin hefst kl. 13:00 en lengri
gönguferðin kl. 10:30. Börn að 15 ára
aldri í fylgd með forráðamönnum
greiða ekki þátttökugjald og allir
eru velkomnir í ferðir Ferðafélags
Íslands.
Göngudagur FÍ
SKAGFIRÐINGAFÉLAGIÐ í
Reykavík heldur hið árlega gestaboð
fyrir eldri Skagfirðinga búsetta á
Suðvesturhorninu sunnudaginn 20.
maí.
Boðið verður upp á skemmtiatriði
og borðin svigna undan kræsingum
að vanda. Húsið verður opnað klukk-
an 13.30 og eru Skagfirðingar hvattir
til að fjölmenna.
Gestaboð
eldri
Skagfirðinga
KAJAKKLÚBBURINN mun halda
kynningu á kajaksportinu og starf-
semi klúbbsins í Reykjavík í dag,
laugardaginn 19. maí.
Kynningin verður frá 11.00 til
15.00 við ylströndina í Nauthólsvík.
Verslanir og ferðaþjónustuaðilar
kynna sig, félagar úr klúbbnum veita
upplýsingar um sportið og hægt
verður að prófa kajaka.
Kajakklúbb-
urinn kynntur
í Nauthólsvík
Í TILEFNI af uppsetningu skilta og
merkinga við Sönghelli við Jökuls-
hálsveg við rætur Snæfellsjökuls,
skammt frá Arnarstapa, verður hátíð
næstkomandi sunnudag kl. 15. Þar
verða afhjúpuð upplýsingaskilti og
verður ýmislegt á dagskrá.
Í hellinum mun Jóhann Friðgeir
Valdimarsson tenórsöngvari syngja
við undirleik Grettis Björnssonar
harmónikuleikara. Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra og Árni Johnsen,
formaður samgöngunefndar Alþingis,
munu stjórna fjöldasöng í hellinum og
leika þeir einnig á gítara.
Skiltin eru sett upp að tilhlutan
heimamanna undir forystu Guðrúnar
Bergmann og annars áhugafólks á
heimaslóðum. Boðið verður uppá
kaffi á eftir.
Hátíð í
Sönghelli
á Snæfells-
nesi
EKIÐ var á bifreiðina KK-775 á bif-
reiðastæði við verslunina Nóatún í
Rofabæ miðvikudaginn 16. maí um
kl. 18.30. Tjónvaldur fór af vettvangi.
Bifreiðin KK-775 er Volkswagen
Caravelle grá að lit og skemmdist á
hægra afturhorni. Þeir sem geta gef-
ið upplýsingar um óhapp þetta eru
beðnir að hafa samband við umferð-
ardeild lögreglunnar í Reykjavík.
Vitni vantar
SUMARBÚÐIRNAR Ævintýraland
eru að hefja sitt fjórða starfsár.
Bæklingur hefur verið gefinn út öll
árin og í honum hefur alltaf verið
getraun sem börnin hafa svarað og
sent inn. Fyrir þrjá getspaka
krakka er sem endranær vikudvöl í
sumarbúðunum í verðlaun.
Vinningshafar þessa árs eru þau
Laufey Sunna Guðlaugsdóttir, 8
ára, frá Skagaströnd, Elías Eyþórs-
son, 9 ára, frá Reykjavík og Hannes
Þorkelsson, 10 ára, frá Hveragerði.
Skráning í sumarbúðirnar stendur
enn yfir og aðeins örfá pláss eru
laus. Starfsemin fer fram í tíu vikur
að Reykjum í Hrútafirði, í Reykja-
skóla. Aldurshópurinn í ár er fyrir
7-15 ára og skiptist niður á aldurs-
flokkana 7-12 ára, 10-12 ára og 13-
15 ára. Allar vikurnar verður boðið
upp á námskeið í kvikmyndagerð,
myndlist, grímugerð, tónlist, leik-
list og íþróttum og eru þau innifalin
í dvalargjaldi.
Unnu í
getraun
Ævintýra-
lands
Þessi ungi piltur, Davíð, sá um
að draga úr innsendum lausnum.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦