Morgunblaðið - 19.05.2001, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001 65
DAGBÓK
Árnað heilla
GULLBRÚÐKAUP. Í dag laugardaginn 19. maí eiga 50 ára
hjúskaparafmæli hjónin Aðalheiður Magnúsdóttir og Einar
Gumundsson, Rauðhömrum 10. Ennfremur á Aðalheiður
70 ára afmæli. Þau taka á móti gestum í Félagsgarði í Kjós,
UMF Dreng, sunnudaginn 20. maí frá kl. 15-18.
70 ÁRA afmæli. Nk.þriðjudag, 22. maí,
verður sjötug Málfríður
Halldórsdóttir, Ísafirði. Hún
og eiginmaður hennar, Arn-
ór Stígsson, taka á móti ætt-
ingjum og vinum í Oddfel-
low-húsinu 20. maí kl. 15-18.
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
NAUT
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert ævintýragjarn í
meira lagi en átt það til
að gera meiri kröfur til
annarra en sjálfs þín.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það kann ekki góðri lukku að
stýra að halda of fast um
taumana gagnvart öðrum því
öll samskipti eiga að byggjast
á gagnkvæmri virðingu og til-
litssemi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er nauðsynlegt að hafa
jafnan varaáætlun í bakhönd-
inni ef eitthvað skyldi fara úr-
skeiðis því oft má þá lítinn
tíma missa ef allt á ekki að
lenda í handaskolum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er víða hægt að finna sér
kraft til athafna en affarasæl-
ast er að vinna með samstarfs-
mönnum sínum frekar en að
vera í stöðugri samkeppni við
þá.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það getur valdið vandræðum
hversu ólíkt gildismat fólk hef-
ur og þú ættir að sýna skoð-
unum annarra þá virðingu
sem þú vilt að aðrir sýni þér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er stutt í einhvern stór-
atburð sem þú þarft að vera
reiðubúinn fyrir hvað sem það
kostar. Gerðu þitt besta til
þess að þú standir sem best að
vígi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú þarft að endurskipuleggja
starf þitt svo það gangi ekki
jafnnærri heilsu þinni og nú
er. Mundu að það er stundum í
lagi að vera eigingjarn og
hugsa fyrst um eigið skinn.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þótt þér finnist einhverjum
minniháttar verkefnum að þér
ýtt skaltu bara taka þau að þér
og vinna þau því það mun
verða talið þér til tekna.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú þarft að fylgjast vel með
heilsu þinni vegna þeirrar
streitu sem þú býrð við. Var-
astu að grípa til hvítrar lygi því
hún er engu betri en önnur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er ástæðulaust að ganga
með eitthvert steinbarn í mag-
anum frá fornri tíð. Gerðu upp
þau mál sem á þig leita og þá
mun þér hverfa allur ótti.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það hefur ekkert upp á sig að
vera stöðugt að sífra um hluti
sem ekki fást. Einbeittu þér
frekar að því sem er innan
seilingar.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þótt þér gangi eitthvað í móti
er ástæðulaust að þú takir út
vonbrigði þín á þeim sem næst
þér standa. Reyndu frekar að
vinna í þínum eigin málum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er alltaf hætta á misskiln-
ingi svo þú skalt gera þér sér-
stakt far um að vera skýr-
mæltur svo enginn þurfi að
velkjast í vafa um hvert þú ert
að fara.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
ÞINGVELLIR
Sólskinið titrar hægt um hamra og gjár,
en handan vatnsins sveipast fjöllin móðu.
Himinninn breiðir faðm jafn-fagurblár
sem fyrst er menn um þessa velli tróðu.
Og hingað mændu eitt sinn allar þrár,
ótti og von á þessum steinum glóðu;
og þetta berg var eins og ólgusjár, –
þar allir landsins straumar saman flóðu.
Minning um grimmd og göfgi, þrek og sár
geymist hér, þar sem heilög véin stóðu, –
höfðingjans stolt og tötraþrælsins tár,
sem tími og dauði í sama köstinn hlóðu.
Nú heyri ég minnar þjóðar þúsund ár
sem þyt í laufi á sumarkvöldi hljóðu.
Jakob J. Smári.
FORMÁLALAUST fær
lesandinn sér sæti í suður
og tekur til við það verk-
efni að spila sex tígla með
spaðadrottningu út.
Norður
♠ K
♥ ÁK103
♦ ÁD109
♣ KD102
Suður
♠ Á8
♥ G642
♦ K8763
♣53
Vörnin mun alltaf fá á
laufásinn, en það er
hjartadrottningin sem spil-
ið snýst um. Svíningar eru
til að taka þær, er stund-
um sagt, en aðeins þegar
öll önnur sund eru lokuð.
Það er hugsanlegt að
byggja upp þrjá slagi á
lauf, til dæmis ef vestur á
ÁGx eða Áxxx. En þá
verður að spila laufinu
tvisvar að hjónunum:
Norður
♠ K
♥ ÁK103
♦ ÁD109
♣ KD102
Vestur Austur
♠ DG105 ♠ 976432
♥ 87 ♥ D95
♦ G52 ♦ 4
♣Á764 ♣G98
Suður
♠ Á8
♥ G642
♦ K8763
♣53
Sem ekki er hægt ef
blindur er látinn eiga
fyrsta slaginn á spaða-
kóng. Það verður að yf-
irdrepa kónginn og spila
laufi að blindum. Taka svo
trompin í þremur umferð-
um og enda heima til að
spila aftur laufi. Gosinn
reynist vera þriðji í austur
svo tveir slagir fríast og
svíningin í hjartað verður
óþörf.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson.
Nýbýlavegi 12,
Kópavogi,
s. 554 4433.
Kvartbuxur
Vinsælu kvartbuxurnar með
uppábrotinu eru komnar.
Kr. 1.990.
Síðasta sending.
AMERÍSKIR RAFHITAÐIR NUDDPOTTAR
Glæsilegir nuddpottar í sedrus
viðargrind. Innifalið í verði:
Vatnsnudd 15 stútar, loftnudd 5
stútar. Einangrunarlok, ósone
bakteríuvörn, höfuðpúðar, ljós,
vetraryfirbreiðsla, trappa o.fl.
Engar leiðslur, nema rafm. 16
amp. Verð frá aðeins kr. 490
þús. stgr.
Tilbúnir til afhendingar.
VESTAN ehf., Auðbrekku 23, Kópavogi,
sími 554 6171, fax 898 4154.
Guðrún Arnalds verður með námskeið
í Reykjavík 26.—27. maí.
Vorhreingerning á líkama og sál. Líföndun er góð leið
til að leysa upp spennu og létta á hjartanu.
Gleði er ávöxtur innri friðar.
Guðrún Arnalds,
símar 896 2396/551 8439.
Líföndun
75 ÁRA afmæli. Í daglaugardaginn 19. maí
verður 75 ára Sigrún Lax-
dal, málfræðingur, Skild-
ingatanga 2, Reykjavík.
STAÐAN kom upp á Engh-
ien-les-Bains ofurmótinu er
lauk fyrir skömmu. Franska
undrabarnið Etienne Bacr-
ot (2.627) hafði svart gegn
Viktor Bologan
(2.676). 29. ...Hxb3!
30. cxb3 30. Ka1
Hxc2 er unnið á svart.
30. ...Rc1! og hvítur
gafst upp enda verður
hann mát eftir 31.
Ka1 Rxb3#. Lokast-
aða mótsins varð
þessi: 1. Vladimir
Akopjan (2.654) 6 v. af
9 mögulegum. 2. Joel
Lautier (2.658) 5½ v.
3.-5. Etienne Bacrot
(2.627), Evgeny Bar-
eev (2.709) og Loek
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Van Wely (2.670) 5 v. 6. Al-
exander Grischuk (2.668) 4½
v. 7. Laurent Fressinet
(2.575) 4 v. 8.-9. Vladislav
Tkachiev (2.672) og Viktor
Bologan (2.676) 3½ v. 10.
Christian Bauer (2.612) 3 v.
Aðalfundur Skáksam-
bands Íslands verður hald-
inn kl. 11 í dag, 19. maí, á
Hótel KEA á Akureyri.
Með morgunkaffinu
Er þetta ekki sæti
gjaldkerinn í bank-
anum? Í morgun
þegar hann lofaði að
kippa ávísanareikn-
ingnum mínum í lag,
þá var allt í lagi hjá
honum.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar
um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og
fleira lesendum sín-
um að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrir-
vara virka daga og
þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf
að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða
nafn ábyrgðar-
manns og símanúm-
er. Fólk getur hringt
í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
FRÉTTIR
VERKFRÆÐISTOFAN Vista hef-
ur gefið Tækniskóla Íslands raf-
magnsteikniforrit sem nefnist
PCschematic. Það er frá DPS
Cad Center í Danmörku, er ein-
falt og þægilegt í notkun en öfl-
ugt og með mikla sjálfvirkni.
„Í þessari sérstöku skólaútgáfu
geta nemendur og kennarar
fengið afrit af hugbúnaðinum
sem þeir geta svo sett upp á tölv-
ur heima fyrir til vinnslu á verk-
efnum. Þess má geta að fleiri
skólum hefur verið afhentur hug-
búnaður þessi að gjöf, þ.e.a.s.
þeim sem kenna rafvirkjun eða
sambærilega tæknimenntun, þeir
eru: Fjölbrautaskólinn í Breið-
holti, Iðnskólinn í Hafnarfirði,
Iðnskólinn í Reykjavík, Verk-
menntaskólinn á Akureyri og
Verkmenntaskóli Austurlands.
28. apríl síðastliðinn hélt verk-
fræðistofan Vista kynningu fyrir
kennara í húsakynnum Tækni-
skóla Íslands. Kynningin stóð í
tvo tíma þar sem forritið var
sýnt, spurningum var svarað og
rætt um kennslutilhögun. Eftir
kynningu var boðið upp á léttar
veitingar og notuðu Vistamenn
það tækifæri til að afhenda
Tækniskóla Íslands gjöfina.“
Á myndinni tekur Magnús
Matthíasson, deildarstjóri raf-
magnsdeildar Tækniskólans við
gjöfinni úr hendi Halls Birg-
issonar, stjórnarformanns verk-
fræðistofunnar Vista.
Gefur raf-
magns-
teikniforrit
SÍMINN hefur gert þjónustusamn-
ing við bandaríska gervihnattafyr-
irtækið Iridium um gervihnatta-
símaþjónustu. Samningurinn felur
meðal annars í sér að Síminn veitir
Iridium-þjónustu hér á landi, selur
símakort og þann símabúnað sem
notendur þurfa til að geta nýtt sér
þjónustu Iridium. Með samningnum
við Iridium geta viðskiptavinir Sím-
ans fengið aðgang að þeim 66 gervi-
hnöttum sem eru á braut umhverfis
jörðu sem þýðir að með Iridium-
síma geta þeir alltaf verið í síma- og
gagnaflutningssambandi hvar sem
er í heiminum.
„Helsti kostur Iridium-þjónust-
unnar er hversu víðtæk dreifingin
er, hún nær um allan heim og er
jafngóð á landi sem á sjó. Hafsvæðin
í kringum landið eru t.d. í mjög góðu
sambandi. Samskipti á milli Irid-
ium-síma eru óháð öllum landkerf-
um og henta þau því vel þeim aðilum
sem þurfa að auka á öryggi sitt
hvort sem er á landi eða úti á
rúmsjó,“ segir í frétt frá Símanum.
Iridium-símar fást bæði sem
handsímar og einnig til fasttenging-
ar t.d. í bíla og báta. Hver mínúta á
milli tveggja Iridium-síma mun
kosta í kringum 50 krónur án vsk.
Hver mínúta úr Iridium síma í
GSM, NMT eða í almennan síma
mun kosta í kringum 150 krónur án
vsk.
Síminn semur við fyrirtækið Iridium
Alltaf í sambandi
með gervihnattasíma